Kvika og ríkisbankarnir eiga að finna leiðir til að styrkja fjárhag Icelandair

Lausa­fjár­staða Icelandair mun að óbreyttu fara undir lausa­fjár­við­mið sem félagið starfar eftir í nán­ustu fram­tíð. Félagið flýgur nú tíu pró­sent af áætlun sinni og þegar hefur verið gert ráð fyrir fjórð­ungs­sam­drætti í sumar.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Stjórn­endur Icelandair Group vinna nú að því að finna leiðir til að styrkja fjár­hag félags­ins með því að styrkja hann til lengri tíma. Félagið hefur ráðið Kviku banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann sem ráð­gjafa til að hefja skoðun á mögu­legum leiðum til að ná því mark­miði. Þá munu stjórn­endur Icelandair einnig vinna náið með íslenskum stjórn­völdum í því ferli.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar Íslands í morgun.

Þar segir að að sá heims­far­aldur sem nú geisar, og þær ráð­staf­anir sem stjórn­völd hafa gripið til um allan heim til að sporna við útbreiðslu COVID-19 veirunnar, hafa haft veru­leg áhrif á flug og ferða­lög. „Á síð­ustu dögum og vikum hefur áhersla verið lögð á það hjá Icelandair að halda uppi lág­marks flug­sam­göngum til og frá land­inu, bæði fyrir far­þega og vöru­flutn­inga þrátt fyrir að flug­á­ætlun félags­ins hafi dreg­ist veru­lega saman á und­an­förnum vikum. Flug­á­ætlun félags­ins nemur nú minna en 10% af þeirri áætlun sem gefin hafði verið út fyrir þetta tíma­bil árs­ins. Enn ríkir mikil óvissa um hvenær ferða­tak­mörk­unum verði aflétt og eft­ir­spurn eftir flugi og ferða­lögum muni aukast á ný og gera stjórn­endur Icelandair Group ráð fyrir því að flug­á­ætlun félags­ins muni drag­ast saman um að minnsta kosti 25% yfir sum­ar­tím­ann.“

[adspot]Lausa­fjár­staða Icelandair, að með­töldum óádregnum lána­línum, sé þó enn vel yfir því við­miði sem félagið starfi eftir en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 29 millj­arða króna á núver­andi gengi, eða 200 millj­ónir banda­ríkja­dala, á hverjum tíma. „Eins og til­kynnt hefur verið um, hefur félagið gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausa­fjár­stöðu sína á und­an­förnum vikum. Hins vegar, ef miðað er við lág­marks­tekju­flæði hjá félag­inu í apríl og maí, er ljóst að lausa­fjár­staða félags­ins muni skerð­ast og fara undir ofan­greint við­mið.“

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir að Icelandair viti að á ein­hverjum tíma­punkti mun flug kom­ast aftur í eðli­legt horf og því vilji félagið vera vel í stakk búin til að sækja fram og nýta þau tæki­færi sem þá verða fyrir hendi. „Til að ná þeirri stöðu er nauð­syn­legt að gera við­eig­andi breyt­ingar á kostn­að­ar­upp­bygg­ingu félags­ins, styrkja fjár­hags­stöðu þess og leita allra leiða til að styrkja sam­keppn­is­hæfi þess til fram­búðar.“

Icelandair sagði upp 240 starfs­mönnum 23. mars síð­ast­lið­inn og til­kynnti að 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna myndu fara í skert starfs­hlut­fall tíma­bund­ið. Þessi hópur fellur undir úrræði rík­is­stjórn­ar­innar um mót­fram­lag eftir því sem við á og er því nú á hluta­bótum.

Upp­sagn­irnar náðu til flestra hópa innan félags­ins en heild­ar­fjöldi stöðu­gilda hjá Icelandair Group var að með­al­tali 4.715 á árinu 2019. Þeir starfs­menn sem eru áfram í fullu starfi lækk­uðu um 20 pró­sent í laun­um. Fram­kvæmda­stjórar lækk­uðu um 25 pró­sent og laun for­stjóra og stjórnar lækk­uðu um 30 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár