Segir verkalýðshreyfinguna vera að vígbúast

Formaður VR vill að almenn­ingur sé upp­lýstur um hverjir séu að kaupa og selja gjald­eyri á Íslandi, að starfs­mönnum verði boðið að taka yfir fyr­ir­tæki fari þau í þrot, að fjár­munir úr skatta­skjólum verði ekki gjald­gengir og að fyr­ir­tækja­lýð­ræði kom­ist á.

Ragnar Þór Ingólfsson sést hér halda ræðu á baráttudegi verkalýðsins fyrir tveimur árum. Aðstæður gera honum ókleift að halda slíka í dag.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son sést hér halda ræðu á bar­áttu­degi verka­lýðs­ins fyrir tveimur árum. Aðstæður gera honum ókleift að halda slíka í dag. Mynd: Bára Huld Beck

„Ef stjórn­völd og atvinnu­lífið halda því fram að aðgerðir sem und­an­skilja almenn­ing hafi ekki afleið­ingar þá er það mik­ill mis­skiln­ingur. Bús­á­hald­ar­bylt­ingin er ágætis dæmi um það. Þar var fólkið skilið eftir og verka­lýðs­hreyf­ingin sat með hendur í skauti á hlið­ar­lín­unni á meðan fólk­inu var fórnað fyrir fjár­mála­kerfið. Sú breyt­ing sem hefur orðið að und­an­förnu er að verka­lýðs­hreyf­ingin er ekki á hlið­ar­lín­unni lengur og situr svo sann­ar­lega ekki með hendur í skauti. Hún er að víg­bú­ast. Og ef stjórn­völd vilja aðra bús­á­hald­ar­bylt­ingu þá verður hún með þátt­töku verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem bak­land. Það mun ekki standa á okkur.“

Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í grein sem hann birtir á heima­síðu þessa stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins í til­efni af 1. maí, bar­áttu­degi verka­lýðs­ins.

Óeining hefur verið innan verka­lýðs­for­yst­unnar und­an­farið sem leiddi meðal ann­ars til þess að Ragnar sagði sig úr mið­stjórn ASÍ og Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, sagði af sér sem fyrsti vara­for­seti sam­bands­ins. Í kjöl­farið ákváðu stétt­ar­fé­lögin VR, Framsýn og Verka­lýðs­fé­lag Akranes að ræða við Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) um það hvernig hægt er að verja kjara­samn­inga, kaup­mátt og störf án aðkomu ASÍ.

Gæta ekki sætt sig við að fámennur hópur taki allar ákvarðanir

Í grein­inni segir Ragnar að þótt verka­lýðs­hreyf­ingin virð­ist sund­ur­leit í dag þá sé það vegna þess að for­svars­menn innan hennar eru ekki sam­mála um leiðir að sama mark­miði. Það sé ekki slæmt því betra sé að virkja ólík öfl og ólík sjón­ar­mið í stað þess að sætta þau í kringum lægsta sam­nefnar­ann eða aðgerð­ar­leysi eins og við hann segir fólk eiga að þekkja svo vel úr stjórn­mál­unum.

[adspot]Þvert á móti sýni þessi staða hversu mikið hjarta og til­finn­ingar sé í hreyf­ing­unni. „Við getum ekki sætt okkur við það að fámennur hópur í stjórn­ar­ráð­inu taki allar ákvarð­anir í þessu ástandi einn og óstuddur. Við munum ekki sætta okkur við það. Það gengur ekki heldur fyrir sam­fé­lagið að það bíði með hjartað í bux­unum eftir aðgerð­ar­pökkum sem hags­muna­að­ilar og stjórn­ar­and­staðan kepp­ast svo við að skjóta í kaf. Það er ekki á bæt­andi á þá miklu óvissu sem framundan er. Þessum vinnu­brögðum verður að breyta ef ein­hver mögu­leiki er á sáttum. Að öðrum kosti munu stjórn­völd fá hreyf­ing­una og almenn­ing í fangið. Það verður ekki öfunds­vert vega­nesti inn í kosn­inga­árið.“

Ragnar segir að á næstu árum muni þurfa að end­ur­skoða grunn­kerfi og vinnu­mark­að­inn. Það verði ekki gert án aðkomu eða for­sendna verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. „Það er því ljóst að verk­efnin sem verka­lýðs­hreyf­ingin þarf að ráð­ast í á næstu miss­erum eru æði mörg og því ágætt á degi eins og í dag að minn­ast þeirra sem á undan hafa komið og rutt braut­ina.“

Vill upplýsa um hverjir kaupi og selji gjaldeyri

Í grein­inni skiptir Ragnar stefnu­málum VR upp í ann­ars vegar „Vörnina“ og hins vegar „Sóknina“. Á meðal þess sem telst til „Varn­ar­innar“ er að öllum mark­miðum Lífs­kjara­samn­ings­ins verði náð fyrir haustið, að Seðla­bank­inn noti sinn forða til að halda geng­inu stöð­ugu með gjald­eyr­is­forða eða höftum og að „opið og upp­lýst almenn­ingi hverjir eru að kaupa og selja gjald­eyri á Íslandi.“

Þá vill hann að vísi­tala neyslu­verðs til verð­trygg­ingar á lánum og leigu­samn­ingum verði fryst, að ákveðin skref verði tekin til að afnema verð­trygg­ingu neyt­enda­lána og að „fjár­mála­fyr­ir­tæki og stofn­anir skili vaxta­lækk­unum og lækkun á banka­skatti til neyt­enda.“ Ragnar vill enn fremur að beinar greiðslur í gegnum barna­bóta­kerfið og hús­næð­is­stuðn­ingur verði auk­inn, að greiðslur til líf­eyr­is­þega verða hækk­aðar og skerð­ingar þeirra lækk­aðar, að fast­eigna­gjöld, leik­skóla­gjöld og fæð­is­kostn­aður skóla­barna verði felld niður hjá for­eldrum barna sem eru atvinnu­lausir að hluta eða öllu leyti og að tekju­tengdar atvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar og mögu­leiki að vera á þeim í sex mán­uði eða lengur og við­mið­un­ar­tíma­bil varð­andi tekjur verði útvíkkað. Þá vill hann að allur stuðn­ingur hins opin­bera við fyr­ir­tæki verði þeim kvöðum háð að þau vinni ekki gegn sam­fé­lags­legum gildum og hags­munum almenn­ings.

Að peningar úr skattaskjólum verði ekki gjaldgengir

Til „Sókn­ar­innar“ telst að hlut­deild­ar­lánum verði komið á, að stofn­fram­lög í almenna íbúða­kerfið verði aukin, að opnað verði fyrir inn­göngu í fram­halds- og háskóla og á lána­mögu­leika og styrki í gegnum LÍN og verð­trygg­ing náms­lána verði felld niður eða þeim breytt í styrk. Ragnar vill líka stór­auka og flýta inn­viða­upp­bygg­ingu á vegum rík­is­ins, útvíkka „Allir vinna" átakið enn frekar, koma á fyr­ir­tækja­lýð­ræði með lögum þar sem starfs­fólki verði tryggt sæti í stjórnum fyr­ir­tækja og að ráð­ist verði í heild­ar­end­ur­skoðun á skatt­kerf­inu með auk­inn jöfnuð að leið­ar­ljósi.

Þá vill hann að starfs­mönnum fyr­ir­tækja verði boðið að taka þau yfir fari þau í þrot, að eft­ir­lit verði eflt með skattaund­anskotum og færslu fjár­muna til aflandseyja og að fjár­munir úr skatta­skjólum verði ekki gjald­gengir í íslensku hag­kerfi. End­ur­skoðun eigi að fara fram á auð­linda­stefnu þjóð­ar­innar og tryggja eign­ar­hald almenn­ings til fram­tíðar, að vinna verði hafin við að end­ur­skoða líf­eyris- og almanna­trygg­inga­kerfið og að umræða verði hafin um óskerta fram­færslu. Að lokum vill Ragnar þjóð­ar­á­tak í nýsköpun með áherslu, hags­muni og vel­ferð launa­fólks og umhverf­is­mál að leið­ar­ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár