Aldrei fleiri Íslendingar til útlanda en í fyrra

Utan­lands­ferðum Íslend­inga fer sífjölg­andi en alls sögð­ust 83 pró­sent lands­manna hafa farið utan í fyrra. Jafn­framt fer fjöldi ferða vax­andi en að með­al­tali fóru Íslend­ingar 2,8 sinnum til útlanda á árinu 2018.

Í fyrra ferð­uð­ust 83 pró­sent lands­manna utan land­stein­anna en það er hæsta hlut­fall lands­manna frá árinu 2009. Þetta kemur fram í könnun um ferða­lög Íslend­inga á vegum Ferða­mála­stofu. Utan­lands­ferðum Íslend­inga hefur farið fjölg­andi á und­an­förnum árum en með­al­fjöldi utan­lands­ferða í fyrra voru 2,8 ferðir. Á síð­ustu árum hefur umræðan um gíf­ur­lega koltví­sýr­ingslosun flug­véla auk­ist og hefur nú orðið flug­skömm verið notað til að lýsa sam­visku­biti ferða­langa vegna loft­lags­á­hrifa sífjölg­andi flug­ferða.

Gríðarlega aukning í utanlandsferðum á síðustu árum

Ferða­mála­stofa hefur frá árinu 2009 fram­kvæmt könnun um ferða­lög Íslend­inga, þar sem spurt er um ferða­lög á nýliðnu ári og fram­tíð­ar­á­form um ferða­lög. Árið 2018 sögð­ust 83 pró­sent svar­enda hafa farið í utan­lands­ferð, það er mark­tæk aukn­ing milli ára en árið 2017 sögð­ust 78 pró­sent hafa farið utan. Hlutfall Íslend­inga sem ferð­ast utan hefur farið hratt fjölg­andi á síð­ustu árum en árið 2009 sögð­ust 44 pró­sent Íslend­inga hafa farið í utan­lands­ferðir.

Jafn­framt hefur fjöldi utan­lands­ferða á hvern ein­stak­ling farið vax­andi en alls var með­al­fjöldi utan­lands­ferða 2,8 í fyrra. Alls sögð­ust 12 pró­sent svar­enda hafa farið fimm sinnum eða oftar til útlanda árið 2018, 12,2 pró­sent svar­enda fóru fjórum sínnum til útlanda og 20,7 pró­sent fóru í þrjár ferðir. Alls fóru 44,9 pró­sent svar­enda í fleira en þrjár ferðir í fyrra.

Í könn­unni var jafn­framt spurt um kom­andi ferða­lög á árinu 2019 en sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar sögð­ust fleiri að fara til útlanda í ár en í fyrra. Alls sögð­ust 52,6 pró­sent svar­enda ætla í borg­ar­ferð erlendis í ár, 43,5 pró­sent sögð­ust ætla í sól­ar­landa­ferð og 34,7 pró­sent ætla í heim­sókn til vina að ætt­ingja erlendis.

Losunin fyrst og fremst frá flugi

[links]Í heild­ina hefur losun Íslands verið að aukast á síð­ustu árum en alls var heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda 4.755 kílótonn af CO2 ígíldum, án los­unar frá LULUCF árið 2017. Það er 2,5 pró­sent aukn­ing í losun frá árinu 2016 og 32,1 pró­sent aukn­ing frá árinu 1990. Stór hluti af þeirri aukn­ingu er vegna auk­innar los­unar frá ein­­kenn­andi greinar ferða­­þjón­ust­unnar á Íslandi en hún hefur ríf­­lega fimm­fald­­ast frá árinu 1995 og nær þre­fald­­ast frá árinu 2012.

Í ein­­kenn­andi greinum ferða­­þjón­­ustu kemur los­unin fyrst og fremst frá flugi en sam­kvæmt úttekt Umhverf­is­stofnun jókst los­un frá flugi til og frá Íslandi um 13,2 pró­sent milli ár­anna 2016 og 2017. Árið 2016 var los­un­in 718.624 tonn af koltví­sýr­ingi en árið 2017 813.745 tonn. Los­un­in sem hér get­ur um, er þó ein­göngu hluti af heild­ar­los­un af flugi til og frá land­inu, þar sem hún nær ein­göngu til los­un­ar inn­an EES-svæðis­ins. Þannig er Am­er­íkuflug, eða flug til ríkja utan EES- eða ESB-ríkja ekki inni í þess­ari tölu og má því gefa sér að hún sé þó nokkuð hærri.

Fólk síður til í að fækka flugferðum

Kannanir hafa bent til þess að fólk er síður til­búið að breyta ferða­venjum sínum til að minnka vistsportið sitt. Í nið­ur­stöðum Umhverfiskönn­unar Gallups frá því í jan­úar má sjá að rúm­lega helm­ingur lands­manna sögð­ust hafa breytt ­neyslu­venj­u­m sínum í dag­legum inn­kaupum gagn­gert til þess að minnka umhverf­is­á­hrif á síð­ustu tólf mán­uð­um. Auk þess höfðu tæp­lega tveir af hverjum þremur breytt hegðun sinni fyrir umhverfið. Aftur á móti höfðu fæstir breytt ferða­venjum sínum á ein­hvern hátt til þess að minn­ka um­hverf­is­á­hrif af ferða­máta sínum en 40,8 pró­sent sögð­ust ekk­ert hafa breytt ferða­venjum sínum á síð­ustu 12 mán­uð­um. Um 20 pró­sent sögð­ust hafa breytt ferða­venjum sínum nokkuð og 5,2 pró­sent sögð­ust hafa breytt þeim mik­ið.

Því virð­ist að fólk sé frekar til í að minnka loft­lags­á­hrif með breyttri neyslu­hegðun fremur en breyttri ferða­hegðun. Í Svíþjóð hefur að und­an­förnu skap­ast mikil umræða um mengun vegna flug­ferða og hafa svíar byrjað að nota myllu­merkið #jagst­ann­arpå­mar­ken eða ég held mig á jörð­inni til að vekja athygli á mál­efn­inu. Þar á meðal er sænska aðgerð­ar­sinn­inn Greta Thunberg en hún hefur vakið athygli með yfir­lýstri ákvörðun sinni um að hætta að ferð­ast með flug­vélum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár