Telja að yfirráð yfir Brimi hafi getað skapast í síðasta lagi í september í fyrra

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur ekk­ert benda til þess að „vatns­kil hefðu orðið í við­skipta­tengslum og sam­eig­in­legum hags­munum bræðr­anna Guð­mundar og Hjálmars Þór Krist­jáns­sona, enda þótt gripið hefði verið til ráð­staf­ana til að breyta ásýnd tengsl­anna.“

Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur og var forstjóri Brims þar til í síðustu viku.
Guð­mundur Krist­jáns­son er aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og var for­stjóri Brims þar til í síð­ustu viku. Mynd: Brim

Í gær var birt ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­runa Brims og tveggja minni sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, Kambs hf. og Grá­brókar ehf. Tilkynnt hafði verið um kaup Brims á hinum síð­ar­nefndu í októ­ber í fyrra. Þær voru báðar að stærstum hluta í eigu Hjálmars Þórs Krist­jáns­sonar, bróður Guð­mundar Krist­jáns­sonar, aðal­eig­anda Brims og þar til í síð­ustu viku for­stjóra félags­ins.

Með ákvörð­un­inni var rann­sókn þess á þeim sam­runa lokið en til­kynnt var um aðra og mun stærri rann­sókn á því hvort að þeir bræður, Guð­mundur og Hjálmar Þór, og félög þeirra hefðu í raun yfir­ráð yfir einu stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­æki lands­ins, Brim í skiln­ingi sam­keppn­islaga.

Nið­ur­staða frum­mats eft­ir­lits­ins er að slík yfir­ráð séu til staðar. Þ.e. að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, stærsti ein­staki eig­andi Brims, og tengdir aðilar hefðu stofnað til yfir­ráða í Brimi. Það hafi gerst í síð­asta lagi 8. sept­em­ber 2019.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi kaup Brims á Kambi og Grábrók ekki kalla á frek­ari aðgerðir að sinni hálfu en boð­aði þess í stað að það myndi hefja sjálf­stæða rann­sókn á því hvort að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur og tengdir aðilar hefðu í raun myndað yfir­ráð í Brimi í skiln­ingi sam­keppn­islaga, líkt og frum­mat þess hefði leitt í ljós.

Umræddir tengdir aðilar eru, sam­kvæmt frummati eft­ir­lits­ins, áður­nefnt Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, Fiski­tangi ehf., KG Fisk­verskun og FISK- Seafood eign­ar­halds­fé­lag, sem í dag heitir RE-13 ehf.

[adspot]Öll ofan­greind félög eru að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar og Hjálmars Þórs. Í byrjun sept­em­ber í fyrra áttu bræð­urnir báðir hlut í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, sem hafði þá nýverið fest kaup á FISK-Seafood eign­ar­halds­fé­lagi. Guð­mundur átti síðan Fiski­tanga og Hjálmar átti KG fisk­verkun.

Ekkert bendi til vatnskila í sameiginlegum hagsmunum bræðranna

Dag­setn­ingin 8. sept­em­ber 2019 vísar til þess að þann dag keypti Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur Fisk-Seafood, sem átti 10,78 pró­sent hlut í Brimi, af Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga. Það hafði keypt hlut­inn að mestu af líf­eyr­is­sjóðnum Gildi nokkrum vikum fyrr eftir að sjóð­ur­inn ákvað að selja sig út úr Brimi. Ástæða þess voru ítrekuð við­skipti Brims við stærsta hlut­hafa félags­ins, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur. Þann 8. sept­em­ber hvarf Kaup­fé­lagið svo út úr hlut­hafa­hópi Brims jafn skjótt og það birt­ist þegar Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur keypti allan hlut þess á tæp­lega átta millj­arða króna.

Eftir þessi við­skipti fór sam­eig­in­leg eign­ar­hlut­deild félaga í eigu bræðr­anna Guð­mundar og Hjálmars Þórs í Brimi í 49,29 pró­sent. Ef tekið var til­lit til hluta­fjár­hækk­unar í Brimi sem nota átti til að kaupa ákveðnar eignir af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur var sam­an­lögð hlut­deild þeirra 52,76 pró­sent, sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

[adspot]Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins væri ekk­ert sem benti til þess að „vatns­kil hefðu orðið í við­skipta­tengslum og sam­eig­in­legum hags­munum bræðr­anna Guð­mundar og Hjálmars Þór Krist­jáns­sona, enda þótt gripið hefði verið til ráð­staf­ana til að breyta ásýnd tengsl­anna. Þá benti rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til þess að þótt ein­ungis væri horft til hlut­deildar Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, Fiski­tanga, Guð­mundar Krist­jáns­sonar og FISK-Seafood eign­ar­halds­fé­lags í Brimi, þá kynni hún ein og sér að hafa verið nægj­an­leg til að við­halda yfir­ráðum aðil­anna.“

Þær ráð­staf­anir sem gripið var til, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi að hefðu breytt ásýnd tengsla bræðr­anna, voru fram­kvæmdar í des­em­ber 2019. Þá var greint frá því að Guð­mundur og Hjálmar Þór hefðu rofið fjár­hags­leg tengsl sín. Í því fólst að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur keypti 33,3 pró­sent hlut KG fisk­verk­unar í eign­ar­halds­fé­lag­inu Krist­ján Guð­munds­son ehf., sem átti 37 pró­sent í Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur.

Þessi gjörn­ingur átti að aðskilja eign­ar­hald bræðr­anna á hlutafé í Brimi.

Upplýstir um málið 28. apríl

Athuga­semdir Brims og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur vegna frum­mats­ins bár­ust Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu 13. mars 2020. Þar var frummati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um stofnun yfir­ráða Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og tengdra aðila í Brimi mót­mælt.

Þau mót­mæli hafa ekki talið mikið þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi ekki vera for­sendur til að taka end­an­lega afstöðu til mögu­legra yfir­ráða Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og tengdra aðila í Brimi. Aðilar máls­ins voru upp­lýstir um þetta á síma­fundi 28. apríl, eða á þriðju­dag í síð­ustu viku. Þar var þeim greint frá því að afstaða yrði tekin til þess hvort raun­veru­leg yfir­ráð hefðu skap­ast í Brim í sér­stöku máli þar rann­sakað yrði hvort að við mögu­lega myndun yfir­ráða í Brimi hafi verið fram­kvæmdur sam­runi af hálfu aðila í and­stöðu við sam­keppn­is­lög. Í þeirri rann­sókn verður aflað frek­ari sjón­ar­miða og gagna frá hlut­að­eig­andi aðilum.

Tveimur dögum síðar, 30. apríl, var greint frá því að Guð­mundur Krist­jáns­son hefði sagt af sér sem for­stjóri Brims. Hann situr þó enn í stjórn félags­ins.

Sú útgerð sem heldur á mestu kvóta

Brim er sú útgerð sem heldur á mestum kvóta allra á Íslandi, eða 10,13 pró­­sent, sam­kvæmt upp­færðum lista Fiski­stofu um sam­þjöppun afla­heim­ilda frá 31. mars síð­ast­liðnum. Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á 44,65 pró­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­ur­­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­­sent af öllum afla­heim­ild­­um.

[links]Til við­­bótar heldur útgerð­­ar­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi hópur útgerða sem tengj­ast Guð­mundi er því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þá heldur KG Fisk­verkun, að fullu í eigu Hjálmars Þórs, á 1,04 pró­sent alls kvóta.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að félög tengd bræðr­unum Guðmundi og Hjálmari Þór haldi sam­eig­in­lega á um 16,91 pró­sent af heild­ar­afla­marki miðað við þorskígildi, þar af 0,68 pró­sentu­stig króka­afla­mark af heild­ar­afla­marki miðað við 31. mars 2020.

Hámark þess sem tengdir aðilar mega halda á sam­kvæmt lögum um stjórn fisk­veiða er tólf pró­sent.

Unnið hefur verið að úrbótum um þann hluta lag­anna sem snýr að skil­grein­ingu á tengdum aðilum frá því í byrjun árs í fyrra. Verk­efna­stjórn var mynduð og frum­varp um hluta til­lagna hennar kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda fyrr á þessu ári. Til stóð að leggja það fram á yfir­stand­andi þingi en það hefur nú verið tekið út af þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19. Hags­muna­sam­tök útgerða gagn­rýndu frum­varpið harð­lega, töldu það langt umfram efni og að það gengi gegn ákvæðum Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár