Helmingur landsmanna hefur breytt daglegum innkaupum til að minnka umhverfisáhrif

Rúmlega helm­ingur lands­manna hefur breytt dag­legum inn­kaupum sínum á síð­ustu tólf mán­uðum til þess að lág­marka áhrif á umhverfi og loft­lags­breyt­ingar. Auk þess hafa tæp­lega tveir af hverjum þremur breytt hegðun sinni til minnka umhverf­is­á­hrif.

Rúmlega helmingur landsmanna hefur breytt neysluvenjum sínum í daglegum innkaupum gagngert til þess að minnka umhverfisáhrif á síðustu tólf mánuðum. Auk þess hafa tæplega tveir af hverjum þremur breytt hegðun sinni fyrir umhverfið en færri hafa breytt ferðavenjum sínum á einhvern hátt með það fyrir augum að lágmarka umhverfisáhrif. Þetta kemur fram í nýrri Umhverfiskönnun Gallups, Rúv greindi fyrst frá niðurstöðum könnunarinnar.

Meirihluti landsmanna hefur breytt hegðun sinni til að minnka áhrif á umhverfið

Í könnunni var spurt hvort að viðkomandi hafði breytt neysluvenjum sínum í daglegum innkaupum á einhvern hátt gagngert til að minnka umhverfisáhrif en 51,5 prósent svöruðu að þeir hefðu breytt neysluvenjum sínum í innkaupum annaðhvort mikið eða nokkuð. Rúmlega 30 prósent svarenda sögðust hafa breytt neysluvenjum sínum lítið en 17,2 prósent sögðust ekkert hafa breytt innkaupum sínum á síðustu tólf mánuðum til að lágmarka áhrif á umhverfi og loftslagsbreytingar.

Jafnframt var spurt í könnunni hvort að viðkomandi hefði breytt hegðun sinni til þess að lágmarka áhrif á umhverfi og loftslagsbreytingar. Þá svöruðu tæplega tveir af hverjum þremur eða um 63 prósent svarenda að þeir hefðu breytt hegðun sinni mikið eða nokkuð. Alls svöruðu 23,9 prósent að þeir hefðu breytt hegðun sinni lítið og rúm 13 prósent svarenda sögðust ekkert hafa breytt hegðun sinni.[adspot]

Færri breytt ferðavenjum sínum

Fæstir hafa breytt ferðavenjum sínum á einhvern hátt til þess að minnka umhverfisáhrif af ferðamáta sínum en 40,8 prósent sögðust ekkert hafa breytt ferðavenjum sínum á síðustu 12 mánuðum. Um 20 prósent sögðust hafa breytt ferðavenjum sínum nokkuð og 5,2 prósent sögðust hafa breytt þeim mikið.

Könnunin var gerð í tilefni af umhverfisráðstefnu Gallup sem haldin verður í annað sinn í Hörpu næsta föstudag. Á ráðstefnunni verða heildar niðurstöður Umhverfiskönnunar Gallup kynntar, en þar verður farið yfir viðhorf og hegðun Íslendinga í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár