Sólveig Anna: Niðurstaða siðanefndar aumkunarverð og til marks um siðleysi

Formaður Eflingar gagn­rýnir nið­ur­stöðu siða­nefndar Alþingis harð­lega.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, telur nið­ur­stöðu siða­nefndar Alþingis vera aumk­un­ar­verða og til marks um sið­leysi þeirra sem að henni kom­ast. Frá þessu greinir hún á Facebook-síðu sinni í dag.

[links]Tilefni skrifa for­manns­ins er að siða­nefnd Alþingis hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­flokks­for­manns Pírata, sem hún lét falla þann 25. febr­­úar 2018 um akst­urs­greiðslur þings­ins til Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­­reglur fyrir alþing­is­­menn.

„Þór­hildur Sunna segir sann­leik­ann, það sem öll með heila hugsa, bendir rök­föst á yfir­gengi­lega spill­ingu, ekki til að „bæta ímynd“ (að „bæta ímynd“ er verk­efni þeirra sem vita að inni­haldið er rotið og þess­vegna þarf að gæta þess að yfir­borðið sé slétt og fellt) eða til að slá sig til ridd­ara heldur vegna þess að hún er með sið­ferð­is­kennd og vegna þess að að ef þú sæk­ist eftir áhrifum og ert með sið­ferð­is­kennd þá ber þér ein­fald­lega skylda til að segja sann­leik­ann,“ skrifar Sólveig Anna.

Sólveig Anna segir að fyrir þetta skuli Þórhildi Sunnu nú refsað, fyrir að geta ekki þagað þegar hún verði vitni að skammar­legu og sið­lausu fram­ferði. „Ref­sigleði valda­stétt­ar­innar gagn­vart þeim sem dirfast að segja satt er aumk­un­ar­verð; þegar ekki er lengur hægt að treysta því að sam­trygg­ingin virki, þegar ekki er lengur hægt að treysta því að fégræðgin ráði för hjá fólki þegar kemur að mögu­leikum á því að kom­ast í pen­inga er náð í sápuna og óþekka konan látin bíta í hana, henni til refs­ingar og öðrum til aðvör­unnar.“

Þór­hildur Sunna seg­ist sjálf ekki ætla að sætta sig við nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar og telur hún að ef nið­ur­staðan fái að standa séu skila­boðin til okkar allra þau að það sé verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau. „Ég er alger­lega búin að fá nóg af slíkri með­virkn­i,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár