Landsvirkjun greiðir ríkinu tíu milljarða í arð

Arð­greiðslur úr Lands­virkjun til eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, íslenska rík­is­ins, hafa aldrei verið hærri en nú. Þær rúm­lega tvö­fald­ast milli ára.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Eigandi Lands­virkj­unar, sem er íslenska ríkið, sam­þykkti á aðal­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í dag að greiða sér tíu millj­arða króna í arð út úr fyr­ir­tæk­inu vegna frammi­stöðu þess á síð­asta ári.

Það er rúm­lega tvisvar sinnum hærri arð­greiðsla en á síð­asta ári, þegar hún nam 4,25 millj­örðum króna. Árin þar á undan nam arð­greiðslan 1,5 millj­örðum króna árlega.

Á aðal­fund­inum skip­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í stjórn Lands­virkj­unar sam­kvæmt lögum um fyr­ir­tækið. Ekki voru gerðar breyt­ingar á skipan stjórnar frá fyrra starfs­ári. Aðalmenn í stjórn verða því áfram Jónas Þór Guð­munds­son, sem er for­maður stjórnar, Álf­heiður Inga­dóttir, Jón Björn Hákon­ar­son, Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir og Gunnar Tryggva­son.

Hagn­aður Lands­virkj­unar var 13,6 millj­arðar króna á síð­asta ári, sem er svip­aður hagn­aður í íslenskum krónum og árið 2018. Þegar hagn­að­ur­inn er skoð­aður í Banda­ríkja­dölum dróst hann þó saman um tæp sjö pró­sent.

Lands­virkj­un hagn­að­ist um 21 millj­arð króna á síð­asta ári fyrir óinn­leysta fjár­magnsliði. Það er 5,9 pró­sent minni hagn­aður en árið 2018 og spilar tekju­tap vegna stöðv­unar á kerskála þrjú hjá Rio Tinto í Straums­vík þar meg­in­rullu. Það tekju­tap er metið á 16 millj­ónir dala, eða um 1,9 millj­arð króna.

Auk þess var afurða­verð stórra við­skipta­vina Lands­virkj­un­ar, sem eru að uppi­stöðu þrjú stór álver, lágt og hafði það nei­kvæð áhrif á tekj­ur. Þar skiptir mestu máli að stærsti orku­sölu­samn­ingur Lands­virkj­un­ar, við Alcoa Fjarð­ar­ál, er enn bund­inn við þróun álverðs á heims­mark­aði, sem lækk­aði mikið í fyrra. Alls er um að ræða 33 pró­sent af raf­orku­sölu Lands­virkj­un­ar.

Rekstr­ar­tekjur Lands­virkj­unar lækk­uðu um 4,6 pró­sent milli ára og voru 61,7 millj­arðar króna. Alls greiddi fyr­ir­tækið um 7,2 millj­arða króna í tekju­skatt á síð­asta ári.

Eigið fé um 271 millj­arður króna

Skuldir Lands­virkj­unar hafa lækkað hratt und­an­farin ár og engin breyt­ing varð þar á í fyrra. Nettó lækk­uðu þær um 23,4 millj­arða króna á árinu og voru í árs­lok 204,7 millj­arðar króna, eða 1.691 milljón Banda­ríkja­dala. Mats­fyr­ir­tækið Moody's hækk­aði láns­hæf­is­ein­kunn fyr­ir­tæk­is­ins á árinu og S&P Global Rat­ings breytti horfum á sinni ein­kunn úr stöð­ugum í jákvæð­ar.

Eigið fé Lands­virkj­unar var 2.235 millj­ónir Banda­ríkja­dala í árs­lok 2019, eða um 271 millj­arðar króna. Flestir sér­fræð­ingar telja reyndar að eignir Lands­virkj­unar séu veru­lega van­metnar – þær voru 531 millj­arður króna um síð­ustu ára­mót – þar sem enn eigi eftir að upp­færa virði virkj­ana í eigu fyr­ir­tæk­is­ins að raun­virð­i.

Í fyrra greiddi Lands­virkjun, líkt og áður sagði, um 4,3 millj­arða króna í arð til eig­anda síns vegna frammi­stöðu árs­ins 2018. Búið var að greina frá því að fyr­ir­tækið stefndi að því í nán­­ustu fram­­tíð að greiða tíu til 20 millj­­arða króna á ári í arð til eig­anda síns. Nú hefur fyrsta slíka arð­greiðslan litið ljós.

Til stóð að þessar arð­greiðslur myndu verða grunnur fyrir Þjóð­­ar­­sjóð sem í átti að vera um 500 millj­­arðar króna eftir tæpa tvo ára­tugi. Frum­varp um Þjóð­ar­sjóð er þó enn ósam­þykkt og er sem stendur í þing­legri með­ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár