Landsvirkjun og Norðurál á Grundartanga ná samkomulagi

Raf­orku­verð Lands­virkj­unar til Norð­ur­áls verður ekki lengur tengt álverði, heldur alþjóð­legu mark­aðs­verði Nord Pool. Lands­virkjun og Norðurál hafa nú náð sam­komu­lagi um raf­orku­verð eftir langar deilur.

Lands­virkjun og Norðurál Grund­ar­tangi ehf. hafa náð sam­komu­lagi um að end­ur­nýja raf­orku­samn­ing fyr­ir­tækj­anna fyrir 161 MW á kjörum sem end­ur­spegla raf­orku­verð á mörk­uðum. End­ur­nýj­aður samn­ingur er tengdur við mark­aðs­verð raf­orku á Nord Pool raf­orku­mark­aðnum og kemur það í stað álverðsteng­ingar í gild­andi samn­ingi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­virkjun.

Hinn end­ur­nýj­aði samn­ingur er til fjög­urra ára og hljóðar upp á 161 MW sem er nærri þriðj­ungur af orku­þörf álvers Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga. End­ur­nýj­aður samn­ingur tekur gildi í nóv­em­ber 2019 og gildir til loka árs 2023. Núgild­andi samn­ingur verður áfram í gildi til loka októ­ber 2019.

Deila Lands­virkj­unar og Norð­ur­áls hefur staðið í nokkurn tíma. Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, hefur gagn­rýnt Norðurál harð­lega fyrir að hafa reynt að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda orku­verði til sín sem lægstu.

Stríðsöxin grafin

Haft er eftir Herði í til­kynn­ingu Lands­virkj­unar að þessi end­ur­nýj­aði samn­ingur tryggi áfram­hald­andi sam­keppn­is­hæfni beggja aðila. „Hann er afrakstur mik­illar vinnu sem styrkt hefur við­skipta­sam­band aðila og skiln­ing þeirra á aðstæðum hvors ann­ars. Samn­ing­ur­inn er afar ánægju­legur áfangi í sam­starfi fyr­ir­tækj­anna sem á sér 20 ára far­sæla sögu.“

Ragnar Guð­munds­son, for­stjóri Norð­ur­áls, segir einnig í til­kynn­ing­unni að Norðurál sé ánægt með að hafa náð sam­komu­lagi um kjör á þess­ari fjög­urra ára fram­leng­ingu. „Lands­virkjun hefur verið góður og áreið­an­legur sam­starfs­að­ili okkar á Grund­ar­tanga frá upp­hafi. Þessi samn­ingur er mik­il­væg und­ir­staða fyrir frek­ari þróun fram­leiðsl­unnar en við erum um þessar mundir að skoða fjár­fest­ingu í nýjum steypu­skála á Grund­ar­tanga sem mun auka veru­lega fjöl­breyti­leika í vöru­fram­boði okkar.“

Samn­ings­drögin hafa verið send Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, til for­skoð­unar. Að henni lok­inni er áformað að ljúka frá­gangi samn­ings­ins og senda hann til form­legrar og end­an­legrar sam­þykktar hjá ESA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár