Útgerðarfélag Reykjavíkur gjaldfærði milljarðagreiðslu sem á að fara í ríkissjóð

Stærsti eig­andi Brim, í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, hagn­að­ist um 4,4 millj­arða króna í fyrra. Mestu mun­aði um sölu á ákveðnum eigum til Brim. Hagn­að­ur­inn hefði verið mun hærri ef félagið hefði ekki þurft að gjald­færa 3,1 millj­arð króna vegna dóms.

Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur og var forstjóri Brims þar til fyrr á þessu ári.
Guð­mundur Krist­jáns­son er aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og var for­stjóri Brims þar til fyrr á þessu ári. Mynd: Brim

Hagnaður Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í fyrra var 31,9 millj­ónir evra, um 4,4 millj­arðar króna, miðað við með­al­gengi evru á síð­asta ári. Það er umtals­verð við­bót við 1,6 millj­arða króna hagn­að­inn sem féll til árið 2018.

Mestu mun­aði um sölu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur á eign­ar­hluta sínum í sölu­fé­lögum í Asíu, Seafood Services ehf. og Gjörva ehf. til Brim hf. á árinu 2019. Hagnaður af þeim við­skiptum nam 20 millj­ónum evra, eða tæp­lega 2,8 millj­örðum króna. Hagn­að­ur­inn hefði verið 3,1 millj­örðum krónum meiri ef félagið hefði ekki þurft að bók­færa þá upp­hæð sem kostnað vegna nið­ur­stöðu dóm­stóla í máli sem Glitnir HoldCo vann gegn því fyrr á árinu 2020. Sú upp­hæð á að óbreyttu að enda í rík­is­sjóði.

Fisk­veiði­heim­ildir sem félag­inu hefur verið úthlutað beint eru metnar á 81,6 millj­ónir evra, um 11,3 millj­arða króna. Þær eru færðar sem eignir og lækka um 20 millj­ónir evra, 2,8 millj­arða króna, milli ára vegna sölu á heim­ildum. Eign­ar­hlutir í hlut­deild­ar­fé­lögum aukast hins vegar vegnar milli ára og eru metnir á 275,5 millj­ónir evra, rúm­lega 38 millj­arða króna.

Eignir Útgerð­ar­fé­lags­ins eru metnar á 463,6 millj­ónir evra, rúma 64 millj­arða króna, og eigið fé var 236,7 millj­ónir evra, tæp­lega 33 millj­arðar króna, um síð­ustu ára­mót. Skuldir við lána­stofn­anir juk­ust umtals­vert á síð­asta ári, um rúm­lega 50 millj­ónir evra, og voru 162,1 millj­ónir evra, 22,5 millj­arða króna, í lok síð­asta árs.

Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur.

[adspot]Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra og stjórn­ar­manns í Brim­i. Helstu eign þess er ráð­andi hlutur í Brimi, eina útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins sem er skráð á markað.

Bókfærðu milljarða greiðslu í ríkissjóð

Athygli vekur að Útgerð­ar­fé­lagið færir í reikn­ing­inn greiðslu upp á 22,6 millj­ónir evra, um 3,1 millj­arð króna, vegna „áhrifa af dómi“. Þar er um að ræða dóms­mál sem Glitnir HoldCo, félag sem stofnað var á grunni þrota­bús Glitnis, höfð­aði og Útgerð­ar­fé­lagið tap­aði í hér­aði í mars á þessu ári vegna afleiðu­samn­inga sem það gerði fyrir banka­hrun og neit­aði að gera upp í kjöl­far þess. Upphæðin á að renna í rík­is­sjóð vegna stöð­ug­leika­samn­ings sem gerður var við þrotabú Glitnis, sam­kvæmt því sem kom fram í vitn­is­burði Hauks C. Bene­dikts­sonar, starfs­manns Seðla­banka Íslands sem stýrði Eigna­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ) um ára­bil, og Steinars Þórs Guð­geirs­sonar, lög­manns Seðla­banka Íslands fyrir hér­aðs­dómi í mál­inu.

[links]Í árs­reikn­ingum segir að dómnum hafi verið áfrýjað til Lands­réttar. „Í reikn­ings­skilum félags­ins er færð upp skuld­bind­ing vegna þessa. Með færslu þeirrar skuld­bind­ingar felst ekki við­ur­kenn­ing á skuld­inni af hálfu félags­ins og getur breyst við áfrýjun.“

Runólfur Viðar Guð­mundunds­son, fram­kvæmda­stjóri Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, segir hins vegar að dómi hér­aðs­dóms hafi ekki verið áfrýjað og að Útgerð­ar­fé­lagið hafi þegar greitt Glitni HoldCo að fullu.

Málið hefur tekið á sig marg­s­­konar mynd­­ir. Meðal ann­­ars kærði Útgerð­­ar­­fé­lagið fram­­ferði Ólafs Eirík­s­­son­­ar, lög­­­manns Glitnis HoldCo, í dóms­­mál­inu til Úrskurð­­ar­­nefndar lög­­­manna sem úrskurð­aði í mál­inu þann í lok jan­úar í fyrra. Þar var hátt­­semi hans, sem í fólst að veita lyk­il­vitni rangar upp­­lýs­ingar um stað­­reyndir og láta hjá líða að til­­kynna Útgerð­­ar­­fé­lag­inu að til stæði að hafa sam­­band við vitn­ið, sögð vera aðfinnslu­verð.

Þá kærði Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur til lög­­­reglu, þann 17. apríl 2018, það sem í árs­­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins var kallað þá „hátt­­semi að rang­­færa sönn­un­­ar­­gögn“ í dóms­­mál­inu. Sú hátt­­semi á að hafa falið í sér „að „klippa“ eða fjar­lægja með öðrum hætti, 7 cm neðan af öllum samn­ingum svo að þeir myndu líta út á annan veg en þeir gerð­u.

Ein af stóru blokkunum í sjávarútvegi

Í lok mars síð­ast­lið­ins héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins á tæp­lega 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, sam­kvæmt sam­an­tekt Fiski­stofu. Innan þessa hóps eru aðilar sem eru tengdir þótt þeir séu það ekki sam­kvæmt lögum um fisk­veið­ar. Brim, Sam­herji og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eru fyr­ir­ferða­mestu útgerð­irn­ar. Þær halda á, einar og sér og ásamt félögum sem eig­endur þeirra eiga í, á tæp­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Litlar breyt­ingar hafa verið á umfangi kvóta þeirra stóru útgerð­ar­hópa sem tengj­ast inn­byrðis án þess þó að verða tengdir aðilar sam­kvæmt lög­um. Þannig er Brim sú útgerð sem heldur á mestum kvóta, eða 10,13 pró­sent. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 43,97 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um.

Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög eru því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár