Hafna ásökunum Vilhjálms um að Landsvirkjun sé að „slátra“ Elkem

Land­virkjun hafnar því að sýna stór­iðju­fyr­ir­tækjum óbil­girni með því að selja raf­orku á hærra verði til þeirra en áður. Vil­hjálmur Birg­is­son vill að Lands­virkjun dragi úr arð­semi sinni til að bæta rekstr­ar­skil­yrði Elkem og Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga.

Vilhjálmur Birgisson, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness.
Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness. Mynd: Bára Huld Beck

„Lands­virkjun er falið að semja fyrir hönd þjóð­ar­innar við alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki um sölu á end­ur­nýj­an­legri orku. Því fylgir mikil ábyrgð, þar sem um er að ræða eina mik­il­væg­ustu við­skipta­samn­inga sem gerðir eru á Íslandi og eru miklir hags­munir undir. Að und­an­förnu höfum við legið end­ur­tekið undir ámæli frá for­manni Verka­lýðs­fé­lags Akraness fyrir að ætla að „slátra“ við­skipta­vinum okkar eins og Elkem með óbil­girni í samn­inga­við­ræðum. Ekkert er fjær sanni.“

[links]Þetta segir í stöðu­upp­færslu á Facebook sem Lands­virkjun, orku­fyr­ir­tæki í 100 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins, birti í dag.

Tilefnið eru ummæli Vil­hjálms Birg­is­sonar, for­manns Verka­lýðs­fé­lags Akraness, um raf­orku­samn­inga sem Lands­virkjun hefur gert við Elkem og Norðurál, sem hefur starf­semi á Grund­ar­tanga en starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins eru að uppi­stöðu félags­menn Vil­hjálms.

Vil­hjálmur ásak­aði Lands­virkjun um óbil­girni gagn­vart Elkem í stöðu­upp­færslu á Facebook þann 21. ágúst vegna hækk­unar á raf­orku­verði til fyr­ir­tæk­is­ins í nýjum samn­ingi sem tók gildi 1. apríl 2019. Þar fjall­aði hann líka um end­­ur­nýj­aðan samn­ing við Norðurál tekur gildi í nóv­­em­ber 2019 og gildir til loka árs 2023. Í stöðu­upp­færsl­unni kom fram að Vil­hjálmur ótt­að­ist um starfs­ör­yggi félags­manna sinna og að hann vildi að Lands­virkjun myndi nið­ur­greiða störf hjá stór­iðju­fyr­ir­tækj­unum tveimur með því að stilla arð­semi sinni af raf­orku­sölu í hóf.

[adspot]Hörður Arnarson svar­aði honum í grein sem birt­ist í Kjarn­anum dag­inn eftir. Þar hafn­aði hann því að samn­ing­arnir væru ósann­gjarnar og sagði að þeir væru þvert á móti sann­gjarnir og sam­keppn­is­hæfir. Auk þess sagði hann að það væri engin „ástæða fyrir aðila, sem standa utan samn­ings­sam­bands fyr­ir­tækj­anna, að ger­ast hags­muna­gæslu­menn alþjóð­legra stór­iðju­fyr­ir­tækja á opin­berum vett­vangi í samn­inga­við­ræðum við Lands­virkjun um raf­orku­verð. Þau eru full­fær um að gæta sinna hags­muna sjálf.“

Vill að íslenskir stjórnmálamenn grípi til aðgerða

Í byrjun síð­ustu viku var Vil­hjálmur í við­tali á Bylgj­unni þar sem hann ræddi um ótta sinn við að gríð­ar­leg hækkun á raf­orku­verði til Norð­ur­áls og Elkem Ísland á Grund­ar­tanga „muni ógna atvinnu­ör­yggi og lífs­við­ur­væri minna félags­manna.“

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, kom í við­tal í saman þátt, Reykja­vík síð­degis, dag­inn eftir til að svara fyrir ávirð­ingar Vil­hjálms og hafn­aði þeim enn og aftur.

Í pistli sem Vil­hjálmur skrif­aði í kjöl­farið, þar sem hann gagn­rýnir Hörð harð­lega, segir hann meðan ann­ars að það sé „eins og for­stjóri Lands­virkj­unar átti sig ekki á hlut­verki for­ystu­manna í stétt­ar­fé­lögum, en eitt af aðal­störfum okkar er að verja atvinnu­ör­yggi og lífs­við­ur­væri okkar félags­manna og það er ég að gera, enda er klár­lega verið að ógna lífs­við­ur­væri þús­unda fjöl­skyldna í þessum iðn­aði[...]ú er tími til kom­inn að íslenskir stjórn­mála­menn og stjórn­völd grípi í taumana í þessu máli áður en það verður of seint og þús­undir fjöl­skylda missi lífs­við­ur­væri sitt og leggja afkomu sveit­ar­fé­laga sem byggja tekju­stofna sína á þessum iðn­aði nán­ast í rúst.“

Viðskiptastríðið lækkar afurðaverð

Í stöðu­upp­færslu Lands­virkj­unar fyrr í dag segir að mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins í þeim samn­ingum sem gerðir hafa verið við Elkem og Norðurál sé að bjóða sam­keppn­is­hæf kjör, sam­bæri­leg því sem best ger­ist ann­ars staðar. „Við höfum áður sagt að samn­ingur við Elkem á Grund­ar­tanga, eftir ákvörðun gerð­ar­dóms, feli í sér raf­magns­verð sem nái ekki með­al­kostn­að­ar­verði virkj­ana okkar. Fram hafa komið stað­hæf­ingar um að þar höfum við ein­ungis átt við kostn­að­ar­verð nýrra virkj­ana­kosta, en það er rangt. Raf­orku­verð í nýjum samn­ingi Elkem nær hvorki kostn­að­ar­verði núver­andi virkj­ana Lands­virkj­unar né nýrra virkj­ana­kosta.

Við höfum einnig sagt að samn­ingur Elkem sé á meðal þeirra hag­stæð­ustu sem í gildi séu í heim­inum. Fram hafa komið stað­hæf­ingar um að rík­is­styrkir séu ekki séu teknir með við sam­an­burð okkar, en það er rangt. Grein­ingar Lands­virkj­unar eru unnar í sam­vinnu við stór alþjóð­leg ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í grein­ingum af þessu tagi. Í þeim sam­an­burði tökum við til­lit til rík­is­styrkja sem fyr­ir­tæki njóta, m.a. í Noregi. Að teknu til­liti til alls þessa er raf­orku­samn­ingur Elkem einn sá hag­stæð­asti sem er í boði.

Hafa ber í huga að rekstr­ar­um­hverfi stór­iðju­fyr­ir­tækja um allan heim er krefj­andi um þessar mundir og þar með talið á Íslandi – ekki vegna raf­orku­verðs Lands­virkj­unar – heldur fyrst og fremst vegna lágs afurða­verðs sem má meðal ann­ars rekja til við­skipta­stríðs Banda­ríkj­anna og Kína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár