„Ásmundur Friðriksson er lýðskrumari af verstu gerð“

Þing­maður Pírata segir Ásmund Frið­riks­son vera mann­leysu og að bréf hans til Evr­ópu­ráðs­þings­ins, þar sem hann leit­ast eftir refs­ingu gagn­vart Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, sé „algjör við­bjóður“.

„Ásmundur Frið­riks­son er lýð­skrum­ari af verstu gerð. Heim­sóknir hans út um allt kjör­dæmið eru ekk­ert annað en atkvæða­veiðar sem kosta him­in­háar upp­hæðir í akst­urs­greiðslur og skila engu í þing­störfin. Þetta bréf hans er algjör við­bjóður, ofan í allt það sem á undan hefur gengið þá dirf­ist hann til þess að leit­ast eftir refs­ingu á vegum Evr­ópu­ráðs­þings­ins gagn­vart Sunnu. Þvílíka og aðra eins mann­leysu (hug­laus og ómerki­legur maður) hef ég aldrei á ævi minni hitt.“

[links]Þetta segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í stöðu­upp­færslu á Facebook vegna frétta um að Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafi sent Liliane Maury Pasquier, for­seta Evr­ópu­ráðs­þings­ins, erind­i og vakið athygli á því að Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, hafi gerst brot­leg við siða­reglur alþing­is­manna, fyrst þing­manna hér á land­i. Brotið fólst í því að segja í sjón­varps­þætti að „rök­studdur grunur“ væri um að Ásmundur hefði dregið að sér fé með beiðnum um end­­­­ur­greiðslur þings­ins á akst­­­­ur­s­­­­kostn­aði sínum í gegnum tíð­ina.

Mikið var fjallað um akstur Ásmundar í byrjun árs 2018 en þann 9. febr­­úar sama ár var upp­­lýst um að hann væri sá þing­­­maður sem fékk 4,6 millj­­­ónir króna end­­­ur­greiddar vegna akst­­­­ur­s­­­­kostn­aðar árið 2017. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­­ur­greiðslu úr rík­­­­is­­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­­metra árið 2017 og fékk end­­­ur­greitt frá rík­­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­­ur.

[adspot]Í við­tali við Kastljós í febr­úar 2018 gekkst Ásmundur við því að nota eigin bíl­ í próf­kjörs­bar­áttu og fá kostnað vegna þess end­ur­greiddan. Aðspurður um hvort honum þætti það eðli­legt sagði hann að þetta væru bara regl­urn­ar. Hann hefði ekki samið þær.

Í lok nóv­­em­ber í fyrra end­­ur­greiddi Ásmundur skrif­­­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­­­ur­greiddar á árinu 2017. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­­­­­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­­­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­­­fólki ÍNN.“

Snýst um að „hrauna yfir Ása“

Björn Leví hefur stöðu­upp­færsl­una á því að segja: „Svo það fari ekki á milli mála þá snýst þessi pist­ill um að hrauna yfir Ása.“ Hann varar fólk svo við því að hann muni nota orð sem séu „mjög lýsandi og nákvæm fyrir þennan sturl­aða gjörn­ing sem þetta ferli er orðið allt saman, allt út af því að Ásmundur Frið­riks­son mis­not­aði stöðu sína og aðgang að almannafé í gegnum starfs­kostnað.“

Hann rekur svo for­sögu máls­ins, en það voru fyr­ir­spurnir frá Birni Leví sem leiddu til þess að tölur um end­ur­greiddan akst­urs­kostnað þing­manna voru loks birtar í byrjun árs 2018.

[adspot]Björn Leví segir enn til­efni til rann­sóknar á greiðslum til Ásmundar. „Beiðnum til for­sætis­nefndar um rann­sókn var hins vegar vísað frá með rökum sem halda engu vatni. Í kjöl­farið á því, með þeim hvít­þvotti sem Ásmundur fékk í afgreiðslu for­sætis­nefndar hóf Ásmundur þessa veg­ferð gegn Sunnu og mér, að kvarta undan beiðni okkar um rann­sókn vegna játn­inga hans. Nið­ur­staðan af því var að Sunna væri sek um brot á siða­reglum þing­manna en ekki ég, með rökum um æsing: „umræðan hafi að ein­hverju leyti ein­kennst af æsingi fremur en mál­efna­legum rökum". Þessi nið­ur­staða er aug­ljós­lega fárán­leg miðað við gögn máls­ins. Það liggur fyrir játn­ing um vafa­samar end­ur­greiðslur. Það eru rök. Þess vegna „rök­studdur". Miðað við reglur um end­ur­greiðslu og þau atvik sem Ásmundur ját­aði í Kast­ljósi þá er aug­ljós­lega grunur um mis­notkun á þeim reglum. Samtals er það þá rök­studdur grunur. Orðin eru því aug­ljós­lega sögð með mál­efna­legum rökum en ekki æsingi.“

Segir að bréfið sé „viðbjóður“

Björn Leví segir að undir engum kring­um­stæðum geti það talist brot á siða­reglum að segja satt. „Því skiptir mjög miklu máli hvort Sunna sagði satt eða ekki og meti nú hver fyrir sig miðað við játn­ingu Ásmundar og end­ur­greiðslu hans á vafasömum kostn­að­ar­greiðslum. Allir sem eru ekki hlut­drægir í mál­inu ættu að sjá hið aug­ljósa, Sunna var nákvæm og mál­efna­leg í gagn­rýni sinni í þessu máli. Meiri hluti for­sætis­nefndar brást hrylli­lega gagn­vart þing­manni í minni hluta. Siða­nefnd brást alger­lega með því að meta ekki sann­leiks­gildi orð­anna þrátt fyrir skipun meiri hluta for­sætis­nefndar.“

[adspot]Síðan fjallar hann um bréf Ásmundar til Evr­ópu­ráðs­þings­ins og segir að það sé „við­bjóður“. „Ásmundur Frið­riks­son er lýð­skrum­ari af verstu gerð. Heim­sóknir hans út um allt kjör­dæmið eru ekk­ert annað en atkvæða­veiðar sem kosta him­in­háar upp­hæðir í akst­urs­greiðslur og skila engu í þing­störfin. Þetta bréf hans er algjör við­bjóður, ofan í allt það sem á undan hefur gengið þá dirf­ist hann til þess að leit­ast eftir refs­ingu á vegum Evr­ópu­ráðs­þings­ins gagn­vart Sunnu. Þvílíka og aðra eins mann­leysu (hug­laus og ómerki­legur maður) hef ég aldrei á ævi minni hitt. Skiln­ings­leysið gagn­vart þeirri máls­með­ferð sem var í þessu máli í for­sætis­nefnd og siða­nefnd hér á landi hentar honum auð­vitað gríð­ar­lega vel. Það skiln­ings­leysi er annað hvort ein­lægt, sem segir þá sitt um gáfur (eða skort á þeim) eða þá að það er vilj­andi, sem segir þá sitt um hans innri mann. Ég veit ekki hvort er verra, að vera svona heimskur eða vera svona vondur nema hvort tveggja sé.“

Björn Leví segir ofan­greind orð ekki vera sögð í reiði­kasti heldur af yfir­lögðu ráði. Alþing­is­menn séu enda ein­ungis bundnir við sann­fær­ingu sína sam­kvæmt ákvæði stjórn­ar­skráar. Hann geri sér þó grein fyrir því að ein­hverjir gætu skilið það sem svo að hann fari gegn grein siða­reglna Alþingis um að ekki megi kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Hann telji hins vegar svo ekki vera. „Ég tel mig með þessum orðum vera að upp­lýsa almenn­ing um skoðun mína og sann­fær­ingu með gagn­sæi á störf mín og þings­ins. Ég nota til þess nákvæm orð til þess að koma mein­ingu minni á fram­færi. Það má vel vera að það væri hægt að gera það á betri og ljóð­rænni hátt eða eitt­hvað þess háttar en það eru ekki allir skáld eða rit­höf­undar sem geta beitt tungu­mál­inu á frum­legri hátt án þess að hljóma móðg­andi eða eitt­hvað þvíum­líkt. Ég er ekki einn þeirra og þarf að nota þau orð sem ég kann eins og ég skil þau. Ég skamm­ast mín ekk­ert fyrir það. Kannski finnst þetta ein­hverjum óvægin gagn­rýni. Þá er það bara nákvæmur skiln­ingur á því sem ég er að reyna að segja. Ég skil ekki af hverju ég ætti að halda eitt­hvað aftur af skoð­unum mínum í þessu máli. Það gerir nákvæm­lega ekk­ert fyrir heið­ar­leika að halda aftur af gagn­rýni í þessu máli, svo alvar­legt er það.“

Fannst mikilvægt að gera viðvart um brotin

Ásmundur sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í morgun að honum finn­ist mik­il­vægt að gera Evr­ópu­ráðs­þing­inu við­vart um brot Þór­hildar Sunnu. Hún hafi ekki rækt „störf sín af ábyrgð, heil­ind­um og heið­ar­leika sam­­kvæmt áliti for­­sæt­is­­nefnd­ar og siða­nefnd­­ar.“ Þór­hild­ur Sunna er vara­­for­maður Íslands­­­deild­ar Evr­­ópu­ráðs­þings­ins og for­maður laga- og mann­rétt­inda­­nefnd­ar Evr­­ópu­ráðs­þings­ins.

„Evr­­ópu­ráðs­þingið hef­ur ít­rekað lagt mikla áherslu á það við aðild­­ar­­ríki sín að þau setji siða­regl­ur fyr­ir alþing­is­­menn sem feli jafn­­framt í sér við­ur­­lög. Þá hef­ur Evr­­ópu­ráðs­þingið sjálft sett sér siða­regl­ur þar sem kveðið er á um við­ur­­lög við brot­um, til dæm­is skerð­ingu rétt­inda inn­­an þings­ins,“ sagði Ásmund­ur og benti ­jafn­fram­t á að Evr­­ópu­ráðs­þingið hafi áður látið sig varða skip­an Íslands­­­deild­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár