WAB air boðar til blaðamannafundar á morgun

Nýtt íslenskt flug­fé­lag mun kynna áform sín, að minnsta kosti að hluta, á blaða­manna­fundi í Perlunni á morgun. Sam­keppni er mögu­lega á sjón­deild­ar­hringnum í íslenskum flug­heimi.

Er valkostum Íslendinga í millilandaflugi að fara að fjölga?
Er val­kostum Íslend­inga í milli­landa­flugi að fara að fjölga? Mynd: Bára Huld Beck

Nýtt íslenskt flug­fé­lag mun kynna áform sín, að minnsta kosti að hluta, á blaða­manna­fundi í Perlunni á morgun. Sam­keppni er mögu­lega á sjón­deild­ar­hringnum í íslenskum flug­heimi.

WAB air, flug­fé­lag sem tveir fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá WOW air ásamt hópi fjár­festa hefur unnið að því að koma í loftið frá því síðla í vor, hefur boðað til blaða­manna­fundar í Norð­ur­ljósa­sal Hörpu á morgun. Þeir sem staðið hafa að stofnun flug­fé­lags­ins hafa ekk­ert tjáð sig um stöðu mála né fjár­mögnun frá því að ferlið hófst og því við­búið að morgun verði sýnt í fyrsta sinn á spilin.

Í júní var greint frá því í Frétta­blað­inu að WAB air, sem stendur fyrir „We Are Back“, væri meðal ann­ars að und­ir­lagi Avianta Capital, írsks fjár­fest­ing­ar­sjóðar, sem hefði skuld­bundið sig til að leggja félag­inu til 40 millj­ónir dala, jafn­virði rúmra fimm millj­arða króna í nýtt hluta­fé.

Ferða­þjón­ustu­frétta­vef­ur­inn Túristi sagð­ist í dag hins vegar hafa heim­ildir fyrir því að einnig hafi verið leitað til íslenska fjár­festa að und­an­förnu í von um safna hátt í tveimur millj­örðum króna í hlutafé. „Þau áform sem fjár­fest­unum hafa verið kynnt ganga meðal ann­ars út á að flug­fé­lagið flytji um hálf milljón ferða­manna til Íslands á næsta ári. Sú tala er vís­bend­ing um að flug­fé­lagið þurfi að lág­marki 5 til 6 flug­vélar af því gefnu að hlut­fall erlendra ferða­manna í vél­unum verði nokkuð hátt á kostnað tengifar­þega til að byrja með.“

Í minn­is­blaði sem Frétta­blaðið fjall­aði um í júní kom fram að til stæði að WAB air myndi hefja rekstur haustið 2019 og yrði með sex vélar í rekstri fyrsta árið. Gert var ráð fyrir að flug­fé­lagið muni fljúga til fjórtán áfanga­staða í Evr­ópu og Banda­ríkj­unum og að ein milljón far­þega ferð­ist með flug­fé­lag­inu. Þá var stefnt að því að fimm hund­ruð starfs­menn yrðu ráðnir til flug­fé­lags­ins á tólf mán­uðum. Jafn­framt er gert ráð fyrir að velta félags­ins myndi nema tutt­ugu millj­örðum króna á næsta ári.

Avianta Capital, sem sagt var vera með í áformunum sam­kvæmt minn­is­blað­inu, er í eig­u Aisilinn Whittley-Ryan, dóttur eins af stofn­enda Ryan air. Sem end­ur­gjald fyrir fram­lag sitt til verk­efn­is­ins átti Avianta Capital ­að eign­ast 75 pró­senta hlut í félag­in­u.

Þá átti 25 pró­sent flug­fé­lags­ins að vera í eigu félags­ins ­Neo. Það félag er í eigu Arn­ars Más Magn­ús­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra flug­rekstr­ar­sviðs WOW, Sveins Inga Stein­þórs­son­ar, úr hag­deild WOW, sem sat í fram­kvæmda­stjórn flug­fé­lags­ins, Boga Guð­munds­son­ar, lög­manns hjá Atlantik ­Legal Services og stjórn­ar­for­manns BusTra­vel, og Þór­odds Ara Þór­odds­son­ar, ráð­gjafa í flug­véla­við­skipt­um.

Samkvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins í júní átti Sveinn Ingi for­stjóri flug­fé­lags­ins ef áformin myndu ganga eftir og ­Arnar Már að gegna starfi aðstoð­ar­for­stjóra og fram­kvæmda­stjóra flug­rekstr­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár