Áhrif loftslagsbreytinga aldrei verið verri

Í dag var árleg ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna um loft­lags­mál sett í Póllandi. Patricia Espinosa, fram­kvæmda­stjóri ramma­samn­ings S.Þ um lofts­lags­breyt­ingar, full­yrðir að aðild­ar­ríkin þurfi að gera miklu meira í bar­átt­unni við loft­lags­breyt­ingar.

Hættan sem stafar að mann­kyn­inu vegna lofts­lags­breyt­inga hefur aldrei verið meiri, full­yrðir Patricia Espinosa, fram­kvæmda­stjóri Ramma­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar, á árlegri ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjón­anna um loft­lags­mál. Ráð­stefnan, COP24, var sett í 24. sinn í Kató­vítsje í Póllandi í dag. „Þetta ár verður lík­lega meðal fjög­urra heit­ustu ára síðan mæl­ingar hófust,“ sagði Espinosa. „Áhrif lofts­lags­breyt­inga hafa aldrei verið verri. Þessi veru­leiki sýnir okkur að við þurfum að gera miklu meira.“

Leikreglur Parísarsamkomulagsins

Á þess­ari 24. ráð­stefnu er mark­miðið að öll 183 ríki heims sem eru aðilar að Par­ísa­sam­komu­lag­inu sam­þykki leik­reglur sem séu fýsi­legar fyrir öll ríkin. Það er þó óvíst hvort að öll ríkin taki þátt en til dæmis taka Banda­ríkin ekki lengur þátt í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, eftir að Donald Trump, banda­ríkja­for­seti, dró stuðn­ing Banda­ríkj­anna til baka um mitt ár 2017.

Þrjú ár eru síðan Par­ísa­sam­komu­lagið var und­ir­ritað á ráð­stefn­unni, sem þá var haldin í Frakk­landi. Þar settu öll aðild­ar­ríki að ramma­samn­ingnum sér mark­mið í lofts­lags­málum til árs­ins 2030. Ísland var þeirra á meðal en mark­mið Íslands er að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um minnst 40 pró­sent árið 2030 miðað við árið 1990.[adspot]

Heild­ar­losun íslenska hag­kerf­is­ins hefur tvö­fald­ast á síðustu 20 árum

[links]Á Íslandi hefur losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda auk­ist, þvert á mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Ísland var með mesta losun koltví­sýr­ings frá hag­kerfi á ein­stak­ling innan ESB og EFTA svæð­is­ins árið 2016. Árið 1995 var heild­ar­losun koltví­sýr­ings íslenska hag­kerf­is­ins 2.817 kílótonn en árið 2016 mælt­ist heild­ar­los­unin 5.698 kílótonn. Los­un Íslands hefur því tvö­fald­ast en losun Íslands árs­ins 2016 er sú mesta frá árinu 1995.

Mesta los­unin hag­kerf­is­ins Íslands kemur frá ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ust­unnar en los­unin frá ferða­þjón­ust­unni hefur ríf­lega fimm­fald­ast frá árinu 1995 og nær þre­fald­ast frá árinu 2012. Losun á hvern íslenskan ein­stak­ling var 16,9 tonn árið 2016 en los­unin hefur auk­ist síð­ustu ár. Þetta kemur fram í nýj­­ustu tölum Hag­­stofu Íslands.

Ríki þurfa auka slagkraft aðgerða sinna fimmfalt

Í byrjun októ­ber kom út ný skýrsla loft­lags­sér­fræð­inga á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem skýrt var frá­ ó­hugn­an­legri ­stöðu er varðar hlýnun jarð­ar. Þar kemur fram að ríki heims hafa aldrei átt jafn langt í land með að upp­fylla mark­mið sín í lofts­lags­málum. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýna að hita­stig á jörð­unni muni hækka um 1,5 gráðu fyrir 2030 ef ekki er brugð­ist hratt við. Sú hækkun myndi hafa í för með sér hörmu­legar afleið­ing­ar, eyð­ing­u kór­al­rifa, mikla þurrka, flóð og mat­ar­skort fyrir hund­ruð millj­ónir manna.

Í skýrsl­unni er kallað eftir að ríki heims grípi til stór­tækra aðgerða en aðeins eru tólf ár til stefnu ef koma á í veg fyrir óaft­ur­kræf áhrif á líf­ríki jarð­ar­inn­ar. Í skýrsl­unni segir að ríki heims þurfi að þre­falda slag­kraft aðgerða sinna til þess að hægt verði að halda hita­stigi á jörð­inni innan við tvær gráður, miðað við stöð­una nú. Til þess að hita­stigið fari ekki yfir 1,5 gráður þurfa ríkin að auka aðgerðir sínar fimm­falt.

Nefnd eru fjögur meg­in­svið sem þarf að gjör­breyta, orku­notk­un, land­notk­un, borg­ar­skipu­lag og iðn­að­ur. Talið er að það þurfi bylt­ing­ar­kenndar breyt­ingar á öllum kerf­um. Breyt­ing á því hvernig lönd eru nýtt, hvernig fólk borð­ar, hvernig menn ferð­ast og svo fram­veg­is. Í skýrsl­unni sem mætti segja vera eins­konar loka­út­kall segir að mögu­legt er að bregð­ast við og ná veru­legum árangri fyrir 2030. En ljóst er að til þess þarf vilja almenn­ings til breyt­inga sem og póli­tískan vilja stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár