Hópuppsögn hjá Icelandair Group

Icelandair Group, sem sótti sér 23 millj­arða króna í nýtt hlutafé fyrr í mán­uð­inum, hefur sagt upp 88 manns.

Icelandair Group hefur til­kynnt um upp­sagnir 88 starfs­manna félags­ins frá 1. októ­ber næst­kom­andi. Stærstur hluti hóps­ins eru flug­menn, eða 68, en auk þess var 20 starfs­mönnum af ýmsum öðrum sviðum félags­ins sagt upp. Í til­kynn­ingu segir að enn fremur muni nokkrir tugir starfs­manna ljúka tíma­bundnum ráðn­ing­ar­samn­ingum um kom­andi mán­aða­mót.

Icelandair Group segir að upp­sagn­irnar séu við­bragð við þeim sam­drætti sem verið hefur í flugi vegna hertra ferða­tak­mark­ana á landa­mærum hér á landi sem tóku gildi seinni­part­inn í ágúst. „Ljóst er að félagið stendur frammi fyrir áfram­hald­andi óvissu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í kjöl­far vel heppn­aðs hluta­fjár­út­boðs er félagið hins vegar vel í stakk búið til að kom­ast í gegnum þá óvissu sem framundan er og jafn­framt bregð­ast hratt við um leið og aðstæður leyfa. Félagið von­ast til að hægt verði að draga upp­sagnir til baka um leið og ástandið batnar og eft­ir­spurn eftir flugi tekur við sér á ný.“

Félagið hélt hluta­fjár­út­boð fyrr í þessum mán­uði. Icelandair Group ætl­aði sér að safna að minnsta kosti 20 millj­örðum króna í útboð­inu. Hægt yrði að hækka þá fjár­hæð í 23 millj­arða króna ef umfram­eft­ir­spurn yrð­i.

[adspot]Alls bár­ust yfir níu þús­und áskriftir upp á alls 37,3 millj­arða króna. Umfram­eft­ir­spurn var því 85 pró­sent, bæði frá fag­fjár­festum og almennum fjár­fest­um. Nýjum hlutum mun líka fylgja 25 pró­sent áskrift­ar­rétt­indi, eða sem nemur 5,75 millj­örðum hluta. Það þýðir að hver og einn sem keypti mun geta bætt við sig 25 pró­sent af því sem við­kom­andi skráði sig fyrir í við­bót.

Flestar þeirra efna­hags­að­gerða sem íslenska ríkið hefur gripið til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa auk þess verið sniðnar að Icelanda­ir Group. Félagið var það ein­staka fyr­ir­tæki sem nýtti mest allra hluta­bóta­leið stjórn­valda. Í mars og apríl fengu launa­menn hjá þeim félögum sem mynda Icelanda­ir-­sam­stæð­una alls um 1,1 millj­arð króna í greiðslur frá Vinnu­mála­stofnun vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls. Icelandair nýtti líka leið­ina í maí en ekki hefur verið greint frá því hversu háar greiðslur Vinnu­mála­stofn­unar vegna starfs­manna sam­stæð­unnar námu þann mán­uð.

Þá fóru rúm­lega 3,4 millj­arðar króna af hinum svoköll­uðu upp­sagn­ar­styrkj­un­um, sem sam­tals námu átta millj­örðum króna, til Icelandair Group eða tengdra aðila, eða um 43 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­inn­ar vegna upp­sagna á fjórða þús­und starfs­manna.

Til við­bótar við allt ofan­greint þá hafa rík­is­bank­arnir tveir heitið því að leggja fram rekstr­ar­línu upp á sam­tals sjö millj­arða króna sem Icelandair mun geta dregið á. Íslands­banki leggur til fjóra af þeim millj­örðum króna en Lands­bank­inn þrjá.

Icelandair mun auk þess fá þrauta­vara­lána­línu upp á 16,5 millj­arða króna, sem félagið getur dregið á ef allur annar pen­ingur er búinn. Íslands­banki og Lands­bank­inn munu skipta því láni á milli sín, og lána 8,25 millj­arða króna hvor ef á lín­una reyn­ir.

Alþingi sam­þykkti nýverið að ábyrgj­ast 90 pró­sent lána­lín­unn­ar, eða tæp­lega 15 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár