Sjávarútvegurinn greiddi sér 21,5 milljarða króna í arð í fyrra

Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, sam­tala arð­greiðslna og auk­ins eigin fjár þeirra, hefur vænkast um meira en 500 millj­arða króna frá banka­hrun. Geirinn greiddi sér meira út í arð í fyrra en hann greiddi í öll opin­ber gjöld.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér 21,5 millj­arða króna í arð á síð­asta ári. Á sama tíma greiddu félögin 17,4 millj­arða króna í bein opin­ber gjöld. Inni í þeirri tölu eru veiði­gjöld (4,8 millj­arðar króna), tekju­skattur (7,3 millj­arðar króna) og áætlað trygg­inga­gjald (5,3 millj­arðar króna).

Þetta er í eina skiptið á síð­ustu fimm árum sem sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur greitt minna í opin­ber gjöld en hann tók út í arð­greiðslur. Raunar hefur geir­inn ein­ungis einu sinni greitt jafn lítið í bein opin­ber gjöld innan árs á því tíma­bili og hann gerði í fyrra, en það var árið 2017 þegar heild­ar­greiðslur hans í opin­ber gjöld voru 15,8 millj­arðar króna.

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur að sama skapi aldrei greitt sér jafn háa upp­hæð út í arð og hann gerði í fyrra. Inni í þeirri tölu, 21,5 millj­arðar króna, eru um tíu millj­arða króna arð­greiðslur dótt­ur­fé­laga Samherja til móð­ur­fé­lags­ins en það greiddi sjálft ekki út arð.

Heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út síð­asta ár nema 70,5 millj­örðum króna. Á sama tíma hefur geir­inn greitt 35,9 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða rétt rúm­lega 50 pró­sent af þeirri upp­hæð sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa fengið í arð.

Þetta kemur fram í Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte sem kynntur var á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum 2021 sem fór fram í morg­un. Gagna­grunn­ur­inn nær utan um rekstur 90 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi en fjár­hæð­irnar hafa verið upp­reikn­aðar til að end­ur­spegla allan geir­ann.

Bókfært eigið fé jókst um 28 milljarða

Bókfært eigið fé íslensks sjáv­ar­út­vegs hefur aldrei verið meira en það var í lok síð­asta árs, þegar það var 325 millj­arðar króna. Þar er um að ræða hreinar eignir þegar búið er að greiða arð út úr geir­anum og gera upp öll opin­ber gjöld. Alls jókst bók­fært eigið fé sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um 28 millj­arða króna milli ára og um 104 millj­arða króna frá árinu 2014.

Hagnaður fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hefur enda verið 181 millj­arður króna á síð­ustu fimm árum og það sem situr ekki inni í fyr­ir­tækj­unum sem eigið fé hefur verið greitt út sem arður til eig­enda þeirra.

Frá hruni og fram að þeim tíma batn­aði eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna um 404 millj­arða króna, en hún var nei­kvæð í lok árs 2008. Frá árinu 2010 hafa þau greitt 124,7 millj­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­ur. Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 528,7 millj­arða króna frá hruni.

Með tekjur og skuldir í öðrum gjaldmiðlum

Tekjur íslensks sjáv­ar­út­vegs juk­ust um fjóra millj­arða króna á síð­asta ári og voru 284 millj­arðar króna. Hagnaður dróst hins vegar saman um 14 millj­arða króna milli ára og var 29 millj­arðar króna. Þar skiptir þó nær öllu máli að geng­is­tap var 19 millj­arðar króna sem fellur til vegna þess að öll stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins gera upp í öðrum gjald­miðlum en íslenskri krónu. Þegar hún styrk­ist þá mynd­ast geng­is­tap hjá þeim, en þegar hún veik­ist mynd­ast geng­is­hagn­aður. EBIT-hagn­aður – rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði og skatta – íslensks sjáv­ar­út­vegs stóð nán­ast í stað milli ára, var 60 millj­arðar króna árið 2019 (þegar geng­is­tap var ein­ungis þrír millj­arðar) en 57 millj­arðar króna í fyrra.

Sömu sögu er að segja af skulda­stöðu íslensks sjáv­ar­út­vegs. Heild­ar­skuldir í íslenskum krónum hækk­uðu um 46 millj­arða króna í 461 millj­arð króna. Ástæðan er þó fyrst og síð­ast geng­is­breyt­ingar enda hafa stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin tekið uppi­stöðu lána sinna í öðrum gjald­miðli en íslenskri krónu og hjá öðrum lán­veit­endum en íslenskum bönkum.

Veiðigjöldin lækkuðu

Veiði­gjöld í fyrra voru, líkt og áður sagði, 4,8 millj­arðar króna. Þau lækk­uðu á milli ára um 1,8 millj­arða króna og eru þau lægstu sem greidd hafa verið í rík­is­sjóðs síð­ustu árin.

Sam­tals frá árinu 2011, og út síð­asta ár, greiddi sjáv­ar­út­veg­ur­inn 74,7 millj­arða króna í veiði­gjöld.

Ný lög um veið­i­­­gjald tóku gildi í byrjun árs 2019 þar sem meðal ann­­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­­stofns. Sam­kvæmt þeim er veið­i­­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veið­i­­ár­s.

Sam­herjar með sterka stöðu

Mikil sam­þjöppun hefur orðið innan kvóta­kerf­is­ins á und­an­förnum árum sem leitt hefur til þess að eig­endur örfárra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa efn­ast veru­lega. Ítök þeirra í ótengdum geirum hér­lendis hafa sam­hliða vaxið hratt.

Miðað við síð­asta birta lista Fiski­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­ar­vinnslan, ásamt dótt­ur­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 7,7 pró­sent hans. Miðað við það sem var greitt fyrir afla­heim­ildir Bergs ætti virði þess kvóta að vera um 92 millj­arðar króna. Afla­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar eru bók­færðar á um 30 millj­arða króna. Tveir stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og Kjálka­nes.

Næst stærsta fyr­ir­tækið á list­anum yfir þær útgerðir sem erum með mestu afla­hlut­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu er einmitt Sam­herj­i.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­­sent kvót­ans. Sam­an­lagt heldur Sam­herji því á níu pró­sent úthlut­aðra veiði­heim­ilda.

Gjög­ur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,3 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ild­um, sem er 27,5 millj­arða króna virði.

Helstu eigendur og stjórnendur Samherjasamstæðunnar, stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins, eru Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson og ættingjar þeirra.
Helstu eig­endur og stjórn­endur Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis lands­ins, eru Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son og ætt­ingjar þeirra.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­sögu allra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­­sent. ­Út­­­­­gerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­­sent kvót­ans.

Sam­an­lagt virði þessa kvóta sem Sam­herji heldur á, miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­heim­ild­ir, er um 107,6 millj­arðar króna.

Þessir aðil­ar: Síld­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mögu­legt að séu tengd­ir, halda því sam­tals á 19 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Mark­aðsvirði hans er um 227 millj­arðar króna.

Nokkrar blokkir fyr­ir­ferða­miklar

Brim, sem er skráð á mark­að, er sú útgerð sem heldur beint á mestum kvóta, eða 10,41 pró­sent hans. Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á 43,97 pró­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­ur­­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,57 pró­­sent af öllum afla­heim­ild­­um. Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur er að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar, for­­stjóra Brims.

Til við­­bótar heldur útgerð­­ar­­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,43 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 15,51 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Mark­aðsvirði hans er um 184,1 millj­arðar króna miðað við síð­ustu við­skipti með kvóta.

Guðmundur Kristjánsson stýrir Brim.
Guð­mundur Krist­jáns­son stýrir Brim.

Kaup­­­­­fé­lag Skag­­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,51 pró­­­­­sent heild­­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­­sent í Vinnslu­­­­­stöð­inni í Vest­­­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­­sent heild­­­­­ar­afla­hlut­­­­­deild. Þá á Vinnslu­­stöðin 48 pró­­sent hlut í útgerð­­ar­­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­­manna­eyj­um, sem heldur á 0,8 pró­­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­­ías Cecils­­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,27 pró­­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­­ar­kvóti þess­­­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­­sent, og er því undir 12 pró­­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­­greindir með öðrum hætti.

Mark­aðsvirði þess kvóta, miðað við síð­ustu gerðu við­skipti, er um 132,4 millj­arðar króna.

Þessar þrjár blokkir, sú sem hverf­ist í kringum Sam­herja, sú sem hverf­ist í kringum Brim og sú sem hverf­ist í kringum útgerð Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, heldur því sam­tals á 45,6 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt mark­aðsvirði hans er um 544,8 millj­arðar króna.

Alls er 67,4 pró­sent alls úthlut­aðs afla í höndum 15 útgerða sem margar hverjar tengj­ast inn­byrð­is.

Almenningur vill breytingar

Í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga voru gerðar ýmsar kann­anir á skoðun almenn­ings á stjórn fisk­veiða hér­lendis. Í könnun sem MMR vann fyrir Öldu - félag um sjálf­bærni og lýð­ræði kom meðal ann­ars fram 66 pró­sent lands­manna, tveir af hverjum þrem­ur, voru óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi. Þar af sögð­ust 38 pró­sent vera mjög óánægð með hana.

Í sömu könnun kom fram að 64 pró­sent lands­manna, næstum tveir af hverjum þrem­ur, telja að núver­andi útfærsla á kvóta­kerf­inu ógni lýð­ræð­inu.

Loks var birt nið­ur­staða könn­unar sem Gallup gerði fyrir þrýsti­hóp­inn Þjóð­ar­eign. Í henni var fólk spurt hvort það styddi að mark­aðs­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­ar­inn­ar. Nið­ur­staðan var sú að 77 pró­sent aðspurðra var fylgj­andi því og ein­ungis 7,1 pró­sent var and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ingu. Afger­andi meiri­hluti kjós­enda allra flokka var fylgj­andi breyt­ing­unni þótt stuðn­ing­ur­inn væri minni hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks en þeim sem ætla að kjósa aðra flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið undanfarið ár