Fyrsta skiptið í 97 ár sem íslenskt launafólk safnast ekki saman 1. maí

Í stað­inn fyrir að safn­ast saman þann 1. maí næst­kom­andi þá munu heild­ar­sam­tök launa­fólks standa fyrir sér­stakri útsend­ingu frá skemmti-og bar­áttu­sam­komu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjón­varpað á RÚV.

1. maí 2019
1. maí 2019 Mynd: Bára Huld Beck

Í fyrsta skipti síðan 1923 getur íslenskt launa­fólk ekki safn­ast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu er brugð­ist með útsend­ingu frá sér­stakri skemmti- og bar­áttu­sam­komu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjón­varpað á RÚV klukkan 19:40.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ASÍ í dag. Að dag­skránni í sjón­varp­inu og við­burðum á sam­fé­lags­miðlum standa eft­ir­far­andi heild­ar­sam­tök launa­fólks: ASÍ, BHM, BSRB og KÍ.

Í til­kynn­ing­unni segir að lands­þekktir tón­list­ar­menn, skemmti­at­riði og hvatn­ing­ar­orð frá for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar muni ein­kenna þennan við­burð „sem verður að telj­ast sögu­legur“. Meðal lista­manna sem koma fram eru Ragn­heiður Gröndal, Bubbi Morthens, Ama­badama, Jói P og Króli, Ellen Krist­jáns og Auður, Jakob Birg­is­son uppi­stand­ari, KK og Lúðra­sveit verka­lýðs­ins.

„Þar sem engar verða kröfu­göng­urnar verður hægt að búa til sitt eigið kröfu­spjald á Facebook og sýna stuðn­ing sinn við bar­áttu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar í verki með því að merkja prófíl­mynd­ina sína 1. maí. Við hvetjum til þátt­töku í bar­áttu­deg­inum á Facebook og svo til áhorfs á RÚV um kvöldið,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár