17 starfsmenn Kaupþings fengu 3,5 milljarða í laun í fyrra

Stjórn Kaup­þings, sem telur fjóra til fimm ein­stak­linga, fékk 1,2 millj­arð króna í laun á árinu 2018. Aðrir starfs­menn fengu líka veru­lega vel greitt. Með­al­greiðsla til starfs­manns var 17,4 millj­ónir króna á mán­uði, sem eru marg­föld árs­laun með­al­manns.

Þrátt fyrir að ellefu ár séu liðin frá því að Kaupþing fór á hausinn þá er bankinn samt sem áður ekki hættur að skila þeim sem vinna að eftirmálum þess þrots digrum launagreiðslum.
Þrátt fyrir að ell­efu ár séu liðin frá því að Kaupþing fór á haus­inn þá er bank­inn samt sem áður ekki hættur að skila þeim sem vinna að eft­ir­málum þess þrots digrum launa­greiðslum. Mynd: 123rf.com

Stjórn og for­stjóri Kaup­þings ehf., félags utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús hins fallna banka Kaup­þings, voru sam­tals með 1.216 millj­ónir króna í laun í fyrra. Alls námu greiðslur til starfs­manna félags­ins, sem voru 17 tals­ins, í heild rúm­lega 3,5 millj­örðum króna á árinu 2018 og hækk­uðu um 900 millj­ónir króna þrátt fyrir að starfs­fólki hefði fækkað. Frá árinu 2016 hafa greiðslur til starfs­fólks Kaup­þings auk­ist um 1,9 millj­arð króna en starfs­fólk­inu sjálfu fækkað úr 30 í 17.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Kaup­þings fyrir árið 2018. Í því ein­taki reikn­ings­ins sem skilað var inn til fyr­ir­tækja­skráar í sumar vant­aði þrjár blað­síður hans, 17-19. Á þeim koma meðal ann­ars fram upp­lýs­ingar um launa­greiðslur til starfs­manna Kaup­þings. [adspot]Kjarninn kall­aði eftir því að fá blað­síð­urnar afhentar hjá Kaup­þingi og fékk þær um liðna helgi. Starfs­maður félags­ins sagði í svari til Kjarnans að svo virt­ist sem að mis­tök hafi orðið hjá Rík­is­skatt­stjóra við skönnun reikn­ings­ins og þess vegna hafi blað­síð­urnar vantað. Kaupþing ætlar að láta fyr­ir­tækja­skrá emb­ætt­is­ins vita af mis­tök­unum.

Fækkaði um einn í stjórn síðla árs

Í stjórn Kaup­þings sitja Allan Jeffrey Carr, Paul Copley, Óttar Páls­­son og Piergi­orgio Lo Greco. Copley er einnig for­stjóri Kaup­­þing. Það fækk­aði um einn í stjórn félags­ins á milli ára, en Benedikt Gíslason hætti í henni í ágúst 2018 og tók þess í stað sæti í stjórn Arion banka, sem þá var að að stóru leyti enn í eigu Kaup­þings. Benedikt var svo ráð­inn banka­stjóri Arion banka í sumar. Því verður að gera ráð fyrir að greiðslur til Bene­dikts fram að þeim tíma sem hann hætti hjá Kaup­þingi telj­ist með í heild­ar­upp­hæð launa­greiðslna til stjórnar.

Launa­greiðslur til stjórnar juk­ust úr 544 millj­ónum króna í 1.216 millj­ónir króna á árinu 2018,eða um 672 millj­ónir króna.

Eini Íslend­ing­ur­inn sem var eftir í stjórn Kaup­þings, lög­mað­ur­inn Óttar Pálsson, hefur setið þar frá árinu 2016 að ósk helstu eig­enda Kaup­þings, sem eru banda­rískir vog­unar- og áhættu­sjóðir. Hann starf­aði áður sem ráð­gjafi fyrir þá.

208 milljónir að meðaltali

Alls störf­uðu 17 manns hjá Kaup­þingi í fyrra, að með­töldum stjórn og for­stjóra. Stöðu­gildum fækk­aði um tvö á árinu. Heild­ar­laun og launa­tengd gjöld til þessa hóps voru 3.541 milljón króna á síð­asta ári. Það þýðir að með­al­tal launa hjá Kaup­þingi var 208,3 millj­ónir króna á ári, eða tæp­lega 17,4 millj­ónir króna á mán­uði. Til sam­an­burðar var mið­gildi heild­ar­launa á Íslandi árið 2018 632 þús­und krónur á mán­uði. Helm­ingur þjóð­ar­innar hafði minna en þá upp­hæð í laun mán­að­ar­lega í fyrra. Árslaun þess sem hafði mið­gild­is­laun voru tæp­lega 7,6 millj­ónir króna á ári, eða 44 pró­sent af með­al­tals mán­að­ar­launum innan Kaup­þings.

[adspot]Aðkeypt sér­fræði­þjón­usta um fjórum millj­örðum króna. Þar af nam lög­fræð­is­þjón­usta 2.153 millj­ónum króna en „önnur sér­fræði­þjón­usta“ kost­aði rúm­lega 1,6 millj­arð króna. Annar rekstr­ar­kostn­aður, sem er ekki sér­stak­lega skil­greindur í árs­reikn­ingnum, nam 577 millj­ónum króna á árinu 2018.

Bónusgreiðslur fyrir að selja eignir

Greint var frá því fyrir þremur árum síðan að um 20 manna hóp­ur lyk­il­starfs­manna Kaup­þings gæti fengið allt að 1,5 millj­arða króna til að skipta á milli sín ef hámörkum á virði óseldra eigna Kaup­­þings myndi nást. Næð­ust mark­miðin átti að greiða út bón­us­greiðsl­­urnar eigi síðar en í apríl 2018.

Langstærsta óselda eign Kaup­­þings á þeim tíma var 87 pró­­sent hlutur félags­­ins í Arion banka, sem nú hefur verið seld að öllu leyti eftir að bank­inn var skráður á markað. Umræddar bón­us­greiðslur áttu ein­ungis að ná til starfs­­manna Kaup­­þings, ekki stjórn­­­ar­­manna og ráð­gjafa sem unnið höfðu fyrir félag­ið. Greiðslur til þeirra áttu að koma til við­­bótar því sem greidd­ist til starfs­­manna.

Kaup­þing hefur hingað til aldrei viljað upp­lýsa um hvort búið sé að greiða bónus­anna út né hver áætluð heild­ar­greiðsla sé. Miðað við hversu há greiðslan til starfs­manna Kaup­þings var á síð­asta ári þá verður að gera ráð fyrir því að þeir hafi fengið bón­us­greiðsl­urnar í fyrra, líkt og stefnt hafði verið að.

Líka stærstir í Arion banka

Kaupþing gerði sam­komu­lag við íslenska ríkið árinu 2015 og fékk nauða­samn­ing sinn sam­þykkt í des­em­ber það ár. Félagið er vinna úr eft­ir­stand­andi eignum sínum og á meðal þeirra voru Arion banki, sem var skráður á markað í fyrra. Kaupþing hefur síðan þá selt allan hlut sinn í bank­anum en stærstu eig­endur félags­ins, banda­rískir vog­un­ar­sjóðir, eru þó enn á meðal stærstu eig­enda bank­ans með beinni eign­ar­að­i­ild

[adspot]Laun- og launa­tengdur kostn­aður Kaup­þings hefur hækkað mikið síð­ustu ár, eða frá því að nauða­samn­ing­ur­inn var sam­þykktur. Hann jókst í heild sinni um einn millj­arð króna milli áranna 2016 og 2017 þrátt fyrir að starfs­fólki hefði fækkað úr 30 í 19. Í fyrra jókst hann aftur um tæpan millj­arð króna og var, líkt og áður sagði, rúm­lega 3,5 millj­arðar króna þrátt fyrir að enn hefði starfs­mönnum fækkað, nú úr 19 í 17.

Sjóðir í eigu Taconic Capital eru langstærstu eig­endur Kaup­þings, með sam­tals 47,8 pró­sent eign­ar­hlut. Sjóðir tengdir CCP Credit Aquisition með sam­tals 9,3 pró­sent eign­ar­hlut og sjóð­ur­inn Sculptor Invest­ments s.a.r.l., sem er tengdur Och-Ziff sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu, á 6,2 pró­sent hlut. Sjóðir í stýr­ingu Attestor Capital eiga 5,9 pró­sent.

Sjóður á vegum Taconic er líka stærsti eig­andi Arion banka með 23,53 pró­sent hlut. Næst stærsti eig­andi bank­ans er skráður Och-Ziff Capital Mana­gement með 9,25 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár