BÍ og Birtingur undirrita nýjan kjarasamning

Nýr kjara­samn­ingur milli Blaða­manna­fé­lags Íslands og útgáfu­fé­lags­ins Birtings var und­ir­rit­aður nú í hádeg­inu með fyr­ir­vara um sam­þykki samn­inga­nefndar BÍ og félags­manna BÍ í Birtingi og stjórnar Birtings.

Nýr kjara­samn­ingur milli Blaða­manna­fé­lags Íslands og útgáfu­fé­lags­ins Birtings var und­ir­rit­aður nú í hádeg­inu með fyr­ir­vara um sam­þykki samn­inga­nefndar BÍ og félags­manna BÍ í Birtingi og stjórnar Birtings. Þetta kemur fram í frétt BÍ.

Útgáfu­fé­lagið Birt­ingur gefur út tíma­ritin Gest­gjafann, Vikuna, Hús og Hýbýli og dag­blaðið Mannlíf og er stór vinnu­staður blaða­manna en samn­inag­við­ræður félags­ins og Blaða­manna­fé­lags­ins tóku viku, sam­kvæmt BÍ.

Kynning og atkvæða­greiðsla um samn­ing­inn fer fram í hádeg­inu á morgun, en frestur til að til­kynna um afgreiðslu kjara­samn­ings­ins er til klukkan 17:00 á morgun, þriðju­dag­inn 29. októ­ber. Nýi kjara­samn­ing­ur­inn verður birtur þegar hann hefur verið kynntur og afgreiddur af þeim blaða­mönnum sem hann tekur til.

[links]Í frétt BÍ kemur enn fremur fram að samn­ing­ur­inn gildi í þrjú ár til 1. nóv­em­ber 2022 og feli meðal ann­ars í sér gild­is­töku nýrrar launa­töflu, grunn­kaups­hækk­anir, hækkun á end­ur­greiddum kostn­aði, end­ur­skoðun á vakta­á­lagi og gild­is­töku á samn­ingi um fram­sal á höf­und­ar­rétti, auk fleiri smærri atriða. Samn­ing­ur­inn sé vel innan þeirrar launa­stefnu sem mótuð hefur verið á árinu á almennum vinnu­mark­aði.

Viðræður standa yfir við aðra smærri miðla

Þá segir að við­ræður standi yfir við aðra smærri miðla og standa vonir til að þær skili nið­ur­stöðu fljót­lega.

„Samn­inga­fundur hefur verið boð­aður hjá rík­is­sátta­semj­ara á morgun klukkan 10:30 með Blaða­manna­fé­lag­inu og þeim miðlum sem kosið hafa að standa innan Samtaka atvinnu­lífs­ins og hafa afhent þeim samn­ings­um­boð. Ekkert hefur hreyfst í samn­inga­málum þess­ara aðila þrátt fyrir sjö mán­aða samn­inga­við­ræður og skjal­fest er hjá rík­is­sátta­semj­ara með til­boði SA fyrir hönd Morg­un­blaðs­ins, Frétta­blaðs­ins, RÚV og Sýnar að blaða­mönnum eru boðnar minni kjara­bætur en samist hefur um við aðra á árinu. Atkvæða­greiðsla um vinnu­stöðv­anir blaða­manna á þessum miðlum fer fram á mið­viku­dag­inn kemur, 30. októ­ber,“ segir í frétt­inni.

Hjálmar Jónsson, for­maður BÍ, seg­ist vera gríð­ar­lega ánægður með að nást hafi samn­ingar við Birting og bindur hann vonir við að samn­ingar náist á næstu dögum við aðra smærri miðla. „Það skiptir höf­uð­máli í þeirri erf­iðu stöðu sem fjöl­miðlar eru í, að taka höndum saman, sækja fram, og nýta þau tæki­færi sem fyrir hendi eru. Til þess þarf að sýna frum­kvæði og hug­rekki og verja lág­marks­kjör. Það hefur tek­ist með þessum samn­ingi að mínu mati og á Birt­ingur heiður skil­inn að eiga þar hlut að máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár