Siðanefnd telur ummæli um Ásmund ekki í samræmi við siðareglur

Siða­nefnd Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hafi brotið siða­reglur með ummælum sínum um greiðslur þings­ins til Ásmundar Frið­riks­sonar.

Björn Leví Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Björn Leví Gunn­ars­son, Ásmundur Frið­riks­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. Mynd: Samsett mynd

Fyrsta nið­ur­staða siða­nefnar Alþingi hefur nú litið dags­ins ljós en nefndin telur að ummæli þing­flokks­for­manns Pírata, Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, sem hún lét falla þann 25. febr­úar 2018 hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn. Þetta kemur fram í bréfi siða­nefndar, stílað þann 13. maí síð­ast­lið­inn, til for­sætis­nefndar. Í siða­nefnd sátu Jón Krist­jáns­son, for­maður, Margrét Vala Krist­jáns­dóttir og Róbert H. Har­alds­son.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, óskaði eftir því við for­sætis­nefnd þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­menn Pírata Björn Leví Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­ur­greiðslur þings­ins á akst­urs­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­urnar.

Nið­ur­staða siða­nefndar er sem fyrr segir að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­úar 2018 séu ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mrg. 5. gr. og 7 gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Í þeim segir að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörnir full­trúar rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Þingmenn skuli í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

Siða­nefnd kemst aftur á móti að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Björns Levís hafi ekki brotið í bága við siða­regl­urnar.

[adspot]

Ummæli Þórhildar Sunnu

Ummælin sem um ræðir lét Þór­hildur Sunna falla í Silfrinu á RÚV þann 25. febr­úar 2018 og hljóða þau svo:

„Við sjáum það að ráð­herrar þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ingum, þing­menn þjóð­ar­innar eru aldrei látnir sæta afleið­ingum. Nú er uppi rök­studdur grunur um það að Ásmundur Frið­riks­son hafi dregið að sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá við­brögð þess efnis að það sé verið að segja á fót rann­sókn á þessum efnum.“

Eins sagði hún á Facebook-síðu sinni:

„Almenn hegn­ing­ar­lög inni­halda heilan kafla um brot opin­berra starfs­manna í starfi, þessi lög ná eftir atvikum líka yfir þing­menn og ráð­herra, að ógleymdum lögum um ráð­herra­á­byrgð. Almenn­ingur í land­inu á það skilið að rík­is­sak­sókn­ari taki það föstum tökum þegar uppi er grunur um brot æðstu ráða­manna í starfi.

Tökum nokkur dæmi. Í 248. gr. almennra hegn­ing­ar­laga er fjár­svip refsi­vert.

248. gr. Ef maður kemur öðrum manni til að haf­ast eitt­hvað að eða láta eitt­hvað ógert með því á ólög­mætan hátt að vekja, styrkja eða hag­nýta sér ranga eða óljósa hug­mynd hans um ein­hver atvik, og hefur þannig fé af honum eða öðrum, þá varðar það fang­elsi allt að 6 árum. Sé brotið framið af opin­berum starfs­manni kemur það til refsi­aukn­ingar sbr. 138. gr. sönu [sic] laga.

Það er því full­kom­lega eðli­legt að skoða grun­sam­legt akst­urs­bók­hald Ásmundar Frið­riks­sonar í þessu ljósi, það er full­kom­lega eðli­legt í rétt­ar­ríki að hann sæti rann­sókn vegna þessa, rétt eins og annar sem upp­vís verður að vafa­samri fjár­söfnun úr vösum skatt­greið­enda. Það er í verka­hring sak­sókn­ara að rann­saka það. Almenn­ingur ber ekki sönn­un­ar­byrð­ina hér.“

Ummæli Björns Levís

Ummæli Björns Levís sem hann birti á Facebook-síðu sinni þann 29. októ­ber 2018 sem siða­nefnd þótti ekki brjóta í bága við siða­reglur alþing­is­manna hljóða svo:

„Þann 10. okt sl. sagði Ásmundur Frið­riks­son: „]Píratar] er fólkið sem stendur upp í þessum sal trekk í trekk, ber upp á mann lygar, hefur sagt að ég væri þjófur, hafi stolið pen­ingum af þing­inu – og þau þurfa ekki að standa neinum reikn­ings­skil.“ Það er ekki satt. Vissu­lega hefur verið talað um að rangar skrán­ingar í akst­urs­dag­bók geti talist fjár­svip [til­vísun í frétt] en eng­inn þing­maður Pírata hefur ásakað Ásmund um slíkt ... fyrr en núna.“

Björn Leví skrifar jafn­framt á Facebook-síðu sína þann 9. nóv­em­ber 2018: „Ég skil vel að ÁSmundur sé þreyttur. Það tekur á að keyra svona mikið. Það hjálpar hins vegar ekk­ert að ljúga upp á for­seta og skrif­stofu þings­ins.“

Þann 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn skrifar hann: „Fyrst ég er að því, hvað er að því að saka menn um þjófnað þegar það liggja fyrir mjög góð gögn um nákvæm­lega það sbr. ummæli um bíla­leigu­bíl, ÍNN þátt og kosn­inga­bar­áttu ... svo fátt eitt sé nefnt. Við skulum hafa það á hreinu að erindi minn varðar _alla_þing­menn sem hafa fengið end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar. Vegna þess að skrif­stofa þings­ins hefur gefið út að end­ur­greiðslu­beiðnir hafa ekki veirð skoð­aðar að fullu. Forseti á að sjá til þess að þessum reglum sé fylgt og for­sætis­nefnd á að hafa eft­ir­lit með því.

Hvað ásök­un­ina varðar. Ég get sent inn erindi þar sem ég óska eftir rann­sókn án þess að í því felist ásökun. Ég er ekki að segja að hann sé þjófur. Ég er að ásaka hann um þjófnað. Tvennt ólíkt.“

Eins segir hann þann 26. nóv­em­ber: „Rétt og heið­ar­lega fram ... eft­irá. Hversu heppi­legt er að „inn­leið­ingu“ reglna um notkun bíla­leigu­bíla lauk einmitt þegar Ásmundur var kom­inn á bíla­leigu­bíl ... eftir að það var búið að vekja athygli á brot­inu?“

Ásmundur taldi sjálfur að fram­an­greind ummæli vægju alvar­lega að æru hans. Eins og fyrr segir þótti siða­nefnd ummæli Björns Levís ekki brjóta í bága við siða­regl­urnar.

Umdeildar akstursgreiðslur

Mikið var fjallað um akstur Ásmundar í byrjun árs 2018 en þann 9. febr­úar sama ár var upp­lýst um að hann væri sá þing­­maður sem fékk 4,6 millj­­ónir króna end­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostn­aðar árið 2017. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­ur­greiðslu úr rík­­­is­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­metra árið 2017 og fékk end­­ur­greitt frá rík­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­ur.

Ásmundur sagði í Morg­un­út­­varpi Rásar 2 þegar fjallað var um málið á sínum tíma að hann keyrði 20 til 25 þús­und kíló­­metra á ári til að fara í vinnu. Hann sinni auk þess kjör­­dæmi sínu, sem sé 700 kíló­­metra langt, afar vel. „Það líða ekki margar helgar sem ég hef frí frá því að sinna erindum í kjör­­dæm­in­u, fara út á meðal fólks, mæta á alls­­konar upp­­á­komur og svo eru sumrin upp­­­tekin af alls­­konar bæj­­­ar­há­­tíð­u­m,“ sagði hann.

Hann sagð­ist í sama við­tali fara eitt hund­rað pró­­sent eftir öllum reglum og að hann hefði aldrei fengið athuga­­semd frá þing­inu. Hann hefði haldið nákvæma dag­­bók þar sem finna megi yfir­­lit yfir það sem hann hefur gert í hverri ferð fyrir sig og hvern hann hefði hitt. Tíðar kosn­­ingar á und­an­­förnum árum hefði auk þess kallað á aukin ferða­lög. „Regl­­urnar eru bara þannig að þau erindi sem ég á við kjós­­endur sem þing­­maður það er greitt.“

Í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins end­ur­greiddi Ásmundur skrif­­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­­ur­greiddar á árinu 2017. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­­­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­­fólki ÍNN.“

23,4 milljónir í endurgreiðslur frá 2013 til 2018

Samkvæmt upp­lýs­ingum um akst­urs­kostnað þing­manna hefur Ásmundur fengið 23,4 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostnað frá árinu 2013 til árs­ins 2018.

Mest keyrði Ásmundur árið 2014 en þá fékk hann tæpar 5,4 millj­ónir end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar á eigin bif­reið. Árið 2015 fór hann einnig yfir 5 millj­óna króna markið en þá fékk hann rétt rúm­lega 5 millj­ónir end­ur­greidd­ar. Árið 2016 fékk hann tæpar 4,9 millj­ónir fyrir akst­urs­kostnað á eigin bif­reið. Lægstu greiðsl­urnar vegna ferða­kostn­aðar á eigin bif­reið fékk hann árið 2013 fyrir tíma­bilið 2013 til 2017 en þá fékk hann tæpar 3,2 millj­ónir end­ur­greidd­ar.

Á síð­asta ári minnk­uðu end­ur­greiðslur Ásmundar til muna en þá voru þær rúmar 680 þús­und krónur fyrir ferðir á eigin bif­reið og tæpar 1,2 millj­ónir fyrir ferðir með bíla­leigu­bíl, eða sam­tals 1.850.000 krónur.

Mæltu með því að siðanefnd tæki málið fyrir

Í bréfi Björns Levís og Þór­hildar Sunnu til for­sætis­nefndar, sem dag­sett er 18. febr­úar 2019 er vikið að sam­spili æru­verndar sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum og siða­reglum og máls­með­ferð sam­kvæmt siða­reglum fyrir alþing­is­menn (máls­með­ferð­ar­reglur). Þar segir að for­sætis­nefnd geti vísað frá máli ef um er að ræða kæru um meint brot á laga­reglum sem hægt er að bera undir úrskurð stjórn­valda eða dóm­stóla. Í bréf­inu er á hinn bóg­inn ein­dregið mælst til þess að for­sætis­nefnd vísi mál­inu ekki frá á þessum grund­velli.

Í þess­ari grein­ar­gerð þing­manna Pírata er jafn­framt lögð áhersla á að litið verði til umræð­unnar í heild sinni og höfð verði hlið­sjón af ýmsum tengdum ummælum og upp­lýs­ingum. Í nið­ur­stöðu siða­nefndar segir að hún líti svo á að virða verði fram­an­greind ummæli í heild sinni og láta ekki við það sitja að horfa ein­angrað á ein­stök ummæli.

Lítið svigrúm til að takmarka umræðu

Í nið­ur­stöðu siða­nefndar kemur fram að málið taki til ummæla sem látin voru falla á opin­berum vett­vangi. Um sé að ræða ummæli þing­manna sem beindust að öðrum þing­manni. Þá segir að tján­ing­ar­frelsi sé mik­il­vægt í umræðum um stjórn­mál og sé lítið svig­rúm til að tak­marka umræðu sem telst inn­legg í póli­tíska eða almenna þjóð­mála­um­ræðu. Njóti slík umræða enn meiri verndar þegar um sé að ræða kjörna full­trúa almenn­ings sem fara með mik­il­vægt trún­að­ar­hlut­verk í sam­fé­lag­inu. Að sama skapi þurfi þeir að þola harka­legri og óvægn­ari umræðu en aðrir.

Jafn­framt kemur fram hjá siða­nefnd að ummæli Þór­hildar Sunnu hinn 25. febr­úar 2018 verði talin hluti af almennri þjóð­mála­um­ræðu um akst­urs­greiðslur þing­manna. Þau hafi fallið í umræðu­bætti í sjón­varpi og þar með á opin­berum vett­vangi. „Þór­hildur Sunna er þing­maður í stjórn­ar­and­stöðu en dóm­stólar hafa við­ur­kennt að þeir kunni að njóta víð­tækara tján­ing­ar­frelsis en þeir þing­menn sem til­heyra stjórn­ar­meiri­hluta. Þá verður ekki fram hjá því litið að þing­mönnum er ekki aðeins heim­ilt, heldur einnig iðu­lega skylt, að taka afstöðu til og tjá sig um mik­il­væg mál­efni sem varða almenn­ing. Þingmenn geta þurft að tjá sig um slík mál­efni með litlum eða engum fyr­ir­vara, eins og í þessu til­viki, í við­tölum við fjöl­miðla,“ segir í nið­ur­stöð­unni.

Tjáningarfrelsi takmarkast af rétti annarra

Við slíkar aðstæður telur siða­nefnd að játa verði þing­mönnum veru­legt svig­rúm við mat á því hvort til­tekin ummæli feli í sér brot á siða­reglum. En siða­nefnd telur tján­ing­ar­frelsið tak­markast af rétti ann­arra. „Í umræddu við­tali í Silfrinu komst Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir svo að orði að uppi væri „rök­studdur grunur“ um að Ásmundur Frið­riks­son hefði dregið að sér fé, almannafé“. Í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta hinn 26. febr­úar 2018 gagn­rýndu nokkrir þing­menn Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur fyrir að nota hug­takið „rök­studdur grunur" í tengslum við Ásmund Frið­riks­son vegna lög­fræði­legrar merk­ingar þess hug­taks. Í því fælist að uppi væri grunur um refsi­verða hátt­semi og að sá grunur stydd­ist við eitt­hvað áþreif­an­legt.

Í umræð­unum segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir að hún hafi ekki notað hug­takið í lög­fræði­legri merk­ingu. Það kann að renna stoðum undir þá stað­hæf­ingu að hún not­aði hug­takið „rök­studdur grunur“ sjö sinnum í umræðu­þætt­inum, þ.e. einu sinni um Ásmund Frið­riks­son, fjórum sinnum um fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, einu sinni um þáver­andi dóms­mála­ráð­herra og einu sinni um öll fram­an­greind. Í kjöl­far við­tals­ins í Silfrinu, og að því er virð­ist sem nán­ari útlistun á því, skrifar Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir á Facebook-síðu sína stutta umfjöllun um almenn hegn­ing­ar­lög. Fram kemur að þau inni­haldi kafla um brot opin­berra starfs­manna í starfi og að þau nái eftir atvikum líka yfir þing­menn og ráð­herra. Í dæma­skyni rekur hún sér­stak­lega 248. gr. almennra hegn­ing­ar­laga sem fjallar um fjár­svik. Síðar segir hún að það sé eðli­legt að skoða „grun­sam­legt akst­urs­bók­hald Ásmundar Frið­riks­sonar í þessu ljósi, það sé full­kom­lega eðli­legt í rétt­ar­ríki að hann sæti rann­sókn vegna þessa, rétt eins og hver annar sem upp­vís verður að vafa­samri fjár­söfnun úr vösum skatt­greið­enda".“

Umræðan einkennst af æsingi

Siða­nefnd telur að notkun hug­taks­ins „rök­studdur grunur" um akst­urs­greiðslur til Ásmundar Frið­riks­sonar í umræddum sjón­varps­þætti geti bent til þess að umræðan hafi að ein­hverju leyti ein­kennst af æsingi fremur en mál­efna­legum rökum. Á móti komi að Þór­hildur Sunna er þing­maður og þar með hand­hafi lög­gjaf­ar­valds í umboði þjóð­ar­innar. Þá hafi þing­menn, í krafti trún­að­ar­stöðu sinnar í sam­fé­lag­inu, aðgang að ýmsum gögnum og upp­lýs­ingum. Full­yrð­ing þing­manns um það að uppi sé rök­studdur grunur um að þing­maður hafi gerst sekur um refsi­vert brot gefi til kynna að hann búi yfir áþreif­an­legum upp­lýs­ingum þar að lút­andi. Að mati siða­nefndar hafa slík ummæli af hálfu þing­manns annað vægi en af hálfu almenn­ings eða jafn­vel fjöl­miðla. „Hér ber einnig að líta til þess að sem lýð­ræð­is­lega kjörnir full­trúar borg­ar­anna hafa þing­menn umboð kjós­end­anna til þess að fara með stjórn sam­eig­in­legra sjóða rík­is­ins. Ásakanir um refsi­verðan fjár­drátt þing­manns úr þeim sjóðum eru alvar­legar,“ segir í nið­ur­stöð­unni.

Telja órökstuddar aðdróttanir til þess fallið að kasta rýrð á Alþingi

Siða­nefndin telur þó siða­reglur tak­markast hvorki tján­ing­ar­frelsi þing­manna til að taka þátt í störfum þings­ins og almennri stjórn­mála­um­ræðu né stjórn­ar­skrár­varið mál­frelsi þeirra. „Úrlausn þess hvort þau ummæli sem hér um ræðir njóta verndar stjórn­ar­skrár og mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu eða hvort um æru­meið­ing­ar­brot er að ræða er utan starfs­sviðs siða­nefndar. Á hinn bóg­inn hafa þing­menn ákveðið að hátt­erni þeirra, þ.m. t. sam­skipti þeirra og ummæli á opin­berum vett­vangi, skuli sam­ræm­ast til­teknum sið­ferð­is­legum við­miðum. Það er hlut­verk siða­nefndar að meta hvort ummælin sam­rým­ist þeim reglum. Þingmenn hafa sett sér að rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu í öllu hátt­erni sínu og að kasta ekki rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess. Vert er að geta þess að rann­sóknir sýna að van­traust á Alþingi bein­ist ekki síst að sam­skipta­máta þing­manna.“

Það sé mat siða­nefndar að órök­studdar aðdrótt­anir af hálfu þing­manna um refsi­verða hátt­semi ann­arra þing­manna sé til þess fallið að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess. Slíkt hafi óneit­an­lega nei­kvæð áhrif á traust almenn­ings til Alþingis. Þá telur siða­nefnd ummæli af því tagi sem hér eru til umfjöll­unar, er fela í sér ásökun um að við­kom­andi þing­maður hafi brugð­ist því trún­að­ar­hlut­verki sem þing­mönnum er falið við fjár­stjórn­ar­vald Alþingis með refsi­verðu broti er varðar jafn­vel fang­elsi, ekki í sam­ræmi við þann ásetn­ing þing­manna að rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika og af virð­ingu fyrir Alþingi, stöðu þess og störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár