Norwegian aflýsir 85 prósent allra fluga og segir mögulega upp þúsundum

Norska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið sem flýgur meðal ann­ars til Íslands hefur gripið til stór­tækra aðgerða vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar og áhrifa þess á flug­sam­göngur.

Norska lág­far­gjald­ar­flug­fé­lagið Norwegian hefur aflýst 85 pró­sent allra fyr­ir­hug­aðra flug­ferða sinna og störf 7.300 starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins eru í hættu. Þetta kom fram í til­kynn­ingu frá Jacob Schram, for­stjóra Norwegian, sem hann sendi frá sér í dag. Dagens Nær­ingsliv greinir frá.

Schram sagði í til­kynn­ing­unni að um tíma­bundnar aðgerðir væri að ræða og þegar að heim­ur­inn yrði aftur eðli­legur þá væri það stefna hans að ráða starfs­menn­ina sem nú missa vinn­una aftur. Hann sagði enn fremur að það væri afar jákvætt að norsk stjórn­völd hefðu til­kynnt að þau ætl­uðu að gera allt sem til þyrfti til að styðja við norskan flug­iðnað svo að mik­il­vægir inn­virðir héld­ust og tug þús­undir starfa myndu ekki tap­ast.

Í gær var greint frá því að tíu þús­und starfs­menn flug­fé­lags­ins SAS yrðu sendir í ótíma­bundið leyfi. Rickard Gustaf­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, sagði á blaða­manna­fundi í gær að eft­ir­spurn eft­ir flugi hef­ði meira og minna þurrk­ast út vegna kór­ónu­veirunn­ar. Um er að ræða 90 pró­sent starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins.

[adspot]Erna Sol­berg for­sæt­is­ráð­herra Nor­egs og Jan Tore Sann­er, fjár­mála­ráð­herra lands­ins, kynntu í gær­kvöldi björg­un­ar­pakka upp á að minnsta kosti 100 millj­arða norskra króna, sem eru um 1.340 millj­arðar íslenskra króna, sem not­aður verður til að styðja við norsk fyr­ir­tæki vegna áhrifa sem þau verða fyrir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um.

Áætl­unin sem norska rík­is­stjórnin kynnti var tví­þætt. Ann­ars vegar verða fjár­mun­irnir not­aðir til að kaupa skulda­bréf af stærri fyr­ir­tækjum, eins og flug­fé­lögum, upp að sam­tals 50 millj­örðum norskra króna. Það mun styrkja lausa­fjár­stöðu þeirra og getu til að kom­ast í gegnum fyr­ir­liggj­andi skafl.

Hin leiðin snýst um að norska ríkið ætlar að veita ábyrgðir fyrir lánum í bönkum fyrir lítil og milli­stór fyr­ir­tæki svo þau geti fengið fyr­ir­greiðslu til að kom­ast í gegnum það ástand sem nú er uppi. Með þessu ættu fyr­ir­tækin að geta tryggt sér laust fé til að lifa af.

Þessi leið nær til þeirra fyr­ir­tækja sem bankar meta sem svo að séu arð­bær til lengri tíma lít­ið, en að gætu jafn­vel lent i gjald­þroti að óbreyttu vegna þeirra áhrifa sem útbreiðsla kór­ónu­veirunnar og aðgerðir ríkja heims vegna hennar eru að hafa á allt efna­hags­kerf­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár