Ríkið lengir í lánum Vaðlaheiðarganga um 36 ár og eignast félagið að nánast öllu leyti

Þegar ákveðið varð að gera Vaðla­heið­ar­gang átti að vera um einka­fram­kvæmd að ræða. Ríkið átti að lána fyrir fram­kvæmd­inni en fá allt sitt til baka í ein­greiðslu þremur árum eftir að þau yrðu opnuð.

Íslenska ríkið hefur breytt fimm millj­örðum króna af skuldum Vaðla­heið­ar­ganga hf. við rík­is­sjóð í nýtt hlutafé. Búast má við því að eftir þá breyt­ingu verði ríkið að minnsta kosti eig­andi að um 90 pró­sent af hlutafé í félag­inu, sem byggði og rekur göng á Norð­ur­landi sem eru sam­nefnd því. Auk þess hefur ríkið samið við félagið um að lengja í lánum þess til árs­ins 2057 þannig að það greiði um 200 millj­ónir króna á ári af því. Lánin voru gjald­fallin áður en sam­komu­lag um þetta náð­ist í lok júní síð­ast­lið­ins en upp­haf­legt sam­komu­lagi gerði ráð fyrir að þau yrðu greidd með einni greiðslu í maí í fyrra. Því munu lánin inn­heimt­ast 36 árum síðar en stóð til eftir að sam­komu­lagið var gert.

Alls skuld­uðu Vaðla­heið­ar­göng ehf. íslenska rík­inu 19,7 millj­arða króna í lok árs 2021. Stjórn­völd hafa, enn sem komið er, ekki greint frá sam­komu­lag­inu. Upp­lýs­ingar um það er hins vegar að finna í árs­reikn­ingi Vaðla­heið­ar­ganga sem birtur var í síð­asta mán­uði.

Þar kemur líka fram að Vaðla­heið­ar­göng hafi tapað 884,5 millj­ónum króna á síð­asta ári, sem er 80 millj­ónum krónum meira en félagið tap­aði á árinu 2020. Þegar við bæt­ist tap upp á 592 millj­ónir króna á fyrsta heila rekstr­ar­ár­inu eftir að göngin voru opnuð 1. des­em­ber 2018 þá liggur fyrir að sam­an­lagt tap Vaðla­heið­ar­ganga á árunum 2019 til 2021 var tæp­lega 2,3 millj­arðar króna.

Þar skiptir fjár­magns­kostn­aður, greiðsla á þeim lánum sem voru tekin til að gera göngin, mestu en rekstr­ar­kostn­aður þeirra (við­hald og rekstur, laun starfs­manna og inn­heimtu­kostn­aður) er um 23 pró­sent af veltu.

Hver ferð kostar 1.500 krónur

Vaðla­heið­ar­göng stytta vega­lengd­ina milli Akur­eyrar og Húsa­víkur um 16 kíló­metra. Ef keyrt er á 90 km/klst. með­al­hraða stytta göngin því leið­ina um ell­efu mín­útur. Enn er hægt að keyra gömlu leið­ina um Vík­ur­skarð og sleppa þannig við að greiða í göngin, en vetr­ar­færð á þeim fjalla­vegi getur verið erfið. Í júlí 2019 greindi DV frá því að rekstur gang­ana hefði valdið von­brigðum og að tekjur væru umtals­vert undir áætl­un. Rekstr­ar­fé­lag gang­ana hefði áætlað að um 90 pró­sent af umferð um svæðið myndi fara í gegnum göngin en raunin hafi verið um 70 pró­sent. Aðrir keyrðu áfram um Vík­ur­skarð. Á árinu 2020, sem er síð­ustu birtu tölur um ferðir á svæð­inu, fór um fimmt­ungur allra sem keyrðu þar um Vík­ur­skarð frekar en göngin.

Verð í göngin fyrir fólks­bíla (yfir 90 pró­sent allra ferða um þau eru farin á slíkum) var lækkað árið 2020 úr 2.500 í 1.500 krónur fyrir staka ferð og afslátt­ar­kjör voru einnig ein­földum. Flutn­inga­bílar borga nú 2.500 til 5.200 krónur á ferð eftir stærð. Einnig er hægt að skrá sig í áskrift, en það kostar 21.000 krónur á mán­uði. Auk þess er hægt að kaupa tíu stakar ferðir á 12.500 krónur eða 50 stakar ferðir á 40.000 þús­und krónur.

Sé keyrt í gegnum göngin án þess að vera búinn að borga fer inn­heimtu­seð­ill í heima­banka eig­anda bíls­ins ásamt inn­heimtu­gjaldi.

Sum öku­tæki greiða ekki fyrir að keyra í gegnum göngin. Þar er um að ræða til dæmis lög­reglu­bif­reiðar, sjúkra­bif­reiðar, bif­reiðar björg­un­ar­sveita og öku­tæki Vega­gerð­ar­innar. Ferðir þeirra eru þó taldar með þegar umferð um göngin er reiknuð.

Átti að verða einkaframkvæmd

En spólum aðeins aftur. Rætt hafði verið um Vaðla­heið­ar­göng sem sam­göngu­úr­bót milli stærstu þétt­býl­is­svæða á Norð­ur­landi í ára­tugi áður en þau komust á skrið, eða allt frá árinu 1990. Á upp­gangs­tím­anum eftir ald­ar­mót var félagið Greið leið stofnað af sveit­ar­fé­lögum á svæð­inu og fjár­fest­inga­fé­lag­inu KEA. Lagt var í allskyns vinnu til að reyna að koma fram­kvæmd­inni á kopp­inn sem mögu­legri einka­fram­kvæmd, sem þyrfti þá ekki að lúta lög­málum sam­göngu­á­ætl­unar, sem ákveður röð þeirra sam­göngu­fram­kvæmda sem ríkið fjár­magnar. Með öðrum orðum væri hægt að ráð­ast fyrr í einka­fram­kvæmd, sem yrði fjár­mögnuð með veggjöldum, en að bíða eftir því að tími gangn­anna myndi koma á sam­göngu­á­ætlun.

Á árunum 2009 og 2010, eftir banka­hrun, ákvað ​​íslenska ríkið að kanna hvort fýsi­legt væri að ráð­ast í gerð Vaðla­heið­­­ar­­­ganga í einka­fram­­­kvæmd.

Leitað var til íslenskra líf­eyr­is­­­sjóða um að koma að fjár­­­­­mögnun verk­efn­is­ins en ekki náð­ist saman um slíkt. Sjóð­irnir töldu verk­efnið ein­fald­lega ekki ganga upp fjár­hags­lega.

Því ákvað þáver­andi rík­­­is­­­stjórn Sam­­­fylk­ingar og Vinstri grænna að verk­efnið yrði fjár­­­­­magnað af rík­­­is­­­sjóði til skamms tíma en síðar yrði leitað á almennan markað að lang­­­tíma­fjár­­­­­mögn­un. Verk­efnið átti að verða aðlað­andi fyrir fjár­­­­­festa m.a. vegna þess að fjár­­­­­mögn­unin átti að verða rekstr­­­ar­­­lega sjálf­­­bær með inn­­­heimtu veggjalds.

Sérlög samþykkt af minnihluta þingmanna

Í júní 2012 sam­­­þykkti Alþingi svo sér­lög um gerð jarð­­­ganga undir Vaðla­heiði. Það var gert með atkvæðum minni­hluta þing­manna, 29 af 63 sögðu já. Þrettán þing­menn kusu gegn lög­unum, 16 voru fjar­staddir og fimm sátu hjá.

Þau veittu þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Oddnýju Harð­ar­dóttur, heim­ild til að fjár­magna gerð gangn­anna fyrir hönd rík­is­sjóðs. Með því var kom­ist fram­hjá lögum um rík­is­á­byrgðir, sem hefðu ekki heim­ilað slíkan gjörnin. Í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun birti árið 2015 var þetta verk­lag gagn­rýnt harð­lega. Þar stóð orð­rétt: „Rík­is­end­ur­skoðun geldur var­hug við þessu verk­lagi.“

Oddný Harðardóttir lagði fram frumvarpið sem heimilaði ríkissjóði að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði.
Oddný Harð­ar­dóttir lagði fram frum­varpið sem heim­il­aði rík­is­sjóði að fjár­magna gerð jarð­ganga undir Vaðla­heiði.

Í lög­unum fólst að rík­­­is­­­sjóður gat lánað allt að 8,7 millj­­­arða króna til verk­efn­is­ins, á því verð­lagi sem var í lok árs 2011. Vextir á lán­unum voru allt að 3,7 pró­­­sent og átti það fé að duga fyrir stofn­­­kostn­aði. Sér­­­stakt félag var stofnað utan um fram­­­kvæmd­ina, Vaðla­heið­­­ar­­­göng ehf. Meiri­hluta­eig­andi þess félags með 66 pró­sent eign­ar­hlut hefur verið Greið leið ehf., sem er nú meðal ann­ars í eigu Akur­eyr­­­ar­bæj­­­­­ar, fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­fé­lags­ins KEA, Útgerð­­­ar­­­fé­lags Akur­eyr­inga (sem er í eigu Samherja hf.) og ann­arra minni sveit­ar­fé­laga á Norð­ur­landi. Minn­i­hluta­eig­andi í félag­inu hefur verið íslenska rík­ið, sem á 33 pró­sent. Það mun nú eign­ast félagið að mestu, eftir að hafa breytt fimm millj­örðum króna í nýtt hlutafé. Aðrir hlut­hafar munu ekki taka þátt í þeirri hluta­fjár­aukn­ingu, sam­kvæmt því sem fram kemur í síð­asta árs­reikn­ingi Greiðrar leiðar.

Gert var ráð fyrir að fram­­­kvæmdum yrði lokið í árs­­­lok 2016 og að ganga­gröftur myndi klár­­­ast í sept­­­em­ber 2015. Vandræði vegna mik­ils vatnsleka gerðu það að verkum að göngin voru á end­anum ekki opnuð fyrr en í des­em­ber 2018.

Vantaði 4,7 milljarða króna til viðbótar

Áður en göngin voru opnuð, nánar til­tekið í mars 2017, var greint frá því að það vant­aði umtals­vert fé til að klára gerð Vaðla­heið­­ar­­ganga. Þáver­andi rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar ákvað að ríkið myndi hækka láns­heim­ild Vaðla­heið­ar­ganga um allt að 4,7 millj­arða króna til við­bótar við þá 8,7 millj­arða króna sem ríkið skuld­batt sig upp­haf­lega til að leggja til fram­kvæmd­ar­innar svo hægt yrði að ljúka vinnu við gerð gang­anna. Aðrir hlut­hafar, þ.e. eig­endur Greiðrar leiðar, lögðu ekki fram nýtt hlutafé né lánsfé.

Benedikt Jóhannesson var fjármála- og efnahagsráðherra þegar íslenska ríkið lánaði 4,7 milljarða króna til viðbótar í verkefnið. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Benedikt Jóhann­es­son var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þegar íslenska ríkið lán­aði 4,7 millj­arða króna til við­bótar í verk­efnið. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Sú rík­is­stjórn ákvað þó að láta vinna úttekt­ar­skýrslu um gerð Vaðla­heið­ar­ganga í ljósi þeirra við­bót­ar­fjár­út­láta. Í skýrsl­unni, sem var skilað í ágúst 2017, var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að fram­kvæmdin gæti ekki talist eig­in­leg einka­fram­kvæmd. Í raun væru hún rík­is­fram­kvæmd þótt upp­haf­lega hefði hún ekki verið kynnt sem slík til að þurfa ekki að lúta for­gangs­röðun sam­göngu­á­ætl­un­ar. Frá því að lög um gerð gang­anna voru sett hafi íslenska ríkið borið meg­in­á­hættu af Vaðla­heið­ar­göngum í formi fram­kvæmda­láns til verks­ins.

Tekjur undir áætlunum frá byrjun

Á fyrsta heila starfs­ári Vaðla­heið­ar­ganga hf. eftir opnun gang­anna, voru tekjur félags­ins „nokkuð undir áætl­unum stjórn­enda vegna minni umferðar en áætl­aðar var auk þess sem sam­setn­ing tekna er með öðrum hætti en gert var ráð fyrir,“ sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­reikn­ingi þess árs. Á árinu 2019 heim­sóttu þó yfir tvær millj­ónir ferða­manna Ísland, en von­ast hafði verið til að slíkir myndu verða mik­il­vægir í tekju­öflun gangn­anna.

Næstu tvö árin voru lituð af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, sem óhjá­kvæmi­lega hafði mikið og nei­kvæð áhrif á rekstur Vaðla­heið­ar­ganga. Í árs­reikn­ingi síð­asta árs segir að þau áhrif hafi „fyrst og fremst fram í sam­drætti tekna félags­ins vegna sölu á veggjaldi um Vaðla­heið­ar­göng sem lækk­uðu um 27 pró­sent á milli áranna 2019 og 2020. Tekjur vegna sölu veggjalds juk­ust svo nokkuð milli áranna 2020 og 2021 en hafa þó að krónu­tölu ekki náð þeim tekjum sem voru á árinu 2019.

Að mati stjórn­enda félags­ins munu áhrif far­ald­urs­ins hvað varðar umferð um göngin fara minnk­andi á árinu 2022 sam­hliða dvínun far­ald­urs­ins og horft til þess að umferð hefur auk­ist umtals­vert á milli áranna 2021 og 2022. Í því sam­bandi er horft til þess að veru­leg umferð­ar­aukn­ing hefur verið á fyrstu 5 mán­uðum árs­ins 2022 sam­an­borið við árið 2021 auk þess sem spár um fjölda erlendra ferða­manna til Íslands sam­an­borið við fyrra ár gefa vís­bend­ingu um veru­lega umferð­ar­aukn­ingu vegna þess, þegar líður tekur á sum­arið og inná haustið.“

Skulda ríkinu tæplega 20 milljarða króna

Á fjár­lögum árs­ins 2020 var rík­inu veitt heim­ild til að breyta skuldum Vaðla­heið­ar­ganga við rík­is­sjóð í nýtt hlutafé. Í mars á því ári hófust svo við­ræður um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins til að hægt væri að tryggja rekstr­ar­hæfi þess til fram­tíðar. Gjald­dagi skulda Vaðla­heið­ar­ganga við rík­is­sjóð var 1. maí í fyrra. Félagið hafði skuld­bundið sig til þess að end­ur­greiða rík­is­sjóði að fullu, ásamt áföllnum vöxtum með einni greiðslu, þann dag.

Þegar kom að honum var inn­heimtu­að­gerðum frestað í ljósi þess að enn væri verið að vinna að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu. Líkt og áður sagði námu skuld­irnar 19,7 millj­örðum króna í lok síð­asta árs. Upp­haf­lega áttu göngin að kosta 8,7 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2011, sem er í dag um 11,6 millj­arðar króna. Því skuld­uðu Vaðla­heið­ar­göng rík­is­sjóði 8,1 millj­arði krónur meira en til stóð að hann myndi lána í upp­hafi í verkið um síð­ustu ára­mót.

Bjarni Benediktsson, sem greiddi atkvæði gegn lögum sem veittu ríkinu heimild til að fjármagna göngin árið 2012, er nú fjármála- og efnahagsráðherra. Ríkið ákvað í sumar að breyta fimm milljörðum króna í nýtt hlutafé og lengja í lánum til 2057.
Bjarni Bene­dikts­son, sem greiddi atkvæði gegn lögum sem veittu rík­inu heim­ild til að fjár­magna göngin árið 2012, er nú fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Ríkið ákvað í sumar að breyta fimm millj­örðum króna í nýtt hlutafé og lengja í lánum til 2057.

Ríkið átti að fá allt sitt til baka þremur árum eftir að rekstur gangn­anna hófst, en for­sendur gerðu ráð fyrir að fram­kvæmda­lánið frá rík­inu yrði þá end­ur­fjár­magnað með útgáfu skulda­bréfs á mark­aði og að rekstr­ar­hagn­aður þeirra myndi standa undir greiðslu þess.

Það skulda­bréf átt svo að greið­ast upp í síð­asta lagi árið 2045, sam­kvæmt mati á greiðslu­getu og for­sendum sem unnið var fyrir fjár­mála­ráðu­neytið í byrjun árs 2012.

Það var hins vegar ekki gefið út neitt skulda­bréf. For­sendur fyrir því voru ekki til staðar, tekjur ekki nægj­an­lega miklar, kostn­aður mun meiri en lagt var upp með og áhugi fjár­festa á að kaupa slíka afurð eng­inn.

Þess í stað hefur ríkið breytt fimm millj­örðum króna af skuld­inni í nýtt hlutafé og stað­fest hlut­verk sitt sem eini lang­tíma­lán­veit­andi, og fjár­magn­andi, Vaðla­heið­ar­ganga með því að lengja í lánum félags­ins um 36 ár, eða til 15. febr­úar 2057.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið undanfarið ár