111 flugmenn Icelandair í 50 prósent starf

Alls munu 111 flug­menn hjá Icelandair fær­ast niður í 50 pró­sent starf og verða 30 flug­stjórar færðir í starf flug­manns á fjög­urra mán­aða tíma­bili, frá 1. des­em­ber 2019 til 1. apríl 2020.

Í ljósi áfram­hald­andi óvissu og til að lág­marka áhrif kyrr­setn­ingar MAX vél­anna á rekstur Icelandair mun félagið grípa til frek­ari ráð­staf­ana sem fela í sér tíma­bundnar breyt­ingar hjá hópi flug­manna og flug­stjóra á fjög­urra mán­aða tíma­bili, frá 1. des­em­ber næst­kom­andi til 1. apríl 2020. Aðgerð­irnar fel­ast í því að 111 flug­menn fær­ast niður í 50 pró­sent starf og 30 flug­stjórar verða færðir tíma­bundið í starf flug­manns. Í dag starfa tæp­lega 550 flug­menn og flug­stjórar hjá félag­inu.

Frá þessu er greint í frétta­til­kyn­ingu frá félag­inu.

Icelandair gerir ekki ráð fyrir því að taka Boeing 737-MAX flug­vélar á ný inn í rekstur félags­ins fyrr en í byrjun næsta árs. Upp­haf­lega gerði félagið ráð fyrir níu slíkum vélum í flota sínum á þessu ári. Í til­kynn­ing­unni segir að kyrr­setn­ingin valdi jafn­framt óvissu varð­andi afhend­ingu fimm nýrra MAX véla sem áætl­aðar voru til afhend­ingar snemma á næsta ári. Um sé að ræða for­dæma­lausa stöðu sem hafi umtals­verð nei­kvæð áhrif á rekstur félags­ins sem og flug­á­ætlun í vetur. Óhjá­kvæmi­lega hafi þessi staða áhrif á áhafna­þörf félags­ins og þurfi félagið að bregð­ast við með því að aðlaga fjölda áhafna­með­lima að flug­flota félags­ins.

„Icelandair og Félag íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA) hafa á þessu ári unnið saman að því að skapa tæki­færi til þess að takast á við sveiflur í áhafna­þörf félags­ins með öðrum leiðum en áður hefur tíðkast og nú þegar hafa störf tæp­lega 100 flug­manna tekið breyt­ingum yfir vet­ur­inn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hvað varðar stöðu mála vegna Boeing 737 MAX flug­véla, þá hefur yfir­grips­mikið ferli, sem er í höndum alþjóða­flug­mála­yf­ir­valda, staðið yfir síðan vél­arnar voru kyrr­settar fyrr á þessu ári. Sú vinna fer fram í sam­vinnu við Boeing og þau flug­fé­lög sem eru með MAX vélar í rekstri og sam­kvæmt Icelandair er það hags­muna- og for­gangs­mál allra hlut­að­eig­andi að tryggja öryggi vél­anna og koma þeim aftur í rekstur.

„Icelandair mun, hér eftir sem hingað til, leggja höf­uð­á­herslu á að lág­marka tjón félags­ins og áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar á far­þega og íslenska ferða­þjón­ustu. Félagið er þegar í við­ræðum við Boeing um að fá það fjár­hags­lega tjón sem hlot­ist hefur af kyrr­setn­ingu vél­anna bætt,“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár