Norðurál greiðir minnst fyrir raforkuna en álverið í Straumsvík mest

Norðurál greiðir lægsta raf­orku­verðið til Lands­virkj­unar af álf­ram­leið­endum á Íslandi, raf­orku­verð til Fjarð­ar­áls er aðeins hærra og hæst er raf­orku­verðið til álvers­ins í Straums­vík sem Rio Tinto Alcan rekur. Er þetta nið­ur­staða athug­unar Ketils Sig­ur­jóns­sonar sem haldið hefur úti Orku­blogg­inu um langt skeið. Norðurál er rekið af Century Alu­minium og Fjarð­arál er rekið af Alcoa.

Ketill birti í gær ítar­lega grein um raf­orku­verð Lands­virkj­unar til álver­anna þriggja á árunum 2005 til 2014. Í grein­inni segir að mjög lágt raf­orku­verð til Norð­ur­áls og Fjarð­ar­áls valdi því að með­al­verð raf­orku til álvera á íslandi sé með því allra lægsta í heim­inum. Ástæða þess að raf­orku­verðið sé hæst til álvers­ins í Straums­vík er nýr raf­orku­samn­ingur frá árinu 2010. Hann er ólíkur hinum samn­ing­unum sem gerðir hafa verið við álf­ram­leið­endur því verðið fyrir raf­orku er ekki tengt álverði heldur banda­rískri neyslu­vísi­tölu. „Raf­orku­verðið til Straums­víkur (RTA) er líka fremur hóg­vært. Og er t.d. tals­vert mikið lægra en með­al­verð raf­orku til álvera í Banda­ríkj­unum og er álíka eins og með­al­verð á raf­orku til álvera í Afríku,“ segir Ketill einnig í færsl­unni.



Grafið hér að ofan er birt á Orku­blogg­inu og sýnir með­al­verð Lands­virkj­unar á raf­orku til hvers og eins álver­anna á tíma­bil­inu 2005 til 2014. „Á graf­inu er í öllum til­vikum sýnt með­al­verð yfir hvert ár. Öll raf­orku­verð sem þarna eru sýnd og fjallað er um í þess­ari grein eru með flutn­ingi.“ segir í grein­inni. Þar sést að álverið í Straums­vík greiðir hæsta raf­orku­verðið og nálg­ast 35 doll­ara fyrir hverja megawattsstund (MWst). „Árið 2014 greiddi Straums­vík verð sem var tæp­lega 45% hærra en orku­verðið sem Fjarðaál greiddi og nálægt 60% hærra verð en álver Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga greiddi.


Með­al­verð Lands­virkj­unar á hverri seldri MWst til álvera á Íslandi þetta sama ár (2014) var rétt rúm­lega 26 USD. Sam­bæri­legt verð til álvera í Afríku það ár var um 30% hærra,“ segir í grein­inni.


Ketill segir tvær meg­in­skýr­ingar á því hvers vegna með­al­verð á raf­orku til álvera á Íslandi er ennþá lágt í alþjóð­legum sam­an­burði. Helsta skýr­ingin sé risa­samn­ingur sem gerður var við Alcoa (Fjarðaál) árið 2003, þegar samið var um verð tölu­vert langt undir með­al­verði á raf­orku til álvera á þeim tíma. „Hin skýr­ingin á umræddu lágu með­al­verði hér er sú að raf­orku­samn­ingar við Century Aluminum (Norðurál) draga með­al­verðið hér líka niður (samn­ingur Lands­virkj­unar við Century er tví­skiptur og er ann­ars vegar frá 1997 og hins vegar frá 1999, en að auki eru HS Orka og OR/ON að selja raf­orku til Century). Eins og áður sagði, þá nýtur Norðurál (Century) lægsta raf­orku­verðs­ins af álver­unum hér. Það eru sem sagt einkum raf­orku­samn­ing­arnir við þessi tvö álfyr­ir­tæki, Alcoa og Century, sem draga með­al­verðið hér ansið langt niður.


Það er athygl­is­vert að samn­ingur Lands­virkj­unar við Alcoa hljóð­aði upp á svo til sama raf­orku­verð eins og kveðið er á um í samn­ingi Lands­virkj­unar við Century 1997/1999 - að teknu til­liti til breyt­inga á banda­rískri neyslu­vísi­tölu (CPI). Þegar litið er til ann­arra orku­samn­inga sem gerðir voru við ný álver upp úr alda­mót­unum sést að þessi samn­ingur Alcoa frá 2003 er fyr­ir­tæk­inu óvenju hag­stæður. Og mögu­lega tryggir hann að Alcoa sé þarna með í sínum höndum ein­hverja eft­ir­sótt­ustu fram­leiðslu­ein­ing­una í álbrans­anum öllum.“


Ketill segir upp­lýs­ing­arnar sem fram koma í grein­inni um raf­orku­verð byggja á fjöl­mörgum gögnum úr ólíkum áttum. „Þar má nefna árs­skýrslur og árs­reikn­inga við­kom­andi fyr­ir­tækja, álit Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) og skýrslur erlendra grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækja. Sum þess­ara gagna eru opin­ber, en önnur ekki. Í sumum til­vikum byggi ég á skýrslum sem lík­lega voru aldrei ætl­aðar til opin­berrar birt­ingar. Því þær eru sumar kyrfi­lega merktar sem trún­að­ar­mál. En eru engu að síður aðgengi­legar hverjum þeim sem leitar eftir þeim. Sam­an­burður á öllum þessum gögnum sýnir mjög gott sam­ræmi, sem bendir til þess að þær álykt­anir sem ég hef dregið um raf­orku­verðið séu ekki bara góð nálgun við hið raun­veru­lega samn­ings­verð, heldur afar nákvæmar.“


Greinina á Orku­blogg­inu má lesa í heild hér.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár