Hærri upphæð greidd í atvinnuleysisbætur í dag en var greidd allt árið 2018

Bar­áttu­dagur verka­lýðs­ins fer fram í skugga meta­tvinnu­leysis á Íslandi. Rúmur fjórð­ungur vinnu­mark­að­ar­ins er atvinnu­laus að öllu leyti eða hluta. Um tólf millj­arðar verða greiddir út í bætur um mán­aða­mótin. Allt árið 2009 voru greiddir út 28 millj­arðar.

1. maí í fyrra fylktist fólk í kröfugöngur til að berjast fyrir bættum kjörum. Í dag blasir önnur mynd við og engin kröfugöngur haldnar vegna COVID-19 faraldursins.
1. maí í fyrra fylkt­ist fólk í kröfu­göngur til að berj­ast fyrir bættum kjörum. Í dag blasir önnur mynd við og engin kröfu­göngur haldnar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bar­áttu­dagur verka­lýðs­ins fer fram í skugga meta­tvinnu­leysis á Íslandi. Rúmur fjórð­ungur vinnu­mark­að­ar­ins er atvinnu­laus að öllu leyti eða hluta. Um tólf millj­arðar króna verða greiddir út í bætur um mán­aða­mótin. Allt árið 2009 voru greiddir út 28 millj­arðar.

Um 55 þús­und manns eru atvinnu­lausir að hluta eða öllu leyti eins og sakir standa. Í gær höfðu tæp­lega 36 þús­und umsóknir borist Vinnu­mála­stofnun um að fara á hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu, en í henni felst að hið opin­bera greiðir allt að 75 pró­sent af launum við­kom­andi upp á til­tek­inni upp­hæð gegn því að atvinnu­rek­andi greiði það sem upp á vantar og við­haldi þannig ráðn­ing­ar­sam­bandi.

Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag að stofn­un­inni reikn­ist til að um tólf millj­arðar króna verði greiddir út til atvinnu­lausra, og þeirra sem eru í skertu starfs­hlut­falli, um þessi mán­aða­mót.

[adspot]Sú upp­hæð er hærri en heild­ar­greiðslur vegna greiðslu atvinnu­leys­is­bóta nam á öllu árinu 2018, þegar Vinnu­mála­stofnun greiddi alls út ell­efu millj­arða króna í slíkar bætur á öllu árinu til alls 9.853 manns vegna atvinnu­leysis í lengri eða skemmri tíma, sam­kvæmt tölum sem birt­ust í síð­ustu útgáfu Tíundar, frétta­blaðs rík­is­skatt­stjóra. Frá banka­hruni höfðu ekki jafn fáir ein­stak­lingar fengið greiddar bætur og á því ári. Metárið í útgreiðslu atvinnu­leys­is­bóta hingað til var árið 2009, þegar alls voru greiddar út 27,9 millj­arðar króna í bætur til 29.271 manns. Viðbúið er að Vinnu­mála­stofnun muni greiða út þá upp­hæð á rúmum tveimur mán­uðum á þessu ári.

Þúsundum sagt upp í áður óséðum hópuppsögnum

Fjöldi þeirra sem eru alveg án atvinnu hefur rokið upp síð­ustu daga, sér­stak­lega eftir að rík­is­stjórnin kynnti á þriðju­dag úrræði sem felur í sér að rík­is­sjóður muni greiða stóran hluta launa starfs­fólks á upp­sagn­ar­fresti. Ekkert frum­varp hefur verið lagt fram um málið og einu upp­lýs­ing­arnar sem liggja fyrir um fram­kvæmd­ina eru þær sem komu fram í orðum ráða­manna á kynn­ing­unni á þriðju­dag. Þar sagði að rík­is­stuðn­ing­ur­inn verði í formi greiðslu að hámarki 633 þús­und krónur á mán­uði í allt að þrjá mán­uði auk orlofs og muni ein­skorð­ast við fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir að lág­marki 75 pró­sent tekju­falli og sjá fram á áfram­hald­andi tekju­fall að minnsta kosti út þetta ár. Hámarks­hlut­fall stuðn­ings rík­is­ins verður 85 pró­sent en stjórn­völd áætla að fjórð­ungur fyr­ir­tækja hafi orðið fyrir nægi­lega miklu tekju­tapi til að geta nýtt þennan styrk.

Eftir að yfir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar var gefin út hrönn­uð­ust til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir inn til Vinnu­mála­stofn­unar. Nú gátu enda fyr­ir­tæki sagt upp fólki án þess að bera kostnað af upp­sagn­ar­fresti sem flest þeirra áttu ekki fyrir. Samhliða var, að minnsta kosti í sumum til­fellum, eigið fé og hlutafé varið. Eigendur fyr­ir­tækja gátu haldið eign sinni, sem oft á tíðum felur í sér allskyns atvinnu­tæki eða hús­næði auk við­skipta­sam­banda og vöru­merkja, en losað sig undan stærsta kostn­að­ar­liðnum í rekstr­inum. Þessi aðferð hefur verið kölluð að „leggj­ast í hýði“.

Í apríl urðu hóp­upp­sagnir alls 51 tals­ins. Í þeim var 4.210 starfs­mönnum sagt upp. Stærsta ein­staka upp­sögnin var hjá Icelandair Group, sem sagði upp 2.140 manns til við­bótar við þá 230 sem félagið sagði upp í lok mars. Líklegra er enn ekki að þessar tölur muni hækka. Nær öll fyr­ir­tækin sem til­kynntu hóp­upp­sagnir starfa í ferða­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár