Sérfræðingar frá ÖSE ráðleggja Alþingi – Endurskoðun siðareglna stendur nú yfir

Tveir sér­fræð­ingar frá Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE munu heim­sækja Alþingi í byrjun næstu viku til að ræða við þing­menn og skrif­stofu Alþingis um end­ur­skoðun siða­reglna fyrir alþing­is­menn.

Tveir sér­fræð­ingar frá Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE, Örygg­is- og sam­vinnu­stofnun Evr­ópu, munu heim­sækja Alþingi dag­ana 3. til 4. febr­úar næst­kom­andi í tengslum við vinnu sem nú stendur yfir við end­ur­skoðun siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu Alþingis í dag.

Þá segir að drög að breyttum siða­reglum hafi farið til umsagnar siða­nefndar Alþingis og Lýðræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu ÖSE í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Í kjöl­far þess hafi ÖSE sent bréf í des­em­ber þar sem vakin hafi verið athygli á reynslu og sér­þekk­ingu stofn­un­ar­innar á málum sem varða sið­ferði­leg við­mið fyrir þjóð­kjörna full­trúa. Ýmiss konar aðstoð hafi verið boðin, meðal ann­ars að fá til Íslands sér­fræð­inga ÖSE til að ræða við þing­menn og skrif­stofu Alþingis um end­ur­skoð­un­ina á siða­reglum fyrir alþing­is­menn.

Úr varð að tveir sér­fræð­ingar, Marcin Walecki, for­stöðu­maður skrif­stofu lýð­ræð­i­svæð­ingar, og Jacopo Leone, sér­fræð­ingur á sviði lýð­ræð­is­stjórn­unar, munu koma til lands­ins og heim­sækja þingið. Samkvæmt skrif­stofu Alþingis munu þeir hitta og eiga fundi meðal ann­ars með for­seta Alþingis, stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, for­sætis­nefnd og laga­skrif­stofu þings­ins, for­mönnum þing­flokka og ráð­gef­andi siða­nefnd Alþingis.

Langur aðdragandi tillögunnar

Alþingi Íslend­inga sam­þykkti nýjar siða­reglur fyrir þing­menn í mars 2016 en meðal þess sem stendur í þeim er að þeir skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Til­gang­ur­inn með siða­regl­unum var að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla „til­trú og traust almenn­ings á Alþing­i.“

Allir for­setar Alþingis og þing­flokks­for­menn allra flokka stóðu að til­lög­unni, sem átti sér langan aðdrag­anda. Alþingi sam­þykkti breyt­ingar á þing­sköpum í júní árið 2011, og þar kom meðal ann­ars fram að leggja ætti fram til­lögu að siða­reglum fyrir þing­menn. For­sætis­nefnd hóf vinnu við slíkar reglur og skil­aði til­lögum rétt fyrir þing­lok árið 2013, þá var þegar ljóst að ekki myndi nást sam­komu­lag um að afgreiða mál­ið. Ný for­sætis­nefnd fjall­aði um siða­reglur strax sum­arið 2013 og var meðal ann­ars horft til siða­reglna Evr­ópu­ráðs­þings­ins.

Sam­kvæmt siða­regl­unum eiga þing­menn að rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, taka ákvarð­anir í almanna­þágu, ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra og efla og styðja siða­regl­urnar með því að sýna frum­kvæði og for­dæmi. Þingmenn skulu í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

Viðbætur samþykktar

Við­bætur við siða­reglur þing­manna voru sam­þykktar á Alþingi 5. júní 2018 með öllum greiddum atkvæð­um. Í fyrsta lagi var lagt til að nýjum staf­lið yrði bætt við sem segir að alþing­is­­menn verði að leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heil­brigt starfs­um­hverfi innan þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störfum sínum, þar sem hafnað er hvers konar kyn­­ferð­is­­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða annarri van­virð­andi fram­komu.

Í öðru lagi var lagt til að á eftir sjö­undu grein siða­regln­anna kæmi ný grein sem hljóði svo: „Þing­­menn skulu ekki sýna öðrum þing­­mönn­um, starfs­­mönnum þings­ins eða gestum kyn­­ferð­is­­lega eða kyn­bundna áreitni, leggja þá í ein­elti eða koma fram við þá á annan van­virð­andi hátt.“

Umdeild fyrsta niðurstaða

Fyrsta nið­ur­staðan var kunn­gjörð í lok júní á síð­asta ári en þá féllst for­sætis­nefnd á nið­ur­stöðu siða­nefndar í máli Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­flokks­for­manns Pírata. Siða­nefnd taldi að ummæli sem hún lét falla í Silfrinu þann 25. febr­úar 2018 hefðu ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, óskaði eftir því við for­sætis­nefnd þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­menn Pírata Björn Leví Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­ur­greiðslur þings­ins á akst­urs­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

[links]Nið­ur­staða siða­nefndar var sem fyrr segir að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­úar 2018 væru ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mgr.,. 5. gr. og 7 gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Í þeim segir að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörnir full­trúar rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Þing­menn skuli í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu. Siða­nefnd kom­ast aftur á móti að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Björns Levís hefðu ekki brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

Nið­ur­staða siða­nefndar var væg­ast sagt umdeild og mót­mælti Þór­hildur Sunna henni sjálf á Facebook-síðu sinni. „Siða­nefnd Alþingis telur alvar­legra að benda á sam­trygg­ingu og sjálftöku heldur en að taka þátt í leikn­um. Ég sætti mig ekki við það og mun nýta minn and­mæla­rétt til þess að fá þessu hnekkt,“ skrif­aði hún.

Þór­hildur Sunna sagði að fengi þessi nið­ur­staða að standa væru skila­boðin til okkar allra þau að það væri verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau. „Ég er alger­lega búin að fá nóg af slíkri með­virkn­i.“ For­sætis­nefnd féllst, eins og áður segir, á nið­ur­stöð­una.

Tveir Klaustur-þingmenn gerðust brotlegir

Annað umdeilt mál kom á borð for­sætis­nefndar en í byrjun ágúst á síð­asta ári stað­festi hún álit siða­nefndar þess efnis að Bergþór Ólason og Gunn­ar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, hefðu brotið siða­regl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sín­um á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Aðrir þing­menn sem tóku þátt í téðu sam­tal­i, þau Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir úr Mið­flokki og Karl Gauti Hjalta­son og Ólaf­ur Ísleifs­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Miðflokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um alþing­is­manna, sam­kvæmt nefnd­inni.

Bergþór og Gunn­ar Bragi þóttu með um­mæl­um sín­um hafa brotið gegn c- og d-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. og 8. gr. siða­reglna alþing­is­manna, en þar seg­ir m.a. að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörn­ir full­trú­ar „leggja sig fram um að skapa í störf­um sín­um heil­brigt starfs­um­hverfi inn­an þings sem utan og hvar­vetna þar sem þeir sinna störf­um sín­um þar sem hafnað er hvers kon­ar kyn­ferðis­legri eða kyn­bund­inni áreitni, ein­elti eða ann­arri van­v­irð­andi fram­komu“. Seg­ir einnig í regl­un­um að þing­menn skuli ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Siða­nefnd Alþingis taldi aftur á móti að ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, um Freyju Har­alds­dóttur hafi ekki brotið gegn siða­reglum Alþingis.

Skoða framkvæmd reglnanna og farveg kvartana

Fram kom í fréttum í kjöl­farið að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, und­ir­byggi end­ur­skoðun siða­reglna fyrir alþing­is­menn í sam­vinnu við Helgu Völu Helga­dóttur, þáver­andi for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þings­ins.

Í sam­tali við Vísi þann 3. ágúst síð­ast­lið­inn sagði hann að þau væru búin að kasta á milli sín hug­myndum og hefðu verið að sanka að sér gögnum. „Nú er komin ákveðin reynsla á fram­kvæmd­ina og búið að reyna á ýmis­legt og það er nú aðal­lega sú umgjörð sem við erum að skoða og fram­kvæmd regln­anna,“ sagði hann. Stein­grímur sagð­ist ekki eiga von á því að sjálfar hátt­ern­is­regl­urnar yrðu teknar upp heldur aðal­lega fram­kvæmd þeirra og far­vegur kvart­ana.

Alþingi ræður ekki við hlutverkið

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í kjöl­far nið­ur­stöðu siða­nefndar í máli Þór­hildar Sunnu að það fyr­ir­komu­lag sem stuðst er við á Alþingi í tengslum við siða­mál væri full­komn­lega ótækt – og Alþingi réði ekki við það hlut­verk eitt og sér að lag­færa það.

Hann sagð­ist jafn­framt ætla að fara fram á það að Alþingi kall­aði eftir aðstoð Örygg­is- og sam­vinnu­stofnun Evr­ópu við að koma þessum málum í sóma­sam­legt horf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár