Icelandair ætlar í hlutafjárútboð til að bjarga sér til framtíðar

Icelandair flýgur nú tíu pró­sent af flug­á­ætlun sinni og ætlar að sækja nýtt hlutafé til hlut­hafa sinna í nán­ustu fram­tíð.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Icelandair Group hefur til­kynnt um að félagið ætli að ráð­ast í hluta­fjár­út­boð á næst­unni og sækja með því aukið rekstr­arfé til hluta­hafa sinna.

Stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group er banda­ríski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn PAR Capital Mana­gement, sem keypti sig inn í félagið í apríl í fyrra í hluta­fjár­aukn­ingu sem þá var fram­kvæmd. Sjóð­ur­inn greiddi þá á 5,6 millj­arða króna fyrir 11,5 pró­sent hlut en á nú 13,7 pró­sent. Næst stærsti eig­and­inn er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna með 11,8 pró­sent hlut og þar á eftir koma líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi (7,24 pró­sent) og Birta (7,1 pró­sent). Alls eiga íslenskir líf­eyr­is­sjóðir að minnsta kosti 43,6 pró­sent í Icelandair Group með beinum hætti, en mögu­lega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjár­fest­inga­sjóði sem eiga einnig stóran hlut í félag­inu. Þessir líf­eyr­is­sjóðir munu þurfa að leggja fram aukið hlutafé eða verða þynntir út í boð­uðu hluta­fjár­út­boði.

Í til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér til Kaup­hallar í morgun segir að flug­á­ætlun þess sé nú tíu pró­sent af þeirri áætlun sem gefin hafði verið út. „For­sendan fyrir hluta­fjár­út­boði hjá félag­inu er að tryggja sam­keppn­is­hæfni félags­ins til lengri tíma litið. Fyr­ir­hugað útboð er því háð því að við­ræður við stétta­fé­lög skili árangri sem og að sam­þykki hlut­hafa­fundar liggi fyrir. Viðræður standa einnig yfir við aðra hag­að­ila, svo sem fjár­mögn­un­ar­að­ila, flug­véla­leigu­sala og birgja til að styrkja lang­tíma sam­keppn­is­hæfni félags­ins enn frekar. Þá hefur félagið jafn­framt verið í góðu sam­bandi við stjórn­völd í þessu ferli.“

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir að verk­efnið sem félagið standi frammi fyrir sé tví­þætt: „Að koma félag­inu í gegnum það ástand sem nú ríkir í heim­inum og á sama tíma tryggja að við séum í sterkri stöðu og getum sótt fram af krafti þegar eft­ir­spurn eftir flugi og ferða­lögum fer að glæð­ast á ný. Til að geta nýtt þau fram­tíð­ar­tæki­færi sem munu gef­ast og tryggja aðkomu fjár­mögn­un­ar­að­ila að Icelandair Group til fram­tíðar, er nauð­syn­legt að félagið sé sam­keppn­is­hæft á alþjóða­mark­aði til lengri tíma. Ég hef fulla trú á fram­tíð Íslands sem ferða­manna­lands, að landið verði áfram eft­ir­sóttur áfanga­staður og jafn­framt mik­il­væg tengi­m­ið­stöð alþjóða­flugs milli Evrópu og Norður Ameríku. Icelandair Group mun leggja sitt á vog­ar­skál­arnar að svo verði áfram þegar mark­aðir opn­ast á ný og þannig styðja við end­ur­reisn ferða­þjón­ust­unnar og um leið íslenska hag­kerf­is­ins.“

Hlutabréf í frjálsu falli og gengur hratt á laust fé

Hluta­bréf í Icelandair hafa verið í frjálsu falli það sem af er ári og sem stendur er þorri flug­flota félags­ins ekki í notkun. Alls hafa bréfin tapað 61 pró­sent af verð­gildi sínu á síð­ustu þremur mán­uðum. Mark­aðsvirði félags­ins er nú um 18,5 millj­arðar króna og hefur ekki verið lægra frá því í byrjun árs 2011. Í byrjun mars fór það undir 30 millj­arða í fyrsta sinn síðan í mars 2012. Hæst reis það í apríl 2016 og fór þá í 191,5 millj­arð króna. Síðan þá hefur mark­aðsvirði íslenska flug­fé­lags­ins lækkað um 173 millj­arða króna.

Fyr­ir­tækið sagði upp 240 manns fyrir skemmstu og 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna þess voru fluttir í hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, þar sem allt að 75 pró­sent af greiddum launum koma úr rík­is­sjóði.

Í síð­ustu viku var greint frá því að stjórn­endur Icelandair væru nú að leita leiða til að styrkja fjár­hag félags­ins með því að styrkja hann til lengri tíma. Félagið réð Kviku banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann sem ráð­gjafa til að hefja skoðun á mögu­legum leiðum til að ná því mark­miði. Þá var greint frá því að stjórn­endur Icelandair myndu vinna náið með íslenskum stjórn­völdum í því ferli. Boðuð hluta­fjár­aukn­ing er meðal ann­ars afleið­ing af þeirri vinnu. 

Í til­kynn­ingu sem send var út vegna þessa í síð­ustu viku sagði að lausa­fjár­staða Icelanda­ir, að með­töldum óádregnum lána­lín­um, væri þó enn vel yfir því við­miði sem félagið starfar eftir en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 29 millj­arða króna á núver­andi gengi, eða 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala, á hverjum tíma. „Eins og til­kynnt hefur verið um, hefur félagið gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausa­fjár­stöðu sína á und­an­förnum vik­um. Hins veg­ar, ef miðað er við lág­marks­tekju­flæði hjá félag­inu í apríl og maí, er ljóst að lausa­fjár­staða félags­ins muni skerð­ast og fara undir ofan­greint við­mið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár