Icelandair mun ekki geta notað Max-vélarnar í sumar

737 Max-vélar Boeing fara ekki í loftið í sumar. Icelandair reiknar því ekki lengur með þeim í flug félags­ins á háanna­tíma. Félagið býst samt sem áður við því að flytja að minnsta kosti jafn marga far­þega og í fyrra til lands­ins.

Bogi Níls Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Níls Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Icelandair gerir ekki ráð fyrir því að geta notað Boeing 737 Max-vélar sínar í flugi félags­ins háanna­tíma næsta sumar. Í des­em­ber sendi Icelandair frá sér til­kynn­ingu þar sem sagt var að félagið gerði ráð fyrir að geta not­ast við vél­arnar í maí 2020, og þar með yfir sum­ar­mán­uð­ina þegar eft­ir­spurn er mest.

Í gær greindi Boeing hins vegar frá því að flug­véla­fram­leið­and­inn reikni ekki með því að kyrr­setn­ingu 737 Max-vél­anna verði aflétt fyrr en um mitt ár. Í kjöl­farið þarf að hefj­ast þjálfun áhafna að nýju og ýmsar próf­anir áður en að eig­endur vél­anna mega fara að nota þær. Í ljósi þessa blasti við að Icelandair, sem hafði gert ráð fyrir að nota níu 737 Max-vélar í leiða­kerfi sínu í sumar, mun ekki geta flogið þeim vélum.

Í til­kynn­ingu sem Icelandair sendi til Kaup­hallar Íslands í nótt segir að vegna ráð­staf­ana sem félagið hafi þegar gripið til verði áhrif á útgefna flug­á­ætlun félags­ins óveru­leg. „Ástæður þess eru að hún var sett upp með það að leið­ar­ljósi að tak­marka áhrif frek­ari tafa á aflétt­ingu kyrr­setn­ing­ar­innar. Búið er að leigja inn þrjár Boeing 737-800 vélar og ákveðnum fjölda Boeing 757 véla verður haldið lengur í flota félags­ins en áður hafði verið gert ráð fyrir.

Ljóst er að fjár­hags­leg áhrif áfram­hald­andi kyrr­setn­ingar verða mun minni á árinu 2020 en þau voru árið 2019. Skýrist það af ofan­greindum þáttum auk þess sem gengið hefur verið frá leigu við­bótar véla með meiri fyr­ir­vara nú en árið 2019 og leigu­kjör því mun hag­stæð­ari. Áhafnir Icelandair munu jafn­framt fljúga leigu­vél­unum en ekki áhafnir leiguflug­fé­laga sem leigðar voru inn með skömmum fyr­ir­vara árið 2019. Félagið hefur þannig haft tæki­færi til að skipu­leggja rekstur sinn með þessa sviðs­mynd í huga.”

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að áhersla Icelandair á þessu ári verði líkt og á því síð­asta á ferða­manna­mark­að­inn til Íslands. „Félagið gerir ráð fyrir að flytja að lág­marki jafn­marga far­þega til Íslands á árinu 2020 og árið 2019.

[links]Icelandair Group og Boeing hafa tví­vegis gert bráða­birgða­sam­komu­lag um skaða­bætur. Viðræður um frek­ari skaða­bætur standa yfir og stefnir Icelandair Group að því að fá allt tjón vegna MAX kyrr­setn­ing­ar­innar bætt.”

Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber að Boeing hafi tíma­bundið hætt fram­leiðslu á 737 Max vél­un­um, meðal ann­ars vegna óvissu um hvenær kyrr­setn­ingu þeirra yrði aflétt.

Ástæðan fyrir kyrr­­setn­ing­unni eru flug­­slys í Indónesíu 29. októ­ber 2018 og í Eþíópíu 13. mars 2019, en í þeim lét­ust allir um borð, sam­tals 346. Frum­n­ið­­ur­­stöður rann­­sókna í lönd­unum fyrr­­nefndu benda til þess að vél­­arnar hafi verið með gallað MCAS-­­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, og því hafi þær tog­­ast til jarðar með fyrr­­nefndu afleið­ing­um.

Fjöl­margar athuga­­semdir hafa einnig komið fram í rann­­sóknum ann­­arra á Boeing, þar á meðal hjá alrík­­is­lög­regl­unni FBI. Auk þess er Banda­­ríkja­­þing ennþá að rann­saka félagið og hvernig það stóð að upp­­lýs­inga­­gjöf til banda­rískra flug­­­mála­yf­­ir­­valda og eft­ir­lits­að­ila. Í yfir­­heyrslum í þing­inu hafa stjórn­­endur Boeing verið harð­­lega gagn­rýndir fyrir að upp­­lýsa ekki um galla í vél­un­um, og einnig að slaka á eft­ir­liti með fram­­leiðsl­unn­i.

Kyrr­­setn­ingin á Max vél­unum hefur haft mikil áhrif víða um heim, ekki síst á Íslandi. Í Pen­inga­­málum Seðla­­banka Íslands sem komu út í nóv­­em­ber, segir að sam­­dráttur í ferða­­þjón­­ustu á árinu hafi ekki síst átt sér stað vegna kyrr­­setn­ingar á Max vél­un­um, sem hefur leitt til þess að Icelandair hefur þurft að draga úr sæta­fram­­boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár