Kauphöllin breytir viðmiðum fyrir sveifluverði fyrir Icelandair

Bréf í Icelandair hafa verið í frjálsu falli í morgun. Kaup­höllin hefur gripið til frek­ari aðgerða vegna þessa.

Nasdaq Iceland ehf., sem rekur íslensku kaup­höll­ina,hefur tíma­bundið breytt við­miðum fyrir kvika sveiflu­verði (e. dynamic vola­tility guards) fyrir Icelandair Group hf. í tíu pró­sent eftir mikið fall á bréfum félags­ins í morgun og fyrir fasta sveiflu­verði (e. static vola­tility guards) í 20 pró­sent. Breyt­ingin mun að óbreyttu ganga til baka frá og með 13. mars 2020.

Gegni Icelandair hefur hríð­fallið frá því að mark­aðir opn­uðu í morgun. Sem stendur eru bréf félags­ins tæp­lega 18 pró­sent verð­minni en þau voru í lok dags í gær. Eftir fyrstu við­skipti féllu þau strax um 22-23 pró­sent en hafa aðeins rétt úr kútnum síðan.

Nasdaq Iceland greindi frá því í morgun, fyrir opnum mark­aða, að kaup­höllin myndi breyta sveiflu­vörðum (e. Dynamic Vola­tility Guards) fyrir öll hluta­bréf, kaup­hall­ar­sjóð og skulda­bréf sem skráð eru á Aðal­markað og First North 12. mars 2020 vegna óvenju­legra aðstæðna á mark­aði.

Í til­kynn­ingu vegna þessa sagði að við­mið fyrir sveiflu­verði yrðu tvö­földuð og við­mið fyrir nið­ur­fell­ingu við­skipta yrðu í sam­ræmi við gild­andi sveiflu­verði fyrir hvert verð­bréf. Frekari breyt­ingar, sem snúa að Icelandair og greint er frá hér að ofan, koma til við­bótar.

[adspot]Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Nasdaq Iceland er sveiflu­vörðum ætlað að stuðla að skil­virkum við­skiptum og vernda fjár­festa og skráð fyr­ir­tæki í hvik­lyndum mark­aðs­að­stæðum. Þegar við­miði sveiflu­varðar er náð stoppa við­skipti tíma­bundið og mark­að­ur­inn fer í upp­boð. Þetta gefur mark­aðs­að­ilum tíma til að end­ur­meta stöð­una.

Sveiflu­verð­irnir sem um ræðir eru þrenns konar, „dynamic vola­tility guards“ eða kvikir sveiflu­verðir, „static vola­tility guards“ eða fastir sveiflu­verðir og „auction safegu­ards“ eða upp­boðs­verðir. Kviku og föstu sveiflu­verð­irnir valda rofi á sam­felldum við­skiptum í til­tek­inni til­boða­bók við miklar verð­breyt­ingar og fer þá til­boða­bókin í upp­boðs­á­stand. Að loknu stuttu upp­boði hefj­ast sam­felld við­skipti á ný. Upp­boðs­vörð­ur­inn fram­kallar á hinn bóg­inn fram­leng­ingu á upp­boði (e. auction extension), hvort sem er við opnun eða lokun mark­aða, sé verð­breyt­ing mikil.

Mis­mun­andi við­mið eru fyrir hvert félag og eru þau valin miðað við selj­an­leika bréfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár