Icelandair reiknar ekki með Max vélunum fyrr en í maí

Fyrri til­kynn­ingar höfðu gert ráð fyrir að hinar kyrr­settu vélar frá Boeing gætu kom­ist í loftið í mars á næsta ári. Flug­vél­arnar hafa verið kyrr­settar um allan heim frá því í lok mars vegna tveggja flug­slysa,


Icelandair gerir nú ráð fyrir því að Boeing 737 MAX flug­vélar verði komnar í rekstur í maí 2020. Áður hafði verið gert ráð fyrir vél­unum í flug­á­ætlun félags­ins í byrjun mars. Flug­vél­arnar hafa verið kyrr­settar frá því 28. mars, um allan heim, og því verið ónot­hæfar í far­þega­flug­i.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair en flug­fé­lagið segir að þessi ákvörðun hafi lítil áhrif á far­þega og flug­á­ætlun félags­ins á þessu tíma­bili.

[links]Kjarninn greindi frá því í gær að Boeing hafi tíma­bundið hætt fram­leiðslu á 737 Max vél­un­um, meðal ann­ars vegna þess að ekki enn liggur fyrir hvenær kyrr­setn­ing­unni verður aflétt.

Ástæðan fyrir kyrr­setn­ing­unni eru flug­slys í Indónesíu 29. októ­ber í fyrra og í Eþíópíu 13. mars sama ár, en í þeim lét­ust allir um borð, sam­tals 346. Frum­nið­ur­stöður rann­sókna í lönd­unum fyrr­nefndu benda til þess að vél­arnar hafi verið með gallað MCAS-­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, og því hafi þær tog­ast til jarðar með fyrr­nefndu afleið­ing­um.[adspot]

Fjöl­margar athuga­semdir hafa einnig komið fram í rann­sóknum ann­arra á Boeing, þar á meðal hjá alrík­is­lög­regl­unni FBI. Auk þess er Banda­ríkja­þing ennþá að rann­saka félagið og hvernig það stóð að upp­lýs­inga­gjöf til banda­rískra flug­mála­yf­ir­valda og eft­ir­lits­að­ila. Í yfir­heyrslum í þing­inu hafa stjórn­endur Boeing verið harð­lega gagn­rýndir fyrir að upp­lýsa ekki um galla í vél­un­um, og einnig að slaka á eft­ir­liti með fram­leiðsl­unn­i.

Kyrr­setn­ingin á Max vél­unum hefur haft mikil áhrif víða um heim, ekki síst á Íslandi. Í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands sem komu út í nóv­em­ber, segir að sam­dráttur í ferða­þjón­ustu á árinu hafi ekki síst átt sér stað vegna kyrr­setn­ingar á Max vél­un­um, sem hefur leitt til þess að Icelandair hefur þurft að draga úr sæta­fram­boði.

Icelandair Group hefur í tvígang gert bráða­birgða­sam­komu­lag við Boeing um bætur fyrir hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna. Áfram­hald­andi við­ræður við Boeing um að fá heild­ar­tjón vegna kyrr­setn­ing­ar­innar bætt standa enn yfir.

Lítil áhrif á framboð

Í til­kynn­ingu Icelandair segir að félagið fylgist áfram með þróun mála varð­andi aflétt­ingu kyrr­setn­ingar MAX vél­anna. Yfir­grips­mikið og vandað ferli sem sé stýrt af alþjóð­legum flug­mála­yf­ir­völdum standi nú yfir með það að mark­miði að tryggja öryggi vél­anna og koma þeim aftur í rekstur.

Jafn­framt segir í til­kynn­ingu Icelandair að vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna verða fleiri Boeing 757 flug­vélar áfram í rekstri hjá félag­inu á næsta ári en upp­haf­lega hafði verið áætlað. Þá hefur félagið tekið á leigu tvær Boeing 737-800 NG flug­vélar sem koma í rekstur í vor og gerir þar að auki ráð fyrir að bæta þriðju leigu­vél­inni við.

„Við teljum ólík­legt að MAX vél­arnar verði komnar aftur í rekstur fyrr en í maí og höfum aðlagað flug­á­ætlun félags­ins að því. Vegna mót­væg­is­að­gerða sem við höfum þegar gripið til kemur þetta til með að hafa lítil áhrifin á fram­boð og far­þega okkar. Við settum flug­á­ætl­un­ina fyrir næsta ár upp þannig að áhrif frek­ari kyrr­setn­ingar MAX vél­anna yrðu tak­mörkuð. Við erum því vel í stakk búin til að takast á við þær áskor­anir sem framundan eru, bæði hvað flota­málin varðar sem og aðra þjón­ustu félags­ins við far­þega,“ segir Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár