Vill að Landsvirkjun niðurgreiði störf í áliðnaðinum

Formaður Verka­lýðs­fé­lags Akraness ótt­ast um starfs­ör­yggi félags­manna sinna vegna samn­inga Lands­virkj­unar við Elkem Ísland á Grund­ar­tanga og Norðurál.

Vilhjálmur Birgisson
Vil­hjálmur Birg­is­son

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, telur orku­stefnu Lands­virkj­unar byggja á græðgi og ein­okun sem ógni lífs­við­ur­væri fólks á Vest­ur­landi og sér­stak­lega Akur­nes­ingum og í nær­sveitum. Frá þessu greindi hann í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í gær.

Hann segir að með hækkun raf­orku­verðs og vegna nýrra raf­orku­samn­inga Lands­virkj­unar við Elkem Ísland á Grund­ar­tanga og Norðurál þá sé atvinnu­ör­yggi félags­manna hans veru­lega ógnað.

„Það er morg­un­ljóst í mínum huga að atvinnu­ör­yggi minna félags­manna er ógnað veru­lega í ljósi þess að raf­orkan er að hækka bæði hjá Elkem og Norð­ur­áli og það á sama tíma og verð á þeirra afurðum hefur lækkað mikið en nú er álverið t.d. í ein­ungis rétt rúmum 1700 doll­urum fyrir tonnið sem er sögu­legu lágt. Nýr samn­ingur tók gildi hjá Elkem 1. apríl og mun raf­orku­verð hækka upp undir 1,3 millj­örðum hjá Elkem á ári sem þýðir að fyr­ir­tækið mun greiða um 4,5 millj­arða á ári fyrir raf­ork­una eftir hækkun. Rétt er að benda sér­stak­lega á að þessi hækkun uppá 1,3 milj­arða er langtum meira en með­al­tals­hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið á síð­ustu árum, sem er um 500 millj­ónir,“ skrifar Vil­hjálmur.

Óttast að Elkem hætti starfsemi hér á landi

Hann telur jafn­framt að raf­orku­samn­ing­ur­inn við Elkem muni í besta falli valda stór­felldum nið­ur­skurði með til­heyr­andi upp­sögnum og ham­förum fyrir félags­menn hans sem starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. „Ég reyndar ótt­ast inni­lega að innan ekki langs tíma muni eig­endur Elkem taka ákvörðun um að loka og hætta starf­semi hér á landi. Enda ljóst að þessi gríð­ar­lega raf­orku­hækkun uppá 1,3 millj­arð á ári mun kippa öllum rekstr­ar­for­sendum undan fyr­ir­tæk­inu.“

Vil­hjálmur fjallar um afkomu­tölur Lands­virkj­unar í stöðu­upp­færslu sinni. „Það er óhætt að segja að afkomu­tölur hjá Lands­virkjun fyrstu 6 mán­uð­ina séu glæsi­legar, en hagn­aður nam 8,4 millj­örðum á fyrstu 6 mán­uðum þessa árs og á sama tíma hefur Lands­virkjun einnig greitt niður skuldir fyrir rúma 15 millj­arða. Það stefnir sem­sagt í að árs­hagn­aður Lands­virkj­unar verði 17 millj­arðar og á sama tíma og þessi mikli hagn­aður á sér stað greiðir Lands­virkjun einnig niður skuldir fyrir 15 millj­arða.“

Fyrirtækin á Grundartanga lífæð og fjöregg þeirra Vestlendinga

Lands­virkjun og Norð­urál Grund­ar­tangi ehf. náðu sam­komu­lagi um að end­ur­nýja raf­orku­samn­ing fyr­ir­tækj­anna fyrir 161 MW í maí árið 2016. End­ur­nýj­aður samn­ingur var tengdur við mark­aðs­verð raf­orku á Nord Pool raf­orku­mark­aðnum og kemur það í stað álverðsteng­ingar í gild­andi samn­ingi.

[links]Hinn end­ur­nýj­aði samn­ingur er til fjög­urra ára og hljóðar upp á 161 MW, eins og áður segir, sem er nærri þriðj­ungur af orku­þörf álvers Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga. End­ur­nýj­aður samn­ingur tekur gildi í nóv­em­ber 2019 og gildir til loka árs 2023. Núgild­andi samn­ingur verður áfram í gildi til loka októ­ber næst­kom­andi.

Fram kom í fréttum árið 2016 að deila Lands­virkj­unar og Norð­ur­áls hefði staðið í nokkurn tíma. Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, gagn­rýndi Norð­urál harð­lega fyrir að hafa reynt að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda orku­verði til sín sem lægst­u.

Vil­hjálmur fjallar um þennan raf­orku­samn­ing Norð­ur­áls og Lands­virkj­unar, í stöðu­upp­færslu sinni, sem mun taka gildi þann 1. nóv­em­ber næst­kom­andi. „Mun þessi eini samn­ingur hækka sam­kvæmt mínum útreikn­ingum raf­orku­verðið til Norð­ur­áls um 4 millj­arða á ári, til við­bótar þeim 12 til 15 millj­örðum sem fyr­ir­tækið er að greiða í dag. Það er ljóst að 4 millj­arða hækkun á raf­orku­verði á ári, mun kalla á gríð­ar­lega hag­ræð­ingu og nið­ur­skurð og ég ótt­ast inni­lega að það muni bitna á hags­munum og lífs­við­ur­væri minna félags­manna sem og á sam­drætti í verslun og þjón­ustu hér á Vest­ur­landi, enda eru fyr­ir­tækin á Grund­ar­tanga lífæð og fjöregg okkar Vest­lend­inga,“ skrifar hann.

Unnið markvisst að því að slátra fyrirtækjum í orkufrekum iðnaði

Vil­hjálmur seg­ist ekki fara í graf­götur um að hann telji að unnið sé mark­visst að því að slátra fyr­ir­tækjum í orku­frekum iðn­aði með þessum rekstr­ar­hækk­unum í kringum raf­ork­una og muni það bitna á lífs­við­ur­væri þús­unda fjöl­skyldna.

„Maður hlýtur að spyrja sig hvort Lands­virkjun og stjórn­völd séu mark­visst á þeirri veg­ferð að kippa öllum rekstr­ar­for­sendum undan fyr­ir­tækjum í orku­frekum iðn­aði og segja svo eftir ein­hver ár þegar fyr­ir­tækin gef­ast upp eitt af öðru og til­kynna um lokun að nú verði að leggja sæstreng til Íslands í hvelli því það sé til svo mikið af umframorku ónotað í kerf­inu.“

Áhyggjur lúta ekki að eigendum fyrirtækjanna

Vil­hjálmur tekur það fram að þessar ábend­ingar og áhyggjur hans lúti að hags­munum félags­manna hans en alls ekki að eig­endum þess­ara fyr­ir­tækja. Hann segir að sagan kenni fólki það að þegar svo gríð­ar­legur kostn­að­ar­auki er lagður á fyr­ir­tæki þá muni það bitna á atvinnu­ör­yggi, ekki bara hjá þeim starfs­mönnum sem starfa beint hjá þessum fyr­ir­tækjum heldur einnig hjá þeim hund­ruðum starfs­manna sem starfa hjá verk­tökum og þjón­ustu­fyr­ir­tækjum og þjón­usta fyr­ir­tæki í orku­frekum iðn­aði.

„Að sjálf­sögðu er ekk­ert eðli­legra en að orku­frekur iðn­aður greiði sann­gjarnt verð fyrir ork­una öllu sam­fé­lag­inu til góða, en það má hins vegar ekki vera þannig að Lands­virkjun geti í ljósi algerrar ein­ok­unar stillt fyr­ir­tækjum upp með þeim hætti að öll fram­legð þeirra sé kippt í burtu sem leiðir til þess að atvinnu­ör­yggi þús­und starfs­manna í þessum geira er stefnt í voða,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár