ASÍ segir það „feigðarflan“ að staðfesta þriðja orkupakkann

Alþýðu­sam­band Íslands legst gegn frek­ari mark­aðsvæð­ingu raf­orku í umsögn sinni um þriðja orku­pakk­ann. Þegar hafi verið gengið of langt í þá átt.

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) segir að það sé mat sam­bands­ins að þegar hafi verið gengið of langt í mark­aðsvæð­ingu grunn­stoða. Það sé „feigð­ar­flan að stað­festa mark­aðsvæð­ing­una og ganga lengra í þá átt.“

Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stað­fest­ingu á ákvörðun sam­eig­in­legu EES-nefnd­ar­innar um orku­mál, oft­ast kallað þriðji orku­pakk­inn.

Í umsögn ASÍ segir að málið hafi verið afar umdeilt meðal þjóð­ar­innar og kjör­inna full­trúa og yrði ekki slitið úr sam­hengi við umræð­una um hvaða grunn­stoðir eigi að vera í sam­fé­lags­legri eigu og und­an­skildar mark­aðslög­mál­unum.

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni sé skýrt tekið fram að sam­kvæmt orku­pakka 1 og orku­pakka 2 sé almennt litið á orku eins og hverja aðra vöru sem sam­keppn­is­lög­mál gildi um. Það hafi gerst með inn­leið­ingu fyrsta orku­pakk­ans í raf­orku­lög að vinnsla og sala raf­orku skyldi rekin í mark­aðs­kerfi á sam­keppn­is­grunni.

Að mati ASÍ er raf­orka er grunn­þjón­usta og ætti ekki að vera háð mark­aðs­for­sendum hverju sinni. „Raforka á að vera á for­ræði almenn­ings og ekki á að fara með hana eins og hverja aðra vöru á mark­aði. Það er því mat ASÍ að of langt hafi verið gengið nú þegar í mark­aðsvæð­ingu grunn­stoða og feigð­ar­flan að stað­festa mark­aðsvæð­ing­una og ganga lengra í þá átt. Rafmagn er und­ir­staða til­veru okkar í dag og það er sam­fé­lags­leg ábyrgð að tryggja fram­leiðslu og flutn­ing til allra, sú ábyrgð er of mikil til að mark­að­ur­inn fái að véla með hana enda hefur mark­aðsvæð­ing grunn­stoða yfir­leitt ekki bætt þjón­ustu, lækkað verð né bætt stöðu starfs­fólks.“

Að mati ASÍ sé það for­senda fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu lífs­gæða að eign­ar­hald á auð­lindum sé í sam­fé­lags­legri eigu og að „við njótum öll arðs af nýt­ingu auðild­anna og getum ráð­stafað okkar orku sjálf til upp­bygg­ingar atvinnu hér á landi.“

Undir umsögn­ina skrifar Drífa Snædal, for­seti ASÍ.

Sagði orkupakkamálið lykta af sérhagsmunapoti

Drífa er ekki fyrsti verka­lýðs­leið­tog­inn sem blandar sér í umræðu um orku­pakka­málið. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, ­sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrir helgi að verka­lýðs­hreyf­ingin hafni því að hægt sé að taka stórar og umdeildar ákvarð­an­ir, á borð við þriðja orku­pakk­ann, án þess að full­komið traust og sátt ríki um mál­ið.

Hann sagði málið óneit­an­lega lykta af sér­hags­muna­poti og spurði jafn­framt hvort Íslend­ingar geti treyst kjörnum full­trúum til að taka svo stórar ákvarð­anir sem snúa að orku­málum þjóð­ar­inn­ar. „Svona miðað við allt sem á undan er geng­ið?“

Ragnar Þór telur að „hin ofsa­fengnu við­brögð þekktra hags­muna­afla við rétt­mætum spurn­ingum og gagn­rýni“ gefi svo sann­ar­lega til­efni til að staldra við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár