Mesta losun koltvísýrings kemur frá ferðaþjónustu

Heild­ar­losun koltví­sýr­ings frá hag­kerfi Íslands hefur fimm­fald­ast frá árinu 1995. Losun koltví­sýr­ings er mest frá greinum ferða­þjón­ust­unnar en þar telur flug hæst.

Losun koltví­sýr­ings frá ein­kenn­andi greinar ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi hefur ríf­lega fimm­fald­ast frá árinu 1995 og nær þre­fald­ast frá árinu 2012. Greinar ferða­þjón­ust­unnar fara fram úr losun fyr­ir­tækja í fram­leiðslu málma árið árið 2016. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum AEA , los­un­ar­bók­haldi Hagstofu Íslands, þar sem mælt er hver losun kol­ví­sýr­ings er frá hag­kerfi Íslands.

Mikil losun frá íslenskum flugfélögum

Í einkennandi greinum ferðaþjónustu kemur losun CO2 fyrst og fremst frá flugi en ekki er gerður greinarmunur á því, í mælingum AEA, hvort að starfsemi íslensku flugfélaganna fara fram á Íslandi eða erlendis eða hvort verið sé að þjónusta ferðamenn eða fólk búsetta á Íslandi.

Umsvif íslenskra flugfélaga hafa vaxið mjög ört síðustu sex ár. Losunin hefur beina fylgni við fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll. Frá 2012-2013 jókst fjöldi farþega um Keflavík jafnt og losun eða 14 prósent. Á árunum 2015-2016 fjölgaði farþegum um Keflavíkurflugvöll nær 35 prósent en losun frá greininni um 36 prósent. Þessi fylgni er hins vegar að hluta til tilviljun. Nokkur hluti farþega um Keflavíkurflugvöll ferðast með erlendum flugfélögum, sem teljast ekki með í AEA tölunum. Á sama tíma hafa umsvif íslenskra flugfélaga án viðkomu í Keflavík aukist.

Heildarlosun íslenska hagkerfisins hefur tvöfaldast frá 1995

Árið 1995 var heild­ar­losun koltví­sýr­ings íslenska hag­kerf­is­ins 2.817 kílótonn en árið 2016 mælt­ist heild­ar­los­unin 5.698 kílótonn. Losunin hefur því tvö­fald­ast. Árið 2008 náði los­unin 4.600 kílótonnum, en lækk­aði líti­lega á sama tíma og hag­kerfið dróst saman til árs­ins 2012. Losun árs­ins 2016 er sú mesta frá árinu 1995.

Losun koltví­sýr­ings frá málm­vinnslu var fjórum sinnum meira árið 2016 en árið 1994. Losun frá málm­vinnslu jókst tölu­vert árin 1998 og 2008 í sam­ræmi við fjölgun fyr­ir­tækja í grein­inni. Losun koltví­sýr­ings frá fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi og mat­væla­fram­leiðslu hefur lækkað um helm­ing frá árinu 1995. Losun í sjáv­ar­út­vegi og mat­væla­fram­leiðslu kemur fyrst og fremst vegna olíu­notk­unar hjá skipum, en einnig er notkun olíu til suðu og bræðslu í fram­leiðslu nokkur. Sam­dráttur í CO2 losun frá þess­ari grein hefur verið meiri en bein fækkun skipa myndi benda til. Frá 1999 til 2016 fækk­aði skipum um 18 pró­sent á meðan losun dróst saman um 50 pró­sent.

Losun frá heimilum náði hámarki árið 2007

Losun koltvísýrings frá íslenskum heimilum árið 2016 var 30 prósent hærri en árið 1995, en hefur verið á bilinu 540 til 600 kílótonn CO2 frá 2008. En losun frá einstaklingum frá heimilum hefur aukist úr 1,63 kílótonnum á einstakling í 1,73 tonn árið 2016. Losun einstaklinga náði hámarki árið 2007 1,96 tonn á einstakling.

Losun frá heimilum er fyrst og fremst vegna aksturs en einnig er tekið tillit til notkunar eldunargass, hitunarolíu og flugelda. Flug, strætóferðir, sorplosun, notkun rafmagns og jarðvarma telur ekki inn í losun heimila, heldur reiknast á viðeigandi atvinnugreinar. Losun 1,7 tonn á einstakling er sambærileg og losunin frá meðalstórum fjölskyldubíl sem ekið er 8000 km.

Losun koltvísýrings sýnir aðeins hluta af allri losun gróðurhúsalofttegunda

Vert er að nefna að í fyrrgreindum tölum er aðeins er fjallað um losun koltvísýrings CO2 frá hagkerfi Íslands en ekki annarra gróðurhúsalofttegunda þar á meðal metan CH4, nitur oxíð NOx og brennisteins oxíð SOx. 
[links]Í tölum Hagstofunnar má til dæmis sjá að landbúnaður á Íslandi losaði 14.466 kílótonn af metan gasi árið 2016 en aðeins 4,6 kílótonn af koltvísýring.

Fisk­vinnsla los­aði 12.804,5 kílótonn af Nitur oxíð árið 2016 og land­bún­aður 2456 kílótonn. Málm­iðn­að­ur­inn los­aði til að mynda 12.198,7 kílótonn af brenni­stein út í umhverfið og fisk­vinnsla 2352 tonn árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár