Icelandair fellur um 22 prósent í fyrstu viðskiptum

Ferða­bannið sem Banda­ríkin settu á í nótt hefur gríð­ar­leg áhrif á mark­aðsvirði Icelandair. Það hrundi við opnun mark­aða.

Hluta­bréf í Icelandair féllu um 22 pró­sent í fyrstu við­skiptum í Kauphöll Íslands í morgun. Alls lækk­aði úrvals­vísi­talan um rúm­lega níu pró­sent í fyrstu við­skiptum.

Gengi Icelandair er sem stendur 3,9 krónur á hlut. Gengi bréfa í félag­inu hefur ekki verið lægra frá því í jan­úar 2011. Mark­aðsvirði Icelandair er nú um 21,2 millj­arðar króna en það fór niður fyrir 30 millj­arða króna í fyrsta skipti í átta ár í byrjun viku. Þegar mark­aðsvirði var hæst, í apríl 2016, var það 191,5 millj­arðar króna. Síðan þá hefur hlutafé í Icelandair verið aukið um rúm­lega fimm millj­arða króna en mark­aðsvirðið samt komið niður í ofan­greinda tölu.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu nú er tíma­bundið ferða­bann banda­rískra stjórn­valda til og frá Evr­ópu, sem gildir í 30 daga frá 14. mar­s. Það mun hafa veru­leg áhrif á flug­á­ætl­un Icelanda­ir á tíma­bil­inu og mun félagið draga enn frekar úr fram­boði á flugi í mars og apr­íl, umfram það sem áður hefur verið til­kynnt.

Í nýrri til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér rétt fyrir klukkan 10 í morgun var ítrekað að allt flug hjá Icelandair verði á áætlun í dag og á morgun. „Þegar ferða­bannið tekur gildi á laug­ar­dag, verður flug til eft­ir­far­andi áfanga­staða Icelandair í Banda­ríkj­unum á áætlun: New York (JFK og EWR), Chicago, Seattle og Washington DC en ferða­bann gildir þá fyrir alla sem dvalið hafa á Schengen svæð­inu, nema banda­ríska rík­is­borg­ara. Þann 14.-16. mars verður öllu flugi til Boston, Minn­ea­polis, Denver og Orlando aflýst. Flug frá Orlando og Denver laug­ar­dag­inn 14. mars verður á áætlun. Öll flug til Evrópu eru á áætlun. Ferða­bannið gildir ekki um frakt­flutn­inga.“

[adspot]Í til­kynn­ingu sem félagið birti i Kaup­höll í morgun, fyrir opnun mark­aða, sagði að alls hafi verið um 490 flug­ferðir eru áætl­aðar til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. „Ljóst er að útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur veru­leg áhrif á ferða­lög um allan heim. Fjár­hags­leg áhrif þessa á Icelanda­ir Group eru enn óviss en eins og til­kynnt hefur verið um er félagið að greina mögu­legar sviðs­myndir og mót­væg­is­að­gerðir í ljósi stöð­unn­ar. Fjár­hags­staða Icelanda­ir Group er sterk og ­lausa­fjárs­staða ­fé­lags­ins nam rúmum 39 millj­örðum króna (301,6 millj­ón­ir ­banda­ríkja­dala) í árs­lok 2019 og er á sama stað í dag.“

Eigið fé Icelandair var um 60 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Mark­aðsvirðið er um einn þriðji af eigin fé félags­ins og rétt rúmur helm­ingur af lausu fé þess.

Tilkynnt í sögulegri ræðu forseta í nótt

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, greindi frá aðgerð­unum í ávarpi í nótt. Ferða­bann­ið, sem á að standa yfir í 30 daga frá og með kom­andi föstu­degi, mun virka þannig að öllum íbúum landa sem til­heyra Schen­gen-­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­ópu, verður meinað að koma til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­is­borg­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum munu fá að ferð­ast ef þeir vilja en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í nótt á vef heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schen­gen-­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­velli þar sem sér­stakar ráð­staf­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Allar líkur eru því til þess að flug milli Banda­ríkj­anna og landa sem til­heyra Evr­ópska efna­hags­svæð­inu muni að mestu liggja niðri á meðan að bannið stendur yfir, enda ólík­legt að flug­fé­lög muni fljúga mikið þegar þorri Evr­ópu má ekki koma til Banda­ríkj­anna, og Banda­ríkja­menn hafa verið hvattir til að fara helst ekki til Evr­ópu.

Það mun hafa gríð­ar­leg áhrif rekstur Icelanda­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár