Álit um brot Þórhildar Sunnu staðfest í forsætisnefnd

For­sæt­is­nefnd Alþing­is hef­ur fall­ist á niður­stöðu siða­nefnd­ar þings­ins þess efn­is að Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir hafi brotið siða­regl­ur fyr­ir alþing­is­menn með um­mæl­um sín­um um Ásmund Friðriks­son, þing­mann Sjálf­stæðis­flokks­ins.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

For­sæt­is­nefnd Alþing­is hef­ur fall­ist á niður­stöður siða­nefnd­ar þings­ins þess efn­is að Þór­hild­ur Sunna Ævars­dótt­ir hafi brotið gegn siða­regl­ur alþing­is­manna með um­mæl­um sín­um um Ásmund Friðriks­son, þing­mann Sjálf­stæðis­flokks­ins. Tveir nefnd­ar­menn lýstu sig and­víga nið­ur­stöð­unni. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Féllst á niðurstöðu siðanefndar

[links] Ásmundur óskaði eftir því við for­­sæt­is­­nefnd þann 10. jan­úar síð­­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­­menn Pírata Björn Leví Gunn­­ar­s­­son og Þór­hildur Sunna Ævar­s­dóttir hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­­ur­greiðslur þings­ins á akst­­ur­s­­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­­urn­­ar.

Siða­nefnd komst síðan að þeirri nið­ur­stöðu, í maí síð­ast­liðnum, að ummæli þing­flokks­for­manns Pírata, Þór­hildar Sunnu Ævars­dótt­ur, sem hún lét falla þann 25. febr­úar 2018 í Silfrinu hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn. Siða­nefndin taldi aft­ur á móti að Björn Leví Gunn­ars­son hafi ekki gerst brot­leg­ur við regl­urn­ar.

For­sætis­nefnd Alþingis hefur nú fall­ist á nið­ur­stöðu siða­nefndar en álit for­sæt­is­nefnd­ar þessa efn­is verður birt á vef Alþing­is í dag en það var af­greitt á fundi nefnd­ar­inn­ar á föstu­dag.

Hafnaði því að vísa málinu aftur til siðanefndar

Samkvæmt Frétta­blað­inu segir í áliti for­sætis­nefndar að það sé ekki til­gangur siða­regln­anna að tak­marka tján­ing­ar­frelsi þing­manna. Af siða­regl­unum leiði að það geti haft þýð­ingu hvernig tján­ingu er komið á fram­færi og við hvaða aðstæður. Skorður sem siða­regl­urnar setji lúti þannig ekki að efni tján­ingar heldur að ytri bún­ingi hennar, til að mynda um hátt­vísi og aðferð.

For­sætis­nefnd hafn­aði þeim athuga­semdum Þór­hildar Sunnu að rétt hefði verið að siða­nefndin legði mat á sann­leiks­gildi ummæl­anna og því bæri að vísa mál­inu aftur til siða­nefndar til nýrrar með­ferðar. Að mati for­sætis­nefndar gera siða­regl­urnar ekki ráð fyrir því að for­sætis­nefnd fari með úrskurð­ar­vald um sann­leiks­gildi ummæla sem koma til skoð­unar vegna siða­reglna.

„Leggja ber áherslu á í þessu sam­hengi að í siða­nefnd­ar­máli þessu eru til skoð­unar ummæli ÞSÆ á grund­velli siða­reglna fyrir alþing­is­menn en ekki hvort ÁF hafi farið á svig við reglur um end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar eða hvort „rök­studdur grunur“ sé um slíkt.“ Með vísan til þessa féllst for­sætis­nefnd á álit siða­nefnd­ar­innar.

Tveir andvígir niðurstöðunni

Í for­sætis­nefnd sitja Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti, Guðjón S. Brjáns­son, Brynj­ar Ní­els­son, Þor­steinn Sæ­munds­son, Will­um Þór Þórs­son, Jón Þór Ólafs­son, Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir og Har­ald­ur Bene­dikts­son. Þor­steinn Víg­lunds­son og Inga Sæ­land eru áheyrn­ar­full­trú­ar. Bryndís Har­alds­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, situr einnig í for­sætis­nefnd en hún sagði sig frá umfjöllum um meint brot Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur og Björns Levís Gunn­ars­sonar í for­sætis­nefnd í maí vegna ummæla sem hún lét falla í við­tali við RÚV.

Jón Þór Ólafsson, þinga­maður Pírata og Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins lýstu sig and­víga nið­ur­stöð­unni, sam­kvæmt Frétta­blað­inu. Guðjón Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýndi fyr­ir­komu­lag við fram­kvæmd siða­reglna í sér­bókun en greiddi þó atkvæði með nið­ur­stöð­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár