Vindorkukostir sem eru 10 MW eða meira heyri undir rammaáætlun

Lagt er til að land verði flokkað með til­liti til vind­orku­vera í tengslum við breyt­ingar á frum­varpi um ramma­á­ætlun. „Telja verður að vind­orku­ver geti haft í för með sér minna óaft­ur­kræft rask en hefð­bundn­ari orku­kostir,“ segir í grein­ar­gerð.

Verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar fékk 34 vindorkukosti inn á sitt borð í fyrra.
Verk­efn­is­stjórn 4. áfanga ramma­á­ætl­unar fékk 34 vind­orku­kosti inn á sitt borð í fyrra. Mynd: Flickr

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið hefur birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda drög að breyt­ingum á lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun (ramma­á­ætlun) sem taka á með­ferð vind­orku­kosta innan hennar. Lagt er til að sér­stak­lega verði kveðið á um vind­orku í lög­unum til að taka af allan vafa um að slíkir virkj­un­ar­kostir, sem eru 10 MW eða meira að upp­settu afli, heyri undir lögin. Jafn­framt er lagt til að vind­orku­kostir sæti vegna sér­eðlis vind­orkunnar annarri máls­með­ferð en virkj­un­ar­kostir í vatns­afli og jarð­varma. Þannig er jafn­framt lögð til flokkun virkj­un­ar­kosta til vind­orku­nýt­ingar með til­liti til stað­setn­ingar í lands­lagi og nátt­úru Íslands og sé fyr­ir­hugað vind­orku­ver utan ákveð­inna svæða sæti það ekki tak­mörk­unum ramma­á­ætl­unar.

Markmið laga­breyt­ing­anna eru að gera leyf­is­veit­ing­ar­ferli vegna nýt­ingar vind­orku skil­virkara og að for­gangs­raða land­svæðum svo að ná megi fram jafn­vægi milli mik­il­vægra umhverfis-, sam­fé­lags- og efna­hags­legra þátta.

[adspot]

Slíkt verði í meg­in­at­riðum gert með skýrri opin­berri stefnu­mörkun um nýt­ingu vind­orku og stað­setn­ingu vind­orku­vera með til­liti til flokk­unar lands . Gert er ráð fyrir að sú stefnu­mörkun komi til umfjöll­unar og sam­þykktar Alþingis sam­hliða frum­varp­inu en í formi til­lögu til þings­á­lykt­unar. „Með aðlögun gild­andi laga að vind­orku sem orku­kosts er reynt að stuðla að því að vind­orku­ver bygg­ist síður upp á við­kvæm­ustu svæðum lands­ins auk þess sem reynt hefur verið að koma til móts við hið sér­staka eðli vind­orkunnar með þeim hætti að aukin skil­virkni, ein­földun og fyr­ir­sjá­an­leiki verði í reglu­verki við und­ir­bún­ing slíkra verk­efna,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna sem nú hafa verið lögð fram til kynn­ingar.

[links]Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er kveðið á um að „setja þurfi lög um vind­orku­ver ásamt því að vinna með sveit­ar­fé­lögum leið­bein­ingar um skipu­lags­á­kvarð­anir og leyf­is­veit­ingar“. Í lok árs 2019 var skip­aður starfs­hópur þriggja ráðu­neyta til að vinna að til­lögum um hvernig best væri að haga mál­efnum vind­orku sem orku­nýt­ing­ar­kosts hér á landi og byggir frum­varpið á nið­ur­stöðum hans auk sjón­ar­miða ýmissa hag­að­ila.

Í skýrslu starfs­hóps­ins er lagt til að lands­svæði verði flokkuð í þrjá flokka með til­liti til hag­nýt­ingar vind­orku:

Flokkur 1.

Mælt yrði fyrir um að ekki yrðu byggð vind­orku­ver á lands­svæðum í þessum flokki og að stjórn­völdum væri óheim­ilt að veita leyfi fyrir slíkum virkj­un­ar­kostum eða taka þá til með­ferðar.

Flokkur 2.

Þar féllu undir svæði sem gætu í eðli sínu almennt verið við­kvæm fyrir upp­bygg­ingu vind­orku­vera eða annarri mann­virkja­gerð, en virkj­un­ar­kostir í vind­orku innan slíkra svæða gætu þó komið til greina að upp­fylltum til­teknum skil­yrðum, meg­in­reglum og við­miðum og að und­an­gengnu mati verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar.

Flokkur 3.

Þar yrðu um að ræða land­svæði sem hvorki teld­ust falla í flokk 1 né í flokk 2. Ákvörð­un­ar­vald um fram­hald virkj­un­ar­kosta á svæði í flokki 3 yrði þá hjá sveit­ar­fé­lagi og öðrum stjórn­völdum að upp­fylltum almennum reglum og skipu­lags­gerð ein­stakra sveit­ar­fé­laga, lög­bundnu umhverf­is­mati o.s.frv.

Í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna kemur fram að nágranna­lönd okkar hafa farið ýmsar leiðir við með­höndlun vind­orku. Í meg­in­at­riðum hefur verið um tvær leiðir að ræða; ann­ars vegar hin svo­nefnda norska leið og hins vegar skoska leiðin.

Norska leiðin umdeild

Norska leiðin byggð­ist á grein­ingu og kort­lagn­ingu á stærstum hluta Noregs með til­liti til vind­orku­nýt­ingar. Áhersla var í fyrstu lögð á að greina þau lands­svæði sem úti­lokuð voru frá vind­orku­nýt­ingu. Síðan var unnið að því að greina þau lands­svæði sem hugs­an­lega gætu hentað fyrir slíka upp­bygg­ingu. Þau land­svæði voru að lokum skoðuð enn frekar með til­liti til þess hvaða svæði innan þeirra gætu hentað vel fyrir upp­bygg­ingu vind­orku­vera. Það vind­orku­kort sem varð til eftir þessa vinnu var í fram­hald­inu kynnt í Noregi og var ekki óum­deilt, sér­stak­lega meðal sveit­ar­fé­laga. Hafa norsk stjórn­völd því hafið end­ur­skoðun á aðferð­ar­fræð­inni.

Flokkun skosku leiðarinnar

Sú leið sem Skotar fóru byggð­ist á þeirri leið að flokka lands­svæði í þrjá flokka: 1) svæði þar sem vind­orku­ver eru ekki talin ásætt­an­leg, 2) svæði með veru­lega vernd eða sér­stöðu þar sem skoða þarf ein­stök til­vik með ítar­legum hætti áður en vind­orku­ver geta komið til álita og 3) svæði með mögu­leika á vind­orku­verum en þó alltaf háð mati með til­liti til skil­greindra við­miða.

Í skýrslu starfs­hóps­ins er lagt til að við breyt­ingar á lögum um ramma­á­ætlun verði í grund­vall­ar­at­riðum horft til skosku leið­ar­innar og hún aðlöguð að íslenskum aðstæðum.

Lög um ramma­á­ætlun áttu upp­haf­lega ein­göngu að ná til virkj­un­ar­kosta í vatns­afli og jarð­hita en við með­ferð frum­varps­ins á Alþingi var heiti lag­anna, gild­is­sviði og nokkrum greinum frum­varps­ins breytt þannig að þau yrðu ekki ein­ungis bundin við vatns­afl og jarð­hita. Hins vegar hafa komið fram sjón­ar­mið um að lögin gildi ekki um vind­orku og að fjalla þyrfti með skýr­ari hætti um þennan virkj­un­ar­kost í þeim.

Rammaáætlun föst í þinginu

Vind­orku­nýt­ing fellur að mati umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins undir ramma­á­ætlun. Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur á grund­velli lag­anna fjallað um tvo virkj­ana­kosti í vind­orku í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar; Búr­fellslund (200 MW) og Blöndu­lund (100 MW). Nið­ur­staða verk­efn­is­stjórnar var á þá leið að Búr­fellslundur færi í bið­flokk en Blöndu­lundur í orku­nýt­ing­ar­flokk. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem byggir á nið­ur­stöðum verk­efn­is­stjórnar í 3. áfanga ramma­á­ætl­unar hefur hins vegar enn sem komið er ekki hlotið end­an­lega umfjöllun Alþingis. Í 4. áfanga ramma­á­ætl­unar, sem nú er í vinnslu, hafa um 34 virkj­un­ar­kostir í vind­orku komið til með­ferðar hjá verk­efn­is­stjórn.

Óþrjótandi auðlind

Sérstaða vind­orkunnar sem virkj­un­ar­kosts er nokkur. Sem auð­lind er hann nokkurn veg­inn óþrjót­andi og að sama skapi ekki jafn stað­bund­inn og aðrir og hefð­bundn­ari virkj­ana­kostir. Þá krefj­ast vind­orku­ver almennt minni und­ir­bún­ings­tíma, mun fljót­legra er að reisa slík mann­virki, auk þess sem hægt er að reisa þau í skil­greindum áföngum í sam­ræmi við eft­ir­spurn.

„Telja verður að vind­orku­ver geti í mörgum til­vikum haft í för með sér minna óaft­ur­kræft rask en hefð­bundn­ari orku­kostir, ef rétt er að staðið, enda er auð­veld­ara að fjar­lægja slík mann­virki að stærstum hluta ásamt flestum öðrum ummerkjum af virkj­un­ar­stað, sé tekin ákvörðun um að hætta starf­semi,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­drag­anna. „Segja má því að nýt­ing vind­orku á til­teknu lands­svæði bindi ekki hendur fram­tíð­ar­kyn­slóða með jafn afger­andi hætti og oft er þegar um er að ræða nýt­ingu á hinum hefð­bundn­ari orku­kostum.“

Ákjósanlegt að nýta á Íslandi

Hag­kvæmni vind­orku er að aukast hratt og áhugi á hag­nýt­ingu hennar fer vax­andi. Rekstur ein­stakra vind­orku­stöðva á Íslandi í til­rauna­skyni hefur verið umfram vænt­ingar og land- og veð­ur­fræði­legar aðstæður ákjós­an­legar til nýt­ingar vind­orku á Íslandi.

Þar sem virkj­un­ar­kostir í vind­orku eru ekki jafn bundnir við ákveðna stað­setn­ingu eins og hinir hefð­bundnu virkj­un­ar­kostir gefur það stjórn­völdum mik­il­vægt tæki­færi til að móta opin­bera stefnu um það hvar helst eigi að stað­setja slíka starf­semi og hvar ekki, til að reyna eins og kostur er að lág­marka nei­kvæð umhverf­is­leg áhrif af henni, segir í grein­ar­gerð­inni.

Hlutverk verkefnisstjórnar

Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar gerir til­lögu að flokkun fram­kom­inna virkj­un­ar­kosta hverju sinni í vernd­ar­flokk, bið­flokk og orku­nýt­ing­ar­flokk. Með laga­breyt­ing­unni yrði hlut­verk verk­efn­is­stjórnar hvað vind­orku­kosti varðar í fyrsta lagi að yfir­fara alla slíka virkj­un­ar­kosti eftir að Orku­stofnun hefur farið yfir þá og greina lands­svæði sem áhugi er að reisa þá á. Ef stað­setn­ingin er innan svæða í flokki 1 þá vísar verk­efn­is­stjórn slíkum virkj­un­ar­kostum frá. Sé stað­setn­ingin hvorki á svæði í flokki 1 né í flokki 3, þá tekur verk­efn­is­stjórn slíka kosti til skoð­unar og mats út frá meg­in­reglum og við­miðum sem koma fram í þings­á­lyktun um stefnu stjórn­valda um nýt­ingu vind­orku. Telji verk­efn­is­stjórn hins vegar eftir skoðun sína að virkj­un­ar­kostur falli hvorki undir flokk 1 né flokk 2, þá til­kynnir hún ráð­herra um þá nið­ur­stöðu sína og gert er ráð fyrir að slíkir virkj­un­ar­kostir sæti ekki frek­ari máls­með­ferð sam­kvæmt lögum um ramma­á­ætlun og geti farið áfram í hefð­bundið leyf­is­veit­ing­ar­ferli.

Eins og verið hefur mun hlut­að­eig­andi virkj­ana­kostur þurfa að fara í gegnum hefð­bundna opin­bera leyf­is­veit­ing­ar­ferla og mæta þeim kröfum sem þar er að finna, t.d. í lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum, raf­orku­lögum, skipu­lags­lögum og mann­virkja­lögum. Hlut­að­eig­andi sveit­ar­fé­lag þarf einnig að gera ráð fyrir slíkum virkj­un­ar­kosti og til­heyr­andi mann­virkjum í skipu­lagi sínu því frum­varpið gerir ekki ráð fyrir því að sveit­ar­fé­lögum beri sjálf­stæð skylda til að aðlaga skipu­lags­á­ætl­anir sínar að virkj­ana­kostum í vind­orku eins og gildir um hina hefð­bundnu orku­kosti, vatns­afl og jarð­hita, jafn­vel þó slík verk­efni hljóti fram­gang sam­kvæmt lögum um verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun.

Frum­varps­drögin má nálg­ast hér og umsagn­ar­frestur er til 5. febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár