Landsvirkjun slær til baka - Norðurál beitir öllum aðferðum til lækka orkuverð

Það átta sig kannski ekki allir á því en um þessar mundir stendur yfir gríð­ar­lega hörð bar­átta um afnot að sjálf­bærum orku­auð­lindum íslensku þjóð­ar­innar. Sú bar­átta er til­komin vegna þess að raf­orku­samn­ingur sem Norðurál, sem á og rekur álver á Grund­ar­tanga, gerði við Lands­virkjun seint á tíunda ára­tug síð­ustu aldar rennur út árið 2019 og verið er að reyna að end­ur­semja um hann. Gildandi samn­ingur þykir í flestum sam­an­burði slakur fyrir Lands­virkjun, og þar af leið­andi íslensku þjóð­ina sem á fyr­ir­tækið, sem lit­ast að ein­hverju leyti af þeim aðstæðum sem voru fyrir orku­sölu hér­lendis þegar hann var gerður. Þá voru ein­fald­lega ekki margir að berj­ast um hana. Mark­að­ur­inn var kaup­enda­mark­aður og þeir settu skil­yrðin. Ísland þurfti fyrst og síð­ast að taka ákvörðun um hvort svara­vert væri að aðlaga sig að þeim.

Nú vill Lands­virkjun hins vegar fá hærra verð fyrir ork­una sem knýr áfram álverið. Hið lága verð hefur enda skilað eig­anda Norð­ur­áls, Century Aluminum, og eig­anda Century, hrá­vöruris­anum Glencore, gríð­ar­legum arði frá því að hann var gerður. Ketill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum, hefur sagt að núgild­andi samn­ingur sé „einn af ódýr­ustu gild­andi orku­sölu­samn­ingum til álvera í heim­inum í dag“.

Á fundi sem Lands­virkjun boð­aði til með blaða­mönnum í dag var aug­ljóst á Herði Arn­ar­syni, for­stjóra Lands­virkj­unar, að hann var ein­dregið þeirrar skoð­unar að verðið til Lands­virkj­unar þyrfti að hækka umtals­vert. Og í máli hans kom skýrt fram að hann teldi Norðurál, og eig­endur þess, vera að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda verð­inu til sín sem lægstu.

Norðurál beitir öllum aðferðum til að lækka verðið

Fund­ur­inn var við­bragð við þeirri umræðu sem hefur verið að und­an­förnu um raf­orku­samn­ing Lands­virkj­unar við Rio Tinto-Alcan, raf­orku­verð til stór­iðju og skrifa verka­lýðs­for­ingj­ans Vil­hjálms Birg­is­sonar frá Akranesi, sem hefur gagn­rýnt Lands­virkjun harð­lega í pistla­skrifum fyrir að vilja ekki selja stór­iðju­fyr­ir­tækjum á Grund­ar­tanga, þar sem margir skjól­stæð­ingar hans starfa, orku á verði sem fyr­ir­tækið telur allt of lágt.

Hörður sagði á fund­inum að það væri mik­il­vægt að þjóðin gerði sér grein fyrir því hversu mikil verð­mæti væri í þeirri frá­bæru vöru sem end­ur­nýt­an­leg orka væri. Það væru verð­mæti sem myndu bara aukast og eft­ir­spurn eftir henni nú væri umtals­vert meiri en fram­boðið. Raf­orku­samn­ingar Lands­virkj­unar væru á meðal stærstu samn­inga sem gerðir væru í íslensku við­skipta­lífi og virði þeirra á tíu ára tíma­bili væri sam­an­lagt um 500 til 600 millj­arðar króna. Það væri sam­bæri­legt verð­mæti og ríkið sé að fá út úr samn­ingum við kröfu­hafa föllnu bank­anna þriggja um þessar mundir.

Hann snéri sér síðan að þeim end­ur­samn­ingum sem eru í gangi gagn­vart Norð­ur­áli og skóf ekk­ert undan í lýs­ingu á skoðun sinni á aðstæðum. Hörður sagði að umræða um raf­orku­samn­ing Lands­virkj­unar og Rio Tinto-Alcan hafa verið dregna inn í þá kjara­deilu sem þar stendur yfir af öðrum en deilu­að­ilum. Aðspurður um hverjir það væri sagði Hörður: „Stjórn­endur Norð­ur­áls, þeir telja að þetta styðji þeirra mál­stað. Þegar þú ert að semja um tug­millj­arða hags­muni þá beita aðilar öllum aðferðum til þess að styrkja sinn mál­stað. Það er ekk­ert óeðli­legt. Hvort þeir séu að ganga lengra núna en áður verða kannski aðrir að meta, en ég tel þessa teng­ingu mjög óheppi­lega og mér finnst hún mjög ósann­gjörn gagn­vart Rio Tinto.“

Meiri eftirspurn en framboð

Aðspurður um hvað það væru sem stjórn­endur Norð­ur­áls væri að gera sagði Hörður það vera ljóst, og full­kom­lega eðli­legt, að þeir færu víða í sam­fé­lag­inu til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. Auk þess sagði Hörður: „Það er hins vegar alveg rétt að það hafa komið upp hópar manna sem hafa áður ekki tengst orku­um­ræðu inn í umræð­una. Þeir hafa verið kynntir í við­tölum sem ráð­gjafar Norð­ur­áls.“

Þessi hópur sem Hörður talar um er leiddur af manni sem heitir Viðar Garð­ars­son, við­skipta­fræð­ingi og mark­aðs­ráð­gjafa, sem blandað hefur sér af miklu afli í umræður um orku­mál að und­an­förnu. Viðar er á meðal þeirra sem heldur úti vett­vangnum „Auð­lind­irnar okkar“ á Facebook, nýstofn­aða vef­miðl­inum Veggnum og skrifar pistla á vef mbl.is. Í skrifum Viðars og ann­arra á þessum síðum er talað fyrir lægra orku­verði til stór­iðju, lengri orku­sölu­samn­ingum og gegn lagn­ingu sæstrengs til Bret­lands. Þá var Viðar til við­tals í fréttum Stöðvar 2 í byrjun des­em­ber. Í kynn­ingu þeirrar fréttar kom fram að Viðar hafi unnið fyrir Norðurál. Í þeirri frétt sagði Viðar að hótun Rio Tinto um að loka álver­inu í Straums­vík hafi verið sett fram vegna þungs rekst­urs, sem megi rekja til of hás orku­verðs.

Hörður sagði þennan hóp og skrif þeirra ekki trufla Lands­virkjun mikið og að samn­ings­við­ræður við Norðurál stæðu yfir þrátt þessa stöðu. Þær væru alls ekki í upp­námi. „En það er tek­ist á.“

Jafnvel þótt að ekki myndi semj­ast við Norðurál um áfram­hald­andi kaup á orku væri engin skortur á öðrum áhuga­sömum kaup­endum. Það væri mik­ill áhugi frá aðilum í kís­il­iðn­aði, sem reka gagna­ver og öðrum blönd­uðum iðn­aði fyrir því að kaupa orku frá Lands­virkjun auk þess sem heild­sölu­mark­aður væri alltaf að vaxa. Því væri meiri eft­ir­spurn en fram­boð. 

Segist hugsi yfir skrifum Vilhjálms Birgissonar

Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, hefur sett fram harða gagn­rýni á Lands­virkjun á und­an­förnum dögum vegna þess að fyr­ir­tækið vildi ekki semja við járn­blendi­verk­smiðju Elkem á Grund­ar­tanga og vegna þess að ekki er búið að ganga frá samn­ingum við Norðurál, sem rekur álver á sama stað. Vil­hjálmur hefur áhyggjur af því að for­svars­menn Lands­virkj­unnar „ átti sig ekki á því að raf­orku­verð í heim­inum hefur hríð­fallið á und­an­förnum árum og miss­erum og því eru sam­keppn­is­skil­yrði hér á landi að verða mun bág­born­ari heldur en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. [...]Það er mik­il­vægt að menn átti sig á því að ef Lands­virkjun horfir ekki á þessar stað­reyndir þá eru umtals­verðar líkur á því að þús­undir starfa í stór­iðjum muni tap­ast á næstu árum.“ Þessi gagn­rýni er mjög í takt við þá sem Viðar og fleiri kollegar hans hafa sett fram, en Lands­virkjun segir að sé ekki í neinum takti við raun­veru­leik­ann.

Hörður sagði til að mynda alrangt að Lands­virkjun væri ekki að bjóða sam­keppn­is­hæf kjör. „Það er mikil eft­ir­spurn. Væri hún til staðar ef þetta væri rétt? Svarið við því er auð­vitað nei.“

Hann sagð­ist hugsi yfir skrifum Vil­hjálms og hvaðan þær upp­lýs­ingar sem hann leggi út frá komi. „Ég hef ekki trú á að þær upp­lýs­ingar komi frá honum sjálfum. Ég tel að þessar upp­lýs­ingar sem Vil­hjálmur Birg­is­son vitnar til komi frá fyr­ir­tæk­inu [Norð­ur­áli]. Þær upp­lýs­ingar eru í sumum til­vikum rangar og í öðrum til­fellum mjög vill­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár