Brottrekinn forstjóri Boeing fær 7,7 milljarða

Fyrr­ver­andi for­stjóri Boeing mun ekki fara tóm­hentur frá borði, þrátt fyrir að hafa verið rek­inn vegna mik­ils vand­ræða­gangs fyr­ir­tæk­is­ins. Nýi for­stjór­inn fær hátt í millj­arð króna í bónus tak­ist honum að koma 737 Max vél­unum aftur í loftið.

Dennis A. Muilenberg.
Dennis A. Mui­len­berg. Mynd: Úr safni.

Dennis A. Mui­len­burg, sem var rek­inn úr for­stjóra­stóli flug­véla­fram­leið­and­ans Boeing í des­em­ber síð­ast­liðnum, mun fá 62,2 millj­ónir dali, tæp­lega 7,7 millj­arða króna, í formi hluta­bréfa og líf­eyr­is­rétt­inda að skiln­aði.

Fyr­ir­tækið greindi frá þessu í gær. Samkvæmt frá­sögn The New York Times mun Mui­len­burg hins vegar ekki fá neinar við­bótar starfs­loka­greiðslur vegna brott­rekst­urs síns og Boeing segir að hann hafi gefið eftir við­bótar hluta­bréfa­hlunn­indi sem metin séu á 14,6 millj­ónir dali, um 1,8 millj­arð króna.

Háar greiðslur Boeing til Mui­len­burg hafa verið harð­lega gagn­rýndar af stjórn­mála­mönnum í Banda­ríkj­unum. Öld­ung­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn Elizabeth Warren, sem sæk­ist eftir því að verða for­seta­efni demókrata í for­seta­kosn­ing­unum síðar á þessu ári, kall­aði greiðsl­urnar til Mui­len­burg hreina og klára spill­ingu í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Greint var frá því á Þor­láks­messu að Mui­len­burg, sem hafði starfað hjá Boeing í 35 ár, hefði verið rek­inn úr starfi. Ástæðan var fyrst og síð­ast ábyrgðin sem for­stjór­inn ber á vand­ræða­gangi Boeing og alvar­legum hönn­un­ar­göllum í fram­leiðslu hjá félag­inu, meðal ann­ars á 737 Max vél­un­um, en talið er að gallar í bún­aði vél­anna hafi verið orsökin fyrir því að tvær slíkar vélar tog­uð­ust til jarð­ar, í Indónesíu og Eþíóp­íu, með þeim afleið­ingum að 346 létu­st, allir um borð.

[adspot]Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefndar í fyrra slys­inu, sem varð 29. októ­ber 2018 í Indónesíu, var sú að gallar í MCAS kerfi vél­ar­inn­ar, sem á að sporna gegn ofrisi, hafi leitt til þess að vélin tog­að­ist til jarðar með skelfi­legum afleið­ing­um. Þá komst rann­sókn­ar­nefndin enn fremur af því að Boeing hefði reynt að hylma yfir galla í vél­un­um.

Ennþá er verið að rann­saka seinna slysið í Eþíóp­íu, en sam­kvæmt frum­nið­ur­stöðum er talið að orsökin hafi verið sú sama og í slys­inu í Indónesíu.

Banda­ríkja­þing hefur fram­ferði Boeing til rann­sókn­ar, og það sama á við um alrík­is­lög­regl­una FBI.

Boeing er stærsta útflutn­ings­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna, og stærsti flug­véla­fram­leið­andi heims. Þá er félagið einn stærsti her­gagna­fram­leið­andi heims­ins, og fram­leiðir auk þess vél­arparta fyrir flug- og geim­iðn­að.

Alþjóð­leg kyrr­setn­ing á 737 Max vél­unum, sem staðið hefur yfir frá því í mars á síð­asta ári, hefur haft miklar afleið­ingar fyrir Boeing, við­skipta­vini þess og jafn­vel heilu þjóð­rík­in, eins og í til­felli Íslands. Icelandair hefur lent í miklum hremm­ingum vegna kyrr­setn­ing­ar­innar á Max vél­un­um, en ekki liggur fyrir hvenær henni verður aflétt. Gert er ráð fyrir að það verði ekki fyrr en á vor­mán­uðum næsta árs, en óvissa ríkir þó um það.

David Calhoun, sem tók við for­stjóra­starf­inu hjá Boeing, mun fá bón­us­greiðslu upp á sjö millj­ónir dali, um 860 millj­ónir króna, ef honum tekst að koma 737 Max vél­unum aftur í loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár