Ragnar Þór segir orkupakkamálið lykta af sérhagsmunapoti

Formaður VR treystir því að Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, vísi ákvörðun Alþingis um þriðja orku­pakk­ann til þjóð­ar­innar verði málið rekið áfram í gegnum þingið í óbreyttri mynd.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að verka­lýðs­hreyf­ingin hafni því að hægt sé að taka stórar og umdeildar ákvarð­anir, á borð við þriðja orku­pakk­ann, án þess að full­komið traust og sátt ríki um málið. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir málið óneit­an­lega lykta af sér­hags­muna­poti.

Hann spyr jafn­framt hvort Íslend­ingar geti treyst kjörnum full­trúum til að taka svo stórar ákvarð­anir sem snúa að orku­málum þjóð­ar­innar. „Svona miðað við allt sem á undan er gengið?“

Ragnar Þór telur að „hin ofsa­fengnu við­brögð þekktra hags­muna­afla við rétt­mætum spurn­ingum og gagn­rýni“ gefi svo sann­ar­lega til­efni til að staldra við.

Fólk ætti ekki að hafa áhyggjur af grunnþörfum

„Getum við gert þá kröfu að tekin verði afstaða í svo umdeildu máli í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og þjóðin tekið upp­lýsta ákvörðun út frá þeim upp­lýs­ingum sem liggja fyrir og þeirri reynslu sem við höfum á mark­aðsvæð­ingu inn­viða?“ spyr Ragnar Þór.

Hann segir að í nýjum lífs­kjara­samn­ingi sem sam­þykktur var af stórum hluta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafi þau lagt áherslu á að ná kostn­aði niður og auka þannig kaup­mátt í bland við launa­hækk­anir í stað þess að berj­ast ein­göngu fyrir fleiri krónum til að fóðra kröf­una um gróða og enda­lausar hækk­anir á grunn­þörfum.

„Og að félags­menn okkar þurfi ekki að hafa áhyggjur af grunn­þörfum eins og raf­magni, vatni eða hús­hitun. Að kostn­aði við að lifa verði haldið í lág­marki og bæta þannig lífs­kjör til skemmri og lengri tíma, fyrir okkur sjálf og kom­andi kyn­slóðir,“ skrifar hann.

Mikið undir

Ragnar Þór bendir á að mikið sé undir fyrir félags­menn þeirra og fyr­ir­tækin. Hærri orka þýði hærra vöru­verð og lægri kaup­mátt og lak­ari sam­keppn­is­hæfni. Hærri orku­verð dragi úr mögu­leikum Íslend­inga til meiri sjálf­bærni.

Hann telur því ein­fald­lega of mikið vera undir. „Sagan hefur því miður kennt okkur allt annað en lobbí­istar sér­hags­muna­afla kepp­ast við að sann­færa okkur um.

Við erum kyn­slóðin sem hófum einka­væð­ingu inn­viða. Verum kyn­slóðin sem steig niður fæti!

Ég treysti því að for­set­inn okkar standi undir nafni og vísi þess­ari ákvörðun til þjóð­ar­innar verði málið rekið áfram í gegnum þingið í óbreyttri mynd,“ skrifar Ragnar Þór að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár