Segir SA hafa sannað hversu léleg laun blaðamanna séu

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands segir að blaða­menn séu launa­lægsta vakta­vinnu­stétt á Íslandi. Svo virð­ist sem SA átti sig ekki á því að blaða­menn sinni starfi sínu á öllum tímum sól­ar­hrings, ekki bara á skrif­stofu­tíma.

Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, þakkar Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA) fyrir birt­ingu á launa­kjörum blaða­manna í nýjum pistli á vef félags­ins. Þar segir hann upp­lýs­ingar SA stað­festa með afger­andi hætti hversu léleg laun blaða­manna raun­veru­lega séu.

[links]Í frétt sem SA birti á heima­síðu sinni í gær sagði laun blaða­manna væru yfir miðju launa­dreif­ingar þegar litið væri til reglu­legra launa og rétt undir mið­gildi grunn­launa. Því væru full­yrð­ingar Hjálmars í fjöl­miðlum um að að blaða­menn séu með lægstu laun háskóla­mennt­aðra í land­inu, rangar.

Blaða­menn sem starfa hjá Sýn, Torgi útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, Árvak­ri og RÚV sam­þykktu afger­andi í gær að fara í verk­fall.

Hjálmar segir í pistli sínum að upp­lýs­ing­arnar sem SA birti um reglu­leg laun sýni og sanni að blaða­menn séu lang­lægsta vakta­vinnu­stéttin sem þar er til­greind. „Það liggur einnig fyrir að laun blaða­manna ná ekki með­al­launum í land­inu, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar, svo nemur tugum þús­unda. Það væri svo sem eftir öðru í þessum samn­inga­við­ræðum að Samtök atvinnu­lífs­ins hefðu ekki áttað sig því, þrátt fyrir sjö mán­aða samn­inga­við­ræður og fjölda bók­aðra funda hjá rík­is­sátta­semj­ara, að blaða­menn sinna starfi sínu á öllum tímum sól­ar­hrings, en ekki bara á skrif­stofu­tíma.“

[adspot]Hjálmar segir að til­boð SA til blaða­manna sé miklu lægra en en samið hefur verið um við alla aðra á íslenskum vinnu­mark­aði og með því sé brotið blað í sögu kjara­samn­inga hér landi. „Það er skjal­fest í til­boð­inu og helg­ast af því að lækkun deili­tölu 173,36 í mán­að­ar­laun í 160, sem er vinnu­tíma­stytt­ingin í hnot­skurn, er þegar fyrir hendi í kjara­samn­ingum blaða­manna og hefur verið í ára­tugi. Blaða­menn eru því ekki að fá neitt út úr því meðan þessi breyt­ing í samn­ingum iðn­að­ar­manna gerði það að verkum, að kröfu SA, að taka þurfti upp eft­ir­vinnu á nýjan leik, eftir ára­tuga hlé. Það aftur svo nær felldi samn­ing­ana í atkvæða­greiðslum vegna hags­muna þeirra sem hafa hluta tekna sinna af yfir­vinnu. Ef samn­ingur BÍ við Birting og Kjarnann er skoð­aður, sem finna má á heima­síðu BÍ, sést að þar eru engin ákvæði um vinnu­tíma­stytt­ingu. Kostn­að­ar­auk­inn sem óum­flýj­an­lega fylgir því að stytta vinnu­vik­una um 8,33% er settur inn í taxt­ana til þess að verja lök­ustu kjör­inn og þó ekki nema að hluta til.“

Fyrstu verk­falls­að­gerðir blaða­manna þeirra miðla sem eru í sam­floti innan SA verða föstu­dag­inn 8. nóv­em­ber, þegar vinnu­stöðvun verður í fjóra tíma á net­miðlum ofan­greindra miðla.

Viku síðar mun vinnu­stöðv­unin á net­miðl­unum vara í átta klukku­stundin og þann 22. nóv­em­ber í tólf klukku­stund­ir.

Ef ekki verður samið fyrir 28. nóv­em­ber á vinnu­stöðv­unin að taka til blaða­manna sem sinna störfum við prentút­gáfu Morg­un­blaðs­ins og Frétta­blaðs­ins, auk ljós­mynd­ara og töku­manna. Það þýðir að tvö stærstu dag­blöð lands­ins næðu ekki að koma út á svoköll­uðu „Svörtum föstu­deg­i“, sem er einn stærsti aug­lýs­inga­sölu­dagur árs­ins.

Kjarninn og Birt­ingur hafa þegar samið við Blaða­manna­fé­lag Íslands um nýjan kjara­samn­ing vegna síns starfs­fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár