Íslendingar með mesta losun koltvísýrings í Evrópu

Ísland var með mesta losun koltví­sýr­ings frá hag­kerfi á ein­stak­ling innan ESB og EFTA svæð­is­ins árið 2016. Losun á hvern íslenskan ein­stak­ling var 16,9 tonn árið 2016 en los­unin hefur auk­ist síð­ustu ár.

Ísland var með mesta losun koltví­sýr­ings frá hag­kerfi á ein­stak­ling innan ESB og EFTA svæð­is­ins árið 2016. Ísland hefur verið í þriðja til fjórða sæti frá árinu 2008 en losun hefur auk­ist mikið vegna auk­ins flug­rekst­urs og skipa­flutn­inga frá árinu 2012. Þetta kemur fram í nýj­ustu tölum AEA , los­un­ar­bók­haldi Hag­stofu Íslands, þar sem mælt er hver losun koltví­sýr­ings er frá hag­kerfi Íslands.

Losun koltví­sýr­ings frá hag­kerfi í heild sinni á ein­stak­ling hefur auk­ist á Íslandi úr 14,6 tonnum árið 2008 í 16,9 kílótonn árið 2016. Til sam­an­burðar er losun 1,7 tonn af koltví­sýr­ing svipuð og los­unin frá með­al­fjöl­skyldu­bíl sem ekið er 8000 km. Önnur lönd sem hafa verið með háa losun koltví­sýr­ings á ein­stak­ling, Lúx­em­borg, Danmörk og Eistland, hafa hins vegar verið að draga úr losun á ein­stak­linga. Í Lúx­em­borg hefur losun á ein­stak­ling minnkað frá árinu 2008 úr 18,8 í 15,2 árið 2016 og sömu þróun má sjá hjá Eist­landi og Danmörku. Samkvæmt Hag­stof­unni hefur losun á ein­stak­ling almennt lækkað innan ESB og eru flest lönd komin niður í um 9 tonn á ein­stak­ling.

Mikil losun frá íslenskum flug­fé­lögum

Losun koltví­sýr­ings frá ein­kenn­andi greinar ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi hefur ríf­lega fimm­fald­ast frá árinu 1995 og nær þre­fald­ast frá árinu 2012. Grein­ar ­ferða­þjón­ust­unn­ar fara fram úr losun fyr­ir­tækja í fram­leiðslu málma árið árið 2016. Í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu kemur los­un CO2 ­fyrst og fremst frá flugi en ekki er gerður grein­ar­munur á því, í mæl­ing­um A­EA, hvort að starf­semi íslensku flug­fé­lag­anna fara fram á Íslandi eða erlendis eða hvort verið sé að þjón­usta ­ferða­menn eða fólk búsetta á Íslandi

[links]Umsvif íslenskra flug­fé­laga hafa vaxið mjög ört síð­ustu sex ár. Samkvæmt tölum hag­stof­unnar hefur los­unin beina fylgni við fjölgun far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl. Á árunum 2015 til 2016 fjölg­aði far­þegum um Kefla­vík­ur­flug­völl nær 35 pró­sent en losun frá­ ­grein­inn­i um 36 pró­sent.Samkvæmt Hag­stof­unni má gera ráð fyrir að flug og fram­leiðsla málma verði áfram með ráð­andi hlut­fall los­unar á Íslandi árin 2017 og 2018. Flug­rekstur hefur vaxið áfram í sam­ræmi við und­an­gengin ár og vinnsla á kís­il­málmi hófst. Koltví­sýr­ingslosun frá hag­kerf­inu á ein­stak­ling hefur því farið vax­andi frá árinu 2016.

Í löndum sem eru ofar­lega á list­anum yfir mesta mengun eru ákveðnir geira með afger­andi mesta losun. Í Lúx­em­borg er losun að stærstum hluta vegna rekst­urs flug­fé­laga, bæði far­þega­flutn­ings og frakt­flutn­ings. Sjó­flutn­ingur er afger­andi stærsta grein danska hag­kerf­is­ins í losun á ein­stak­ling, enda er stærsta skipa­fé­lag heims skráð þar. Eingöngu um 15 pró­sent af orku­fram­leiðslu Eist­lands kemur frá end­ur­nýj­an­legum auð­lindum og því er þessi geiri með afger­andi hlut­fall los­unar þar.

Dregið hefur úr losun einstaklinga á hinum Norðurlöndunum.

Þróun í losun frá hag­kerfi Íslands á ein­stak­ling hefur verið á skjön við hin Norð­ur­löndin. Losun Íslend­inga hefur auk­ist á meðan hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar hafa náð að draga úr losun. Danir hafa náð mestum árangri í að draga úr losun, en losun á ein­stak­ling náði hámarki árið 2006. Svíþjóð hefur sýnt afger­andi lægsta losun frá sínu hag­kerfi.


Losun á hvern ein­stak­ling frá íslenskum heim­ilum hefur verið hærri en hjá hinum Norð­ur­lönd­unum frá árinu 2008 en árið 2016 var losun koltví­sýr­ings frá íslenskum heim­ilum 30 ­pró­sent hærri en árið 1995, en hefur verið á bil­inu 540 til 600 kílótonn CO2 frá 2008. Danir hafa dregið mest úr losun frá heim­ilum eða um 0,33 tonnum á ein­stak­ling frá 2008.

Ísland er í níunda til ell­efta sæti þegar losun koltví­sýr­ings frá rekstri heim­ila er borin saman við ríki innan ESB. Losun frá heim­ilum er fyrst og fremst vegna akst­urs en einnig er tekið til­lit til notk­unar eld­un­ar­gass, hit­un­ar­olíu og flug­elda. Flug, stræt­ó­ferð­ir, sorp­los­un, notkun raf­magns og jarð­varma telur ekki inn í losun heim­ila, heldur reikn­ast á við­eig­andi atvinnu­grein­ar. .

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár