Icelandair vinnur með stéttarfélögum að því að lækka launakostnað

Á síð­ustu dögum hefur dregið úr flug­fram­boði hjá Icelandair um 30 pró­sent og félagið gerir ráð fyrir því að flug­fram­boð yfir háann­ar­tíma muni að minnsta kosti drag­ast saman um fjórð­ung.

Fjár­hags­leg áhrif vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar á starf­semi Icelandair Group eru enn óviss, en ljóst er að hún mun hafa nei­kvæð áhrif á sjóð­streymi félags­ins. Það vinnur nú að því að lág­marka þau áhrif, meðal ann­ars með því að draga úr flug­fram­boði og vinna með stétt­ar­fé­lögum til að lækka launa­kostnað veru­lega.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair sem send var til Kaup­hallar Íslands í kvöld.

Þar kemur fram að lausa­fjár­staða félags­ins hafi numið rúmum 39 millj­örðum króna í árs­lok 2019 og sé enn á svip­uðum stað í dag.

[adspot]Á síð­ustu dögum hefur Icelandair hins vegar dregið úr flug­fram­boði um allt að 30 pró­sent. „Líklegt er að dregið verði enn frekar úr flug­fram­boði á meðan ferða­tak­mark­anir eru í gildi og staðan getur breyst hratt. Félagið heldur áfram að fylgj­ast grannt með stöðu mála og hefur gripið til ýmissa aðgerða í sam­ráði við heil­brigð­is­yf­ir­völd til að tryggja heilsu og öryggi starfs­fólks og far­þega.

Óvissa ríkir um háanna­tíma sum­ars­ins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flug­fram­boði um að minnsta kosti 25 pró­sent miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Félagið mun þó leggja áherslu á að við­halda þeim sveigj­an­leika sem þarf til að geta brugð­ist hratt við eftir því hvernig eft­ir­spurn þró­ast.“

Mark­aðsviði Icelandair hefur hríð­fallið und­an­farið. Meðal ann­ars lækk­aði Icelandair um 22,8 pró­sent á fimmtu­dag, eftir að Banda­ríkin til­kynntu um ferða­bann til lands­ins. Bréf félags­ins jöfn­uðu sig aðeins á föstu­dag en mark­aðsvirði þess við lok við­skipta þá var rétt um 22,8 millj­arður króna. Það hefur ekki verið lægra en það er um þessar mundir frá því snemma árs 2011. Mark­aðsvirði Icelandair fór niður fyrir 30 millj­arða króna í fyrsta skipti í átta ár í byrjun síð­ustu viku.

Eigið fé Icelandair var um 60 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Mark­aðsvirðið er því um rúm­lega einn þriðji af eigin fé félags­ins og rúm­lega helm­ingur af lausu fé þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár