Kaupþing upplýsir ekki um hvort milljarðabónusar hafi verið greiddir út

Um 20 starfs­menn Kaup­þings gátu fengið allt að 1,5 millj­arð króna í bón­us­greiðslur ef tæk­ist að hámarka virði óseldra eigna félags­ins. Greiða átti bónus­anna út í apríl síð­ast­liðnum. Félagið vill ekki stað­festa hvort það hafi verið gert.

Þrátt fyrir að Kaupþing banki hafi farið á hausinn fyrir tæpum áratug þá er enn verið að vinna úr eignum hans.
Þrátt fyrir að Kaupþing banki hafi farið á haus­inn fyrir tæpum ára­tug þá er enn verið að vinna úr eignum hans. Mynd: Úr safni.

Kaupþing ehf., félag utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka sem bar sama nafn, vill ekki upp­lýsa um hvort að bón­us­greiðslur, sem gátu numið allt að 1,5 millj­örðum króna, hafi verið greiddar út til um 20 starfs­manna félags­ins.

Greint var frá því fyrir tveimur árum síðan að hóp­ur­inn gæti fengið umrædda upp­hæð til að skipta á milli sín ef hámörkum á virði óseldra eigna Kaup­þings myndi nást. Næðust mark­miðin átti að greiða út bón­us­greiðsl­urnar eigi síðar en í apríl 2018.

Langstærsta óselda eign Kaup­þings á þeim tíma var 87 pró­sent hlutur félags­ins í Arion banka, sem nú hefur verið að stórum hluta seld og það sem eftir stendur gert selj­an­legt með skrán­ingu á markað. Umræddar bón­us­greiðslur ná ein­ungis til starfs­manna Kaup­þings, ekki stjórn­ar­manna og ráð­gjafa sem unnið hafa fyrir félagið. Greiðslur til þeirra koma til við­bótar því sem greið­ist til starfs­manna.

Búið að selja meginþorra eigna

Síðan þá hafa átt sér stað tölu­verð við­skipti með hluti í Arion banka. Í fyrra keyptu fjórir af stærstu eig­endum Kaup­þings, Taconic Capital, Och-ZiffCapi­tal Mana­gement Group, sjóðir í stýr­ingu Attestor Capi­tal og Gold­man Sachs, sam­tals 29,6 pró­sent hlut í Arion banka af sjálfum sér í fyrra. Tveir þeirra, Attestor og Gold­man Sachs, bættu við sig 2,8 pró­sent hlut 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þá keyptu rúm­lega 20 sjóðir í stýr­ingu fjög­urra af stærstu sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækjum Íslands: Stefn­is, Íslands­sjóða, Lands­bréfa og Júpít­er, sam­tals 2,54 pró­sent hlut. Sam­an­lagt kaup­verð var um 9,5 millj­arðar króna.

Sama dag var kaup­réttur Kaup­þings á 13 pró­sent hlut rík­is­ins í Arion banka virkj­að­ur. Sá kaup­réttur var form­gerður í samn­ingi frá árinu 2009, var for­taks­laus og ein­hliða. Ríkið mátti því ekki hafna til­boð­inu án þess að ger­ast brot­legt við gerða samn­inga.

Gengið var form­lega frá sölu hlut­ar­ins 26. febr­úar síð­ast­lið­inn. Kaup­verðið var 23,4 millj­arðar króna og ekk­ert opið né gagn­sætt sölu­ferli fór fram. Um eina stærstu eigna­sölu rík­is­ins frá upp­hafi er að ræða.

Ætla ekki að tjá sig frekar um bónusgreiðslur

Í vor var svo haldið útboð á bréfum í Arion banka í aðdrag­anda þess að bank­inn var skráður á markað á Íslandi og í Svíþjóð. Þar seldi Kaupþing sig enn niður í bank­anum og á nú tæp­lega 33 pró­sent hlut. Því hefur það mark­mið, að koma þorra óseldra eigna í verð, náðst.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn að nýju til Kaup­þings og spurði hvort búið væri að greiða út bónus­anna sem til stóð að greiða út fyrir lok apr­íl­mán­aðar, og ef svo væri, hver áætluð heild­ar­greiðsla starfs­mann­anna væri. Í svari sem upp­lýs­inga­full­trúi á vegum Kaup­þings sendi sagði: Veittar voru ítar­legar upp­lýs­ingar á sínum tíma. Kaupþing hyggst ekki tjá sig frekar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár