„Komið að ögurstundu fyrir blaðamenn“

Stjórn og samn­inga­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur sam­þykkt að efna til atkvæða­greiðslu um fjórar vinnu­stöðv­anir í nóv­em­ber næst­kom­andi.

Stjórn og samn­inga­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur sam­þykkt að efna til atkvæða­greiðslu mið­viku­dag­inn 30. októ­ber næst­kom­andi um fjórar vinnu­stöðv­anir í nóv­em­ber. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BÍ í dag en Hjálmar Jónsson, for­maður félags­ins, skrifar undir hana.

Þá kemur fram í til­kynn­ing­unni að nú sé komið að ögur­stundu. Ekki sé um annað að ræða en að efna til slíkrar atkvæða­greiðslu.

Verk­fallið tekur ein­göngu til net­miðla og ljós­mynd­ara og töku­manna í fyrstu þremur skipt­unum og leng­ist um fjórar klukku­stundir í hvert skipti, sam­an­ber með­fylgj­ani atkvæða­seðil. Fjórða verk­fallið tekur ein­göngu til þeirra sem starfa á prent­miðlum og ljós­mynd­ara og töku­manna, en net­miðl­arnir verða í loft­inu.

Verkfallið tekur einungis til fjögurra fyrirtækja

Verk­fallið tekur til þeirra fjög­urra fyr­ir­tækja sem eru innan Samtaka atvinnu­lífs­ins: Árvakurs, Torgs, Sýnar og RÚV.

Kjör­fundur hefst klukkan 9:30. Um morg­un­inn verður farið á milli þess­ara fjög­urra vinnu­staða; á Morg­un­blað­inu, 9:30, á RÚV 10:30, á Sýn 11:30 og á Frétta­blað­inu 12:30. Frá 13:30 og til 17:00 verður kjör­fundur í hús­næði félags­ins að Síð­un­múla 23 og talið verður strax að loknum kjör­fundi.

„Tíu mán­uðir eru síðan síð­ast­gild­andi kjara­samn­ingur lauk göngu sinni og sjö mán­uðir síðan kjara­samn­ingar voru gerðir á almennum vinnu­mark­aði, sem eiga að vera stefnu­mark­andi fyrir kaup og kjör í land­inu. Þrátt fyrir það eigum við það skjal­fest í til­boði atvinnu­rek­enda frá 26. sept­em­ber síð­ast­liðnum að það er verið að bjóða okkur minna en öllum öðrum, auk þess sem gerðar eru kröfur til þess að við afsölum okkur ýmsum rétt­indum sem við höfum áunnið okkur í gegnum tíð­ina,“ segir í til­kynn­ingu BÍ.

41 ár síðan BÍ efndi síðast til verkfallsátaka

Jafn­framt segir í til­kynn­ing­unni að það hafi tekið félagið mánuð, frá því slitn­aði upp úr, að ákveða aðgerðir, „þannig að ekki verðum við sökuð um óbil­girni og ekki er hægt að þakka atvinnu­rek­endum okkar fyrir frum­kvæði eða samn­ings­vilja. Senni­lega trúa þeir því ekki að það komi til aðgerða, enda blaða­menn sein­þreyttir til vand­ræða og van­ari því að standa á hlið­ar­lín­unni og segja sög­una en vera sagan. Það eru enda 41 ár síðan Blaða­manna­fé­lagið efndi síð­ast til verk­fallsá­taka og það var aðeins í annað sinn í meira en 120 ára sögu félags­ins að gripið er til slíks. Nú erum við að skrifa fram­hald þeirrar sögu og við reynum að gera það þannig að það verði okkur til sóma og íslensku sam­fé­lagi til heilla.“

Verk­fallið tekur, eins og áður segir, ein­göngu til net­miðla og ljós­mynd­ara og töku­manna í fyrstu þremur skipt­unum. Fjórða verk­fallið tekur ein­göngu til þeirra sem starfa á prent­miðlum og ljós­mynd­ara og töku­manna, en net­miðl­arnir verða í loft­inu.

Félagið stendur vel fjárhagslega

„Þannig und­ir­strikum við mik­il­vægi upp­lýs­inga­kerf­is­ins og nauð­syn þess að það sé ávallt starf­andi og deilum byrð­unum. Stjórn og samn­inga­nefnd hefur ákveðið að bæta að fullu úr vara­sjóði félags­ins það launatap sem þeir verða fyrir sem taka þátt í verk­fall­inu. Við eigum sem betur fer nokkuð digra sjóði eftir fjöru­tíu ár og félagið stendur vel fjár­hags­lega. Þar til við­bótar hef ég fengið stað­fest að tæp­lega 50 þús­und félagar okkar á Norð­ur­lönd­unum standa með okkur og munu veita okkur fjár­hags­legan stuðn­ing drag­ist verk­fallið á lang­inn sam­kvæmr samn­ingi þar um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur enn fremur fram að ef þeir sem treyst er fyrir rekstri fjöl­miðla legðu sig fram að ein­hverju marki með sama hætti og blaða­menn gera á hverjum ein­asta degi í vinnu sinni, væri þessi alvar­lega staða ekki uppi. „Við hljótum að vona að það standi til bóta svo skaði vegna átaka verði sem minnstur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár