Hefja formlegar viðræður við SA

„Við getum ekki horft upp á þá skelfi­legu stöðu sem uppi er á íslenskum vinnu­mark­aði án þess að taka þetta skref og ræða þrí­hliða lausnir,“ segir for­maður VR.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

VR hefur ákveðið að hefja form­legar við­ræður við SA um leiðir til að verja kjara­samn­ing þeirra, kaup­mátt og störf. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu Ragnars Þórs Ing­ólfs­sonar, for­manns VR, í dag.

„Þar sem ástandið á vinnu­mark­aði versnar dag frá degi, og lík­legt að mán­aða­mótin verði þau svört­ustu í sögu hreyf­ing­ar­innar, höfum við ákveðið að hefja form­legar við­ræður við SA um leiðir til að verja kjara­samn­ing­inn okkar, kaup­mátt­inn og störfin,“ skrifar hann.

Mark­miðið er sam­kvæmt Ragnari Þór að finna leiðir til að verja „stöðu okkar fólks og fá stjórn­völd að borð­inu líka“.

Dapurlegt að aðgerðapakkarnir séu ákveðnir af fámennum hóp

„Við getum ekki horft upp á þá skelfi­legu stöðu sem uppi er á íslenskum vinnu­mark­aði án þess að taka þetta skref og ræða þrí­hliða lausnir,“ skrifar hann.

Ragnar Þór segir það vera dap­ur­legt að aðgerða­pakkar rík­is­ins skuli vera ákveðnir af fámennum hóp í stað víð­tækara sam­ráðs aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­ar­and­stöð­unnar. Sér­stak­lega í ljósi þess hversu alvar­leg staðan sé og þá stað­reynd að allar ákvarð­anir og skuld­bind­ingar hafi mikil áhrif á lífs­kjör almenn­ings og kom­andi kyn­slóðir.

Hann greinir frá því að með VR í þess­ari veg­ferð séu Framsýn stétt­ar­fé­lag og Verka­lýðs­fé­lag Akraness en þessi félög ásamt Lands­sam­bandi versl­un­ar­manna fara með umboð um 47 þús­und félags­manna.

Von er á því sam­kvæmt for­mann­inum að fleiri félög bæt­ist í hóp­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár