Fimmtán sóttu um stöðu orkumálastjóra

Fimmtán umsóknir bár­ust um starf orku­mála­stjóra, en Guðni A. Jóhann­es­son sem hefur verið orku­mála­stjóri frá 2008 lætur brátt af störfum. Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra skipar í stöð­una frá og með 1. maí.

Fimmtán manns sóttu um starf orku­mála­stjóra, sem aug­lýst var undir lok síð­asta árs. Á meðal umsækj­enda eru Guð­mundur Þór­odds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, Björn Óli Hauksson, fyrr­ver­andi for­stjóri Isavia og Jón Þór Sturlu­son fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri FME, svo ein­hverjir séu nefndir.

Fram kemur í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins að Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, muni skipa í stöð­una frá og með 1. maí 2021. Ráðherra hefur skipað nefnd til að meta hæfni umsækj­enda og skila grein­ar­gerð um þá. Í henni sitja Kristín Har­alds­dóttir lektor og for­maður nefnd­ar­innar, Birgir Jónsson rekstr­ar­hag­fræð­ingur og Ingvi Már Pálsson skrif­stofu­stjóri.

[adspot]

Guðni A. Jóhann­es­son hefur verið orku­mála­stjóri allt frá árinu 2008, en hann var skip­aður í stöð­una af Össuri Skarp­héð­ins­syni sem þá var iðn­að­ar­ráð­herra. Staða orku­mála­stjóra varð til árið 1967 þegar ný orku­lög tóku gildi og Orku­stofnun tók til starfa, en orku­mála­stjóri er for­stjóri þeirrar stofn­unar, auk þess að vera ráð­gjafi rík­is­stjórn­ar­innar í orku­málum og öðrum auð­linda­málum.

Fjórir hafa gegnt þess­ari stöðu til þessa og verður nýr orku­mála­stjóri því sá fimmti frá árinu 1967.

Listi umsækjenda um stöðuna:

  • Auður Sig­ur­björg Hólmars­dóttir, hönn­uður
  • Baldur Pét­urs­son, verk­efna­stjóri
  • Benedikt Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Björn Óli Hauksson, ráð­gjafi
  • Fjóla Guðrún Sig­tryggs­dóttir, verk­fræð­ingur
  • Guð­mundur Berg­þórs­son, verk­efna­stjóri
  • Guð­mundur Þór­odds­son, stjórn­ar­for­maður
  • Halla Hrund Loga­dóttir, með­stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri
  • Heiðrún Erika Guð­munds­dóttir, deild­ar­stjóri
  • Jónas Ket­ils­son, yfir­verk­efn­is­stjóri
  • Jón Þór Sturlu­son, dós­ent
  • Lárus M. K. Ólafsson, sér­fræð­ingur og við­skipta­stjóri
  • Óli Grétar Blöndal Sveins­son, fram­kvæmda­stjóri
  • Silja Rán Stein­berg Sig­urð­ar­dóttir, verk­efna­stjóri
  • Sigurjón Norberg Kjærne­sted, for­stöðu­maður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár