Blaðamenn samþykkja að fara í verkfall

Kjarninn og Birt­ingur hafa sam­þykkt að ganga að kröfum Blaða­manna­fé­lags­ins, en það á ekki við um stærstu fyr­ir­tækin.

Afger­andi meiri­hluti blaða­manna greiddi at­kvæði með vinnu­stöðv­unum í at­kvæða­greiðslu Blaða­manna­fé­lags Ís­lands sem fór fram í dag.

Blaða­menn hafa verið samn­ings­lausir frá því um ára­mót, en ekki hefur náðst saman við stærstu fyr­ir­tækin.

Kjarninn og Birt­ingur hafa þegar sam­þykkt að ganga að kröfum Blaða­manna­fé­lags­ins, en það á ekki við um stærstu fyr­ir­tækin, Sýn, Torg útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, og Árvakur, og RÚV.

Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, hefur sagt að samn­ings­til­boð hafi verið óvið­un­andi til þess, og að kröfur blaða- og frétta­manna séu sann­gjarnar og sjálf­sagðar.

Af þeim sem greiddu at­kvæði sam­þykktu 83,2 pró­sent með vinnu­stöðvun en 12,9 pró­sent á móti. Á kjör­skrá voru 211 en 131 félags­menn greiddu atkvæði, sem er 62,1 pró­sent. 109 manns greiddu atkvæði með verk­falli. Sautján greiddu gegn verk­falli og auðir eða ógildir seðlar voru fimm.

Þar með voru fjórar vinnu­stöðv­anir sam­þykktar sem fara fram að óbreyttu í næsta mán­uði en sú fyrsta er fyr­ir­huguð föstu­dag­inn 8. nóv­em­ber.

Aðrar þrjár eru skipu­lagðar þrjá föstu­daga eftir það og ná fyrstu þrjár ein­göngu til net­miðla, ljós­mynd­ara og töku­manna.

Vinnu­stöðv­an­irnar munu ná til blaða-, frétta- og mynda­töku­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár