SA segja blaðamenn vera með meðallaun

Samtök atvinnu­lífs­ins segja for­mann Blaða­manna­fé­lags­ins fara með rangt mál þegar hann segir stétt­ina vera þá lægst laun­uð­ustu á meðal háskóla­mennt­aðra í land­inu. Þvert á móti séu þeir með með­al­laun.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) segja að full­yrð­ingar Hjálmars Jóns­sonar, for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands, um að blaða­menn séu með lægstu laun háskóla­mennt­aðra í land­inu, stand­ist ekki. Ummælin lét Hjálmar falla í sam­tali við Frétta­blaðið í gær þar sem hann sagði einnig að hann: „full­yrði það að það sé engin háskóla­stétt í land­inu jafn illa launuð“.

Í frétt sem SA birti á heima­síðu sinni í dag er sagt að full­yrð­ingar Hjálmars stand­ist ekki. „Samkvæmt launa­upp­lýs­ingum Hagstofu Íslands var mið­gildi reglu­legra launa blaða­manna 603 þús. kr. á mán­uði árið 2018, eins og sést á með­fylgj­andi súlu­riti. Miðgildi reglu­legra launa þeirra 29 starfs­greina þar sem háskóla­mennt­unar er kraf­ist var 599 þús. kr. þannig að blaða­menn voru í miðju launa­dreif­ing­ar­innar.

Sama gildir sé litið til grunn­launa, sem er þrengra launa­hug­tak en reglu­leg laun. Miðgildi grunn­launa blaða­manna var 580 þús. kr. en mið­gildi grunn­launa allra sér­fræð­inga var 588 þús. kr., þannig að mið­gildi grunn­launa blaða­manna var einnig í miðju dreif­ing­ar­innar. Loks þegar litið er til heild­ar­launa, þ.e. þegar yfir­vinnu­greiðslum er bætt við reglu­leg laun, kemur fram að 10 starfs­greinar voru með lægri heild­ar­laun og 18 með hærri.“

[adspot]Blaða­menn í Blaða­manna­fé­lagi Íslands greiða atkvæði í dag um hvort grípa eigi til verk­falls­að­gerða. Samn­ings­um­leit­anir milli félags­ins og SA hafa staðið yfir í tíu mán­uði án árang­urs. Ef verk­fall verður sam­þykkt mun það ná til fjög­urra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem eru innan Samtaka atvinnu­lífs­ins - Árvakurs, Torgs, Sýnar og RÚV.

Verði verk­fall sam­þykkt munu fyrstu verk­falls­að­gerðir verða föstu­dag­inn 8. nóv­em­ber, þegar vinnu­stöðvun verður í fjóra tíma á net­miðlum ofan­greindra miðla.

Viku síðar mun vinnu­stöðv­unin á net­miðl­unum vara í átta klukku­stundin og þann 22. nóv­em­ber í tólf klukku­stundir.

Ef ekki verður samið fyrir 28. nóv­em­ber á vinnu­stöðv­unin að taka til blaða­manna sem sinna störfum við prentút­gáfu Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins, auk ljós­mynd­ara og töku­manna. Það þýðir að tvö stærstu dag­blöð lands­ins næðu ekki að koma út á svoköll­uðu „Svörtum föstu­degi“, sem er einn stærsti aug­lýs­inga­sölu­dagur árs­ins.

Kjarninn og Birt­ingur hafa þegar und­ir­ritað nýja kjara­samn­inga við Blaða­manna­fé­lag Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár