Benti forseta Evrópuráðsþings á brot Þórhildar Sunnu

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sendi for­seta Evr­ópu­ráðs­þings­ins erindi og vakti þar athygli á áliti siða­nefndar um að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, hefði gerst brot­leg við siða­reglur Alþing­is­manna.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sent Liliane Maury Pasquier, for­seta Evr­ópu­ráðs­þings­ins, erindi og vakið athygli á því að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, hafi gerst brot­leg við siða­reglur alþing­is­manna, fyrst þing­manna hér á landi. Ásmundur segir að Evr­ópu­ráðs­þingið ætti að íhuga aðgerðir gagn­vart Þórhildi Sunnu í ljósi þessa. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Í júní síð­ast­liðnum féllst for­sætis­nefnd Alþingis á nið­ur­stöður siða­­­nefnd­ar þings­ins þess efn­is að Þór­hild­ur Sunna hefði brotið gegn siða­regl­um alþing­is­­­­manna með um­­­­mæl­um sín­um um Ásmund í Silfrinu.

Ásmund­ur hafði sjálfur óskað eftir því að nefndin tæki til skoð­unar hvort þing­­­menn Pírata Björn Leví Gunn­­­ar­s­­­son og Þór­hildur Sunna hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­­­ur­greiðslur þings­ins á akst­­­ur­s­­­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­­­urn­­­ar.

Ásmundur segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að honum finn­ist mik­il­vægt að gera Evr­ópu­ráðs­þing­inu við­vart um þessi brot þing­manns­ins. „Þór­hild­ur Sunna rækti ekki störf sín af ábyrgð, heil­ind­um og heið­ar­leika sam­kvæmt áliti for­sæt­is­nefnd­ar og siða­nefnd­ar,“ seg­ir Ásmund­ur en Þór­hild­ur Sunna er vara­for­maður Íslands­deild­ar Evr­ópu­ráðs­þings­ins og for­maður laga- og mann­rétt­inda­nefnd­ar Evr­ópu­ráðs­þings­ins.

„Evr­ópu­ráðs­þingið hef­ur ít­rekað lagt mikla áherslu á það við aðild­ar­ríki sín að þau setji siða­regl­ur fyr­ir alþing­is­menn sem feli jafn­framt í sér viður­lög. Þá hef­ur Evr­ópu­ráðs­þingið sjálft sett sér siða­regl­ur þar sem kveðið er á um viður­lög við brot­um, til dæm­is skerð­ingu rétt­inda inn­an þings­ins,“ seg­ir Ásmund­ur og bendir jafn­framt á að Evr­ópu­ráðs­þingið hafi áður látið sig varða skip­an Íslands­deild­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár