„Í öllum kreppum leita fjármagnseigendur tækifæra til að auka auð sinn“

Forseti ASÍ segir að eina aflið gegn græðgi fjár­magns­eig­enda sé sam­staða fólks og bar­átta fjölda­hreyf­inga. Aldrei hafi verið mik­il­væg­ara en einmitt núna að verja þau rétt­indi sem búið sé að semja um.

Drífa Snædal er forseti ASÍ.
Drífa Snædal er for­seti ASÍ. Mynd: Skjáskot

„Í öllum kreppum leita fjár­magns­eig­endur tæki­færa til að auka auð sinn og kom­ast yfir fyr­ir­tæki, stofn­anir og jafn­vel heim­ili á bruna­út­sölu. Eina aflið gegn slíkri græðgi er sam­staða fólks og bar­átta fjölda­hreyf­inga. Við munum berj­ast gegn því að end­ur­reisnin verði byggð á að sam­eignir okkar verði seldar eða að slegið verði af kröfum um laun og aðbúnað vinn­andi fólks. Það hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en einmitt núna að verja þau rétt­indi sem við höfum samið um. Við viljum ekki ástand þar sem atvinnu­laust fólk er svo örvænt­ing­ar­fullt að það und­ir­býður hvert annað í þeirri von að fá ein­hvern pen­ing í vas­ann. Eða að slakað sé á öryggi vinn­andi fólks í skjóli ástands­ins. Þetta er raun­veru­leg hætta hér á landi og um heim allan.“

Þetta segir Drífa Snædal, for­seti ASÍ, í ávarpi sínu vegna 1. maí, bar­áttu­dags verka­lýðs­ins. Ávarpið, sem var tekið upp að þessu sinni vegna þess ástands sem varir út af COVID-19 far­aldr­inum, er hægt að horfa á í heild sinni neðst í frétt­inni.

Hvorki gerlegt né æskilegt að leita í sama farið

Drífa segir þar að hér­lendis hafi nálg­unin við far­ald­ur­inn­verið skyn­sam­legt. Leitað hafi verið til fólks sem besta þekk­ingu hafi á far­öldrum og almanna­ör­yggi og fyr­ir­séð er að geta andað aðeins léttar, þó fyr­ir­var­arnir séu enn margir og verði áfram. „Alltaf búum við vel að því að eiga öfl­ugt heil­brigð­is­starfs­fólk og sam­eig­in­lega inn­viði, en aldrei hefur það verið jafn ljóst og nú. Við erum komin í þá stöðu á undan flestum ríkjum að geta ein­hent okkur í upp­bygg­ingu og næstu skref.“

[adspot]Það sé ein­kenn­andi að þau sam­fé­lög sem hafi náð að vernda fólk best gegn veirunni séu þau lönd þar sem sam­fé­lags­hugsun sé ríkj­andi í stað þeirrar hugs­unar að hver sé sjálfum sér næstur. „Við stöndum frammi fyrir efna­hag­skreppu og þá reynir á sam­fé­lags­hugs­un­ina. Við erum ekki öll á sama báti, óhugn­an­lega margir hafa misst vinnu og enn fleiri orðið fyrir skertum tekjum. En þó við séum ekki á sama báti getum við sann­mælst um að tryggja fram­færslu fólks, grunn hins sið­mennt­aða sam­fé­lags, að fólk hafi til hnífs og skeiðar, þak yfir höf­uðið og geti notið lífs­ins gæða. Við stöndum frammi fyrir stórum ákvörð­unum um fram­tíð­ina.“

Í huga Drífu er hvorki ger­legt né æski­legt að leita í sama farið. „Leið­ar­stef okkar við upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins og atvinnu­lífs­ins á að vera að allir hafi fram­færslu; vinn­andi fólk, fólk í atvinnu­leit, öryrkjar, aldr­aðir og náms­menn. Ef við tryggjum ekki fram­færslu fólks verður kreppan dýpri og erf­ið­ari bæði fyrir ein­stak­linga og okkur sem sam­fé­lag. Fram­færslu­trygg­ing er því lyk­il­at­riði í vörn og við­spyrnu.“

Hún segir í ávarp­inu að Ísland sé fyr­ir­mynd ann­arra í við­brögðum við far­aldr­inum og hvetur til þess að Ísland verði líka fyr­ir­mynd í því hvernig landið byggi sig upp að nýju. „Við viljum byggja upp rétt­látt þjóð­fé­lag. Við skulum ein­setja okkur að eftir eitt ár, fyrsta maí árið 2021, verði búið að útrýma atvinnu­leysi með góðum og öruggum störfum. Hér verðum við í fullum gangi að skapa ný tæki­færi fyrir fólk og fyr­ir­tæki í mat­væla­fram­leiðslu, heil­brigð­is­þjón­ustu, menntun, tækni og nýsköpun. Við höfum styrkt okkar inn­viði og sam­eig­in­legar grunn­stoðir. Við getum horft stolt til baka þar sem lífs­kjörin voru varin, komið var í veg fyrir að reikn­ingnum væri velt yfir á heim­ilin og jöfn­uður hafður að leið­ar­ljósi. Við búum við lýð­ræð­is­legt og opið sam­fé­lag. Um þetta sam­ein­umst við í dag, á bar­áttu­degi verka­lýðs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár