Trúarbrögð að vera á móti sæstreng

Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra segir að sæstrengur sé ekki á dag­skrá þess­arar rík­is­stjórnar. Engin ný ákvörðun hafi verið tekin en hún bendir þó á að for­sendur geti breyst og frá­leitt að úti­loka um alla fram­tíð að þetta gæti orðið skyn­sam­legt.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, segir að það „virð­ast vera orðin ein­hver trú­ar­brögð“ að vera á móti sæstreng, svo heift­ar­lega að það sé umsvifa­laust gert grun­sam­legt ef ein­hver segir að það sé sjálf­sagt að skoða málin. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

„Ég tek eftir því að menn hlaupa upp til handa og fóta, telja sig geta sagt „hah, hvað sagði ég, hún berst fyrir streng!”,“ skrifar hún.

Ástæðan fyrir því að hún tjáir sig um málið er að hún var í við­tali á Sprengisandi á Bylgj­unni í gær, sem og í Víg­lín­unni á Stöð 2, og telur hún að orð hennar þar hafi ekki falið í sér neina stefnu­breyt­ingu hjá stjórn­völdum. Hún vísar í frétt Viljans um málið þar sem hún segir að rang­lega hafi verið sett í fyr­ir­sögn að hún hafi í við­tal­inu boðað könnun á fýsi­leika sæstrengs. Hún seg­ist ekki hafa boðað neitt slíkt.

„Heldur svar­aði spurn­ingu Heimis Más almennt og sagði ein­fald­lega að ég gerði enga athuga­semd við að kannað væri hvort kannski ein­hvern tím­ann væri snið­ugt að selja raf­orku til útlanda. Rétt áður sagði ég það sama á Sprengisandi og að í þessu hags­muna­mati yrði að sjálf­sögðu að taka með í mynd­ina þá verð­mæta­sköpun sem getur orðið til með því að nýta ork­una hér á landi, störfin, áhrif á byggð o.s.frv. Þetta hef ég oft sagt,“ skrifar hún.

Forsendur geta breyst – Fráleitt að útiloka þetta um alla framtíð

Þá bendir ráð­herr­ann á að síð­ast þegar þetta hafi verið kannað hafi nið­ur­staðan verið sú að lagn­ing sæstrengs væri fremur lang­sótt og myndi ekki borga sig á mark­aðs­legum grund­velli. „For­sendur geta breyst og frá­leitt að úti­loka um alla fram­tíð að þetta gæti orðið skyn­sam­legt. Rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar taldi þetta áhuga­verðan mögu­leika á sínum tíma en það virð­ast vera orðin ein­hver trú­ar­brögð að vera á móti þessu, svo heift­ar­lega að það er umsvifa­laust gert grun­sam­legt ef ein­hver segir að það sé sjálf­sagt að skoða þetta. Hvort hugs­an­lega kannski sé eitt­hvað í þessu fyrir Ísland, ein­hvern tím­ann.“

Hún segir að sæstrengur sé ekki á dag­skrá þess­arar rík­is­stjórnar. Engin ný ákvörðun hafi verið tekin. Alþingi þurfi að taka ákvörðun um að hefja slíka fram­kvæmd. Hún seg­ist sjálf hafa lagt til þær breyt­ingar.

„Menn geta skamm­ast í mér fyrir að loka ekki dyrum til fram­tíðar, fyrir að gera ekki athuga­semd við að fá frek­ari upp­lýs­ingar fram í ver­öld sem hreyf­ist mjög hratt. Það verður þá að hafa það, ég mun ekki breyta þeirri nálgun minni á fram­tíð Íslands,“ skrifar Þórdís Kolbrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár